Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 66/2014

Mál nr. 66/2014

Fimmtudaginn 6. október 2016

A og B

gegn

umboðsmanni skuldara

 

Úrskurður


Mál þetta úrskurða Sigríður Ingvarsdóttir formaður, Eggert Óskarsson og Þórhildur Líndal.

Þann 19. júní 2014 barst kærunefnd greiðsluaðlögunarmála kæra A, og B. Kærð var ákvörðun umboðsmanns skuldara sem tilkynnt var með bréfi 5. júní 2014 þar sem greiðsluaðlögunarumleitanir kærenda voru felldar niður.

Með bréfi 26. júní 2014 óskaði kærunefnd greiðsluaðlögunarmála eftir greinargerð umboðsmanns skuldara sem barst með bréfi 8. júlí 2014.

Greinargerðin var send kærendum til kynningar með bréfi 9. júlí 2014 og þeim gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Ítrekun var send 14. janúar 2015. Engar athugasemdir bárust.

I. Málsatvik

Kærendur eru fædd X og X. Þau búa ásamt X börnum sínum í eigin íbúð að C, sem er C fermetrar að stærð.

Kærandi A starfar á D en kærandi B er [...] og starfar hjá E sem [...].

Heildarskuldir kærenda, samkvæmt skuldayfirliti umboðsmanns skuldara, eru 49.786.964 krónur. Til helstu skuldbindinga var stofnað vegna fasteignakaupa árið 2007.

Kærendur rekja greiðsluerfiðleika til samdráttar í fyrirtæki kæranda B árið 2008.

Kærendur sóttu um heimild til að leita greiðsluaðlögunar með umsókn 12. janúar 2011. Með ákvörðun umboðsmanns skuldara 29. júní 2011 var kærendum veitt heimild til að leita greiðsluaðlögunar og umsjónarmaður skipaður með greiðsluaðlögunarumleitunum þeirra. Í fylgiskjali með ákvörðun umboðsmanns var upplýst um skyldur skuldara við greiðsluaðlögun samkvæmt 12. gr. laga um greiðsluaðlögun einstaklinga nr. 101/2010 (lge.).

Með bréfi umsjónarmanns til umboðsmanns skuldara 11. nóvember 2013 lagði umsjónarmaður til að greiðsluaðlögunarumleitanir kærenda yrðu felldar niður á grundvelli 1. mgr. 15. gr. lge. Greiðslugeta kærenda eftir að tekið hafi verið tillit til framfærslukostnaðar þeirra hafi verið jákvæð um 5.361.756 krónur á tímabili greiðsluaðlögunarumleitana. Kærendur hafi og lagt fram reikninga fyrir 304.297 krónum vegna aukins kostnaðar og hefðu því átt að geta lagt fyrir 4.545.450 krónur. Þá hafi þau einungis lagt fyrir um 512.000 krónur á tímabilinu. Umsjónarmaður telji því að kærendur hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

Með bréfi umboðsmanns skuldara til kærenda 11. apríl 2014 var þeim gefinn kostur á að láta álit sitt í ljós innan tilskilins frests og leggja fram frekari gögn áður en umboðsmaður skuldara tæki ákvörðun um hvort fella skyldi niður greiðsluaðlögunarumleitanir þeirra, sbr. 1. mgr. 15. gr. lge. Engar athugasemdir bárust frá kærendum.

Með ákvörðun 4. júní 2014 felldi umboðsmaður skuldara greiðsluaðlögunarumleitanir kærenda niður með vísan til 15. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

II. Sjónarmið kærenda

Kærendur krefjast þess að ákvörðun umboðsmanns skuldara verði felld úr gildi.

Kærendur vísa til þess að umsjónarmaður, sem þeim var skipaður fyrst, hafi kallað þau á fund til sín til að fara yfir greiðsluaðlögunarferlið. Á fundinum hafi komið fram að þau þyrftu ekki að leggja fyrir einhverja ákveðna fjárhæð af launum sínum, aðeins að þau hafi átt að fara sparlega með peningana og ekki eyða umfram það sem kostaði að reka X manna fjölskyldu.

Kærendur telja sig hafa farið eftir 12. gr. lge. Þeim hafi aldrei verið tilkynnt um prósentutölu eða krónutölu sem þau hafi átt að leggja fyrir af launum sínum. Þá telji þau sig hafa lagt til hliðar allt sem þau gátu á tímabili greiðsluaðlögunar

Á tímabilinu hafi Lýsing hf. höfðað mál gegn þeim til að fá afhenta bíla sem þau voru með hjá fyrirtækinu. Þau hafi fengið gjafsókn í málinu en standi þó uppi með umtalsverðan lögfræðikostnað.

