Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20h%C3%BAsam%C3%A1la

Nr. 47/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 4. júlí 2019

í máli nr. 47/2019

 

A

gegn

B

 

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir hæstaréttarlögmaður, Valtýr Sigurðsson hæstaréttarlögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur. 

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðili: A.

Varnaraðili: B.

Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að endurgreiða henni tryggingarfé að fjárhæð 200.000 kr.

Með kæru, dags. 15. maí 2019, beindi sóknaraðili til nefndarinnar erindi vegna ágreinings við varnaraðila. Með bréfi kærunefndar, dags. 17. maí 2019, var varnaraðila gefinn kostur á að tjá sig um efni kærunnar. Þar sem greinargerð barst ekki frá varnaraðila innan tilskilins frests ítrekaði kærunefnd beiðni þar um með bréfi, dags. 3. júní 2019. Í því bréfi var jafnframt upplýst um að nefndin tæki málið til úrlausnar á grundvelli fyrirliggjandi gagna bærist greinargerð ekki innan tiltekins frests. Bréf kærunefndar var einnig sent á netfang varnaraðila. Engin viðbrögð bárust frá varnaraðila.

 

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Aðilar gerðu leigusamning, dags. 26. nóvember 2018, um leigu sóknaraðila á herbergi varnaraðila að C. Ágreiningur er um endurgreiðslu tryggingarfjár.

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðili segir að varnaraðili hafi neitað að endurgreiða henni tryggingarféð þrátt fyrir að hún hafi efnt leigusamninginn að öllu leyti. Hún hafi skilið við herbergið 31. mars 2019 í fullkomnu ástandi. Þá hafi hún einnig látið varnaraðila vita af flutningnum meira en einum mánuði áður í samræmi við leigusamninginn. Varnaraðili hafi brotið á einkalífi sóknaraðila og notað persónulega muni hennar án samþykkis og heimtað að hún myndi borga fyrr en samkvæmt leigusamningi. Hún hafi því neyðst til að flytja út. Hún hafi einungis bráðabirgðasamning í höndum þar sem varnaraðili hafi hafnað því að undirrita leigusamning. Sóknaraðili hafi ítrekað óskað eftir endurgreiðslu tryggingarfjárins en varnaraðili neitað að endurgreiða það.

III. Niðurstaða            

Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir kærunefnd og verður því úrlausn málsins byggð á þeim gögnum og sjónarmiðum sem sóknaraðili hefur lagt fyrir nefndina.

Samkvæmt rafrænum samskiptum aðila og öðrum gögnum málsins millifærði sóknaraðili tryggingarfé að fjárhæð 200.000 kr. inn á bankareikning varnaraðila 26. nóvember 2018.

Í 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, nr. 36/1994, segir að leigusali megi ekki ráðstafa tryggingarfé eða taka