Enginn vilji hafi verið hjá umsjónarmanni til að hjálpa kærendum í málinu eins og honum  beri skylda til. Umsjónarmaður hafi aldrei reynt að ná samningum fyrir hönd kærenda og sagt að það væri til lítils að reyna þar sem þeirra helsti lánardrottinn væri Arion banki, sem væri mjög strangur. Kærendur hafi haft samband við Arion banka til að athuga hvort umsjónarmaður hefði reynt að ná samningum fyrir þeirra hönd en af hálfu Arion banka hafi þeim verið tjáð að svo væri ekki.

III. Sjónarmið umboðsmanns skuldara

Umboðsmaður skuldara vísar til þess í ákvörðun um niðurfellingu greiðsluaðlögunar-umleitana að komi fram upplýsingar, sem ætla megi að komi í veg fyrir að greiðsluaðlögun sé heimil á grundvelli lge., skuli umsjónarmaður tilkynna það til umboðsmanns skuldara sem í kjölfarið taki afstöðu til málsins með rökstuddri ákvörðun, sbr. 1. mgr. 15. gr. lge. Skuldara skuli gefið tækifæri til að láta álit sitt í ljós áður en slík ákvörðun sé tekin.

Í 12. gr. lge. séu tilgreindar skyldur skuldara á meðan hann njóti greiðsluskjóls. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. skuli skuldari leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum sínum það fé sem sé umfram það sem hann þurfi til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða.

Öllum, er sóttu um heimild til greiðsluaðlögunar og nutu greiðsluskjóls, hafi verið sent bréf 27. nóvember 2012 þar sem brýndar hafi verið fyrir þeim skyldur þeirra samkvæmt 12. gr. lge. Þær upplýsingar hafi einnig verið að finna á heimasíðu umboðsmanns skuldara www.ums.is. Skriflegar leiðbeiningar um 12. gr. lge. hafi fylgt með ákvörðun um samþykki umsóknar kærenda um heimild til að leita greiðsluaðlögunar sem þeim hafi borist með ábyrgðarbréfi. Auk þess séu skyldur skuldara í greiðsluskjóli ávallt útskýrðar og ítrekaðar á fyrsta fundi umsjónarmanns og skuldara. Kærendum hafi því vel mátt vera ljóst að þau skyldu halda til haga þeim fjármunum sem þau hafi átt aflögu í lok hvers mánaðar til að greiða af skuldum sínum þegar að því kæmi að semja við kröfuhafa.

 

Greiðsluskjól kærenda hafi staðið yfir í rúmlega 32 mánuði en miðað sé við tímabilið frá 13. janúar 2011 til 31. október 2013. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærendur haft neðangreindar tekjur á tímabilinu í krónum:

Tekjur 1. febrúar 2011 til 31. október 2013 að frádregnum skatti 16.952.284
Framfærslukostnaður á mánuði 362.204
Samtals greiðslugeta í 32 mánuði 5.095.405

Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. lge. skuli umsjónarmaður notast við framfærsluviðmið sem umboðsmaður skuldara setji. Umsjónarmanni sé almennt óheimilt að miða við hærri framfærslukostnað en þann sem reiknaður hafi verið fyrir kærendur með tilliti til fjölskylduaðstæðna. Framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara byggist á hlutlægum viðmiðum um almenna framfærslu með tilliti til fjölskyldustærðar og taki mið af vísitölu. Að auki skuli lagt til grundvallar við mat á því hvort skuldarar hafi sinnt skyldum sínum í greiðsluskjóli að þeim sé að jafnaði játað nokkurt svigrúm til að mæta óvæntum útgjöldum í mánuði hverjum. Þá sé almennt tekið tillit til annarra útgjalda sem fella megi undir venjulegan heimilisrekstur samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

Kærendur kveðist hafa þurft að standa straum af auknum kostnaði á tímabilinu vegna tannviðgerða, samtals að fjárhæð 304.296 krónur, auk þess að hafa lagt 512.000 krónur til hliðar. Skýringar kærenda veiti aðeins upplýsingar um hluta þess fjár sem kærendur hefðu átt að leggja til hliðar samkvæmt fyrirmælum a-liðar 1. mgr. 12. gr. lge., eða því sem nemi 816.296 krónum, sem sé um 16% af áætlaðri fjárhæð sparnaðar.

Samkvæmt öllu því er að ofan greini hafi umboðsmaður skuldara fellt niður heimild kærenda til greiðsluaðlögunar með vísan til 15. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

Með vísan til forsendna hinnar kærðu ákvörðunar fer umboðsmaður skuldara fram á að hún verði staðfest.

IV. Niðurstaða

Ákvörðun umboðsmanns skuldara byggist á 15. gr. lge., sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

Samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. skal skuldari leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum það fé sem er umfram það sem hann þarf til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða. Í 2. mgr. 12. gr. kemur fram að telji umsjónarmaður að skuldari hafi brugðist skyldum sínum skuli hann óska þess við umboðsmann skuldara að greiðsluaðlögunarumleitanir verði felldar niður samkvæmt 15. gr. lge. Í 1. mgr. 15. gr. lge. segir að komi fram upplýsingar, sem ætla megi að hindri að greiðsluaðlögun sé heimil á grundvelli lge., skuli umsjónarmaður tilkynna um slíkt til umboðsmanns skuldara sem í kjölfarið taki afstöðu til málsins með rökstuddri ákvörðun.

Með bréfi til umboðsmanns skuldara 11. nóvember 2013 lagði umsjónarmaður til að greiðsluaðlögunarumleitanir kærenda yrðu felldar niður samkvæmt 15. gr. lge. Í bréfinu kemur fram að kærendur hefðu brugðist skyldum sínum samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. með því að láta hjá líða að leggja fé til hliðar í greiðsluskjóli. Umboðsmaður skuldara felldi greiðsluaðlögunarumleitanir kærenda niður 4. júní 2014.

Í 1. mgr. 11. gr. lge. kemur fram að frestun greiðslna hefjist þegar umboðsmaður skuldara hefur samþykkt umsókn um greiðsluaðlögun. Samkvæmt bráðabirgðaákvæði laganna, sbr. 1. gr. laga nr. 128/2010, hófst tímabundin frestun greiðslna samkvæmt 11. gr. þegar umboðsmaður tók á móti umsókn kærenda um greiðsluaðlögun. Þá kemur einnig fram í bráðabirgðaákvæðinu að skyldur samkvæmt 12. gr. laganna eigi við um leið og umboðsmaður skuldara hefur móttekið umsókn um greiðsluaðlögun. Kærendum bar því að virða skyldur sínar samkvæmt 12. gr. laganna strax eftir að umsókn þeirra var móttekin hjá umboðsmanni skuldara.

Kærendur telja að Embætti umboðsmanns skuldara hafi ekki gert þeim nægilega grein fyrir því hversu mikið fé þau skyldu leggja til hliðar. Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 skal stjórnvald veita þeim sem til þess leita nauðsynlega aðstoð og leiðbeiningar um þau mál er snerta starfssvið þess. Af reglunni leiðir að stjórnvaldi ber að leiðbeina aðilum að eigin frumkvæði. Engar formkröfur eru fyrir hendi varðandi leiðbeiningarskylduna. Þannig geta upplýsingar verið bæði skriflegar og munnlegar, almennar eða sérstakar og komið fram í bæklingum eða á vefsíðum.

Með gildistöku laga nr. 128/2010 frá 18. október 2010 tók gildi tímabundin frestun greiðslna samkvæmt 11. gr. lge. hjá þeim einstaklingum sem sóttu um heimild til greiðsluaðlögunar fram til 1. júlí 2011. Þegar umsókn var lögð fram afhenti umboðsmaður skuldara þessum umsækjendum sérstakt upplýsingaskjal þar sem greint var frá skyldum þeirra í greiðsluskjóli í samræmi við 12. gr. lge. Þar á meðal var tiltekið að umsækjendum bæri að leggja fyrir fé sem væri umfram það sem þyrfti til reksturs heimilis, sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. Þá var tekið fram að umsækjendur mættu greiða það sem tengdist daglegum rekstri heimilis og nota skyldi neysluviðmið umboðsmanns skuldara til viðmiðunar um hvað teldist eðlilegur kostnaður í því sambandi. Þá var sérstaklega vakin athygli á því að uppfyllti umsækjandi ekki skyldur sínar meðan á frestun greiðsla stæði gæti það leitt til þess að samningur um greiðsluaðlögun kæmist ekki á.

Þá sendi umboðsmaður skuldara umsækjendum sem voru í greiðsluskjóli bréf 8. apríl 2011 og 27. nóvember 2012 þar sem meðal annars var minnt á skyldur umsækjenda um að leggja til hliðar fjármuni sem voru umfram framfærslukostnað samkvæmt 12. gr. lge.

Á vefsíðu umboðsmanns skuldara á þeim tíma er kærendur sóttu um heimild til greiðsluaðlögunar voru upplýsingar um skyldur umsækjenda við greiðsluaðlögunarumleitanir. Eftirfarandi texta var að finna á vefsíðunni undir liðnum greiðsluaðlögun einstaklinga:

Þegar umsókn um greiðsluaðlögun er móttekin af umboðsmanni skuldara hefst frestun greiðslna. Með frestuninni eru lagðar ákveðnar skyldur á herðar kröfuhöfum og umsækjendum. Á fresttíma má umsækjandi einungis greiða það sem viðkemur rekstri heimilsins og framfærslu. Framfærslan innifelur mat, hreinlætisvörur, tómstundir, fatnað, lækniskostnað skv. neysluviðmiði umboðsmanns og fastra liða í framfærslu s.s. síma, hita, rafmagn, dagvistun og fleira. Umsækjandi þarf einnig að leggja til hliðar allar afgangstekjur sínar. Á fresttíma er kröfuhöfum óheimilt að taka við greiðslum vegna skulda hvort sem umsækjandi er í skilum eða vanskilum. Þetta á við um greiðslur af veðlánum og öðrum lánum s.s. bílakaupalánum, yfirdráttarlánum og fleira. Þá er kröfuhöfum einnig óheimilt að krefjast nauðungarsölu á eigum umsækjenda og hjá þeim sem kynnu að vera í ábyrgðum fyrir umsækjenda. Frestun greiðslna lýkur með samningi, afturköllun eða synjun umsóknar.“

Kærunefndin telur að kærendum hafi mátt vera ljóst að þeim bar að haga framfærslukostnaði sínum eftir sérstökum framfærsluviðmiðum umboðsmanns skuldara þegar þau sóttu um greiðsluaðlögun. Í því sambandi var sérstaklega tilgreint í umsóknareyðublaði um greiðsluaðlögun hvaða fjárhæðir framfærsla þeirra skyldi miðast við og að frekari upplýsingar um framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara væri að finna á vefsíðu embættisins. Í umsókninni segir „Þú finnur framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara á heimasíðunni www.ums.is“ Kærendum stoðar því ekki að bera fyrir sig að þau hafi ekki vitað að þau ættu að leggja fyrir ákveðna fjárhæð af launum sínum eða að þeim hefði aldrei verið tilkynnt um prósentutölu eða krónutölu sem þau ættu að leggja fyrir.  Við útreikninga á þeirri fjárhæð, sem kærendum bar að leggja til hliðar samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge., er ljóst að miða skyldi við laun þeirra og aðrar tekjur en frá þeirri fjárhæð bar að draga framfærslukostnað í samræmi við það sem að framan greinir.

Í ákvörðun umboðsmanns skuldara 29. júní 2011 þar sem kærendum var veitt heimild til greiðsluaðlögunar var þeim einnig bent á skyldur sínar í samræmi við 1. mgr. 12. gr. lge., auk þess sem skriflegar leiðbeiningar þar um fylgdu með.

Kærunefndin telur að Embætti umboðsmanns skuldara hafi samkvæmt framansögðu leiðbeint kærendum þegar þau sóttu um heimild til að leita greiðsluaðlögunar með fullnægjandi hætti með því að veita upplýsingar við móttöku umsóknar, með skriflegum leiðbeiningum þegar heimild til greiðsluaðlögunar var veitt, í tilkynningum sem sendar voru kærendum á tímabili greiðsluskjóls, með upplýsingum á vefsíðu embættisins og á umsóknareyðublaði um greiðsluaðlögun. Í þessum gögnum var að finna útskýringar á afdráttarlausu lagaákvæði a-liðar 1. mgr. 12. gr. lge. um skyldur skuldara við greiðsluaðlögun þar sem segir að á meðan leitað er greiðsluaðlögunar skuli skuldari leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum sínum það fé sem sé umfram það sem hann þurfi til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða. Eins og fram kemur í leiðbeiningunum er þar enn fremur útskýrt að skylda til að leggja fé til hliðar hefjist þegar umsókn um greiðsluaðlögun er móttekin um leið og frestun greiðslna hefst. Að þessu virtu er það álit kærunefndarinnar að umboðsmaður skuldara hafi framfylgt leiðbeiningarskyldu stjórnsýslulaga við meðferð málsins. Kærendum bar því að virða skyldur sínar samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. frá þeim tíma er umsókn þeirra um heimild til greiðsluaðlögunar var móttekin af umboðsmanni skuldara 12. janúar 2011.

Umboðsmaður skuldara telur að kærendur hafi átt að leggja til hliðar 5.095.405 krónur frá því að umsókn þeirra um greiðsluaðlögun var lögð fram. Við meðferð málsins hjá umboðsmanni skuldara kváðust kærendur hafa þurft að standa straum af auknum kostnaði vegna tannviðgerða, samtals að fjárhæð 304.296 krónur, og að hafa lagt fyrir 512.000 krónur á tímabili greiðsluskjóls.

Samkvæmt fyrirliggjandi skattframtölum og launaupplýsingum Ríkisskattstjóra, sem eru meðal gagna málsins, hafa mánaðartekjur kærenda í krónum verið eftirfarandi í greiðsluskjóli á neðangreindu tímabili:

Tímabilið 1. febrúar 2011 til 31. desember 2011: 11 mánuðir
Nettótekjur B 2.706.387
Nettó mánaðartekjur B að meðaltali 246.035
Nettótekjur A 2.150.884
Nettó mánaðartekjur A að meðaltali 195.535
Nettótekjur alls 4.857.271
Mánaðartekjur alls að meðaltali 441.570
Tímabilið 1. janúar 2012 til 31. desember 2012: 12 mánuðir
Nettótekjur B 3.383.332
Nettó mánaðartekjur B að meðaltali 281.944
Nettótekjur A 2.539.949
Nettó mánaðartekjur A að meðaltali 211.662
Nettótekjur alls 5.923.281
Mánaðartekjur alls að meðaltali 493.607
Tímabilið 1. janúar 2013 til 31. desember 2013: 12 mánuðir
Nettótekjur B 3.501.442
Nettó mánaðartekjur B að meðaltali 291.787
Nettótekjur A 2.709.971
Nettó mánaðartekjur Aað meðaltali 225.831
Nettótekjur alls 6.211.413
Mánaðartekjur alls að meðaltali 517.618
Tímabilið 1. janúar 2014 til 31. maí 2014: 5 mánuðir
Nettótekjur B 1.518.191
Nettó mánaðartekjur B að meðaltali 303.638
Nettótekjur A 1.126.043
Nettó mánaðartekjur A að meðaltali 225.209
Nettótekjur alls 2.644.234
Mánaðartekjur alls að meðaltali 528.847
Nettótekjur alls í greiðsluskjóli 19.636.199
Nettó mánaðartekjur alls að meðaltali í greiðsluskjóli 490.904

Sé miðað við framfærslukostnað samkvæmt ákvörðun umboðsmanns skuldara, tekjur kærenda, barna- og vaxtabætur og sérstaka vaxtaniðurgreiðslu, var greiðslugeta kærenda þessi í greiðsluskjóli í krónum:

Tímabilið 1. febrúar 2011 til 31. maí 2014: 40 mánuðir
Nettótekjur alls í greiðsluskjóli 19.636.199
Barnabætur, vaxtabætur og sérstök vaxtaniðurgreiðsla 536.219
Alls til ráðstöfunar í greiðsluskjóli 20.172.418
Mánaðarlegar ráðstöfunartekjur að meðaltali í greiðsluskjóli 504.310
Mánaðarleg útgjöld samkvæmt ákvörðun umboðsmanns 362.204
Greiðslugeta kærenda á mánuði 142.106
Alls sparnaður í 40 mánuði í greiðsluskjóli x 142.106 5.684.258

Við mat á því hvaða fjárhæð kæranda beri að leggja til hliðar af launum sínum í greiðsluskjóli skal samkvæmt 4. mgr. 16. gr. lge. notast við framfærsluviðmið sem umboðsmaður skuldara setur. Þegar metið er hvort skuldari hafi sinnt skyldum sínum meðan á frestun greiðslna stendur er gert ráð fyrir svigrúmi til að mæta óvæntum útgjöldum.

Kærendur kveðast hafa þurft að standa straum af auknum kostnaði á tímabilinu vegna tannviðgerða, samtals að fjárhæð 304.296 krónur, auk þess að hafa lagt 512.000 krónur til hliðar. Kærendur hafa ekki lagt fram reikninga vegna tannviðgerða og verður því ekki tekið tillit til þeirra við útreikning á þeirri fjárhæð sem kærendum bar að leggja fyrir á tímabili greiðsluskjóls. Að þessu virtu hafa kærendur átt að geta lagt fyrir 5.684.258 krónur á tímabili greiðsluskjóls en hafa einungis lagt fyrir 512.000 krónur.

 Í ljósi þess sem að framan greinir verður að líta svo á að kærendur hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. og að umboðsmanni skuldara hafi því borið samkvæmt 1. mgr. 15. gr. laganna að fella greiðsluaðlögunarumleitanir kærenda niður. Með vísan til þess er hin kærða ákvörðun umboðsmanns skuldara staðfest.


ÚRSKURÐARORÐ

Ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir A og B er staðfest.

Sigríður Ingvarsdóttir

Eggert Óskarsson

Þórhildur Líndal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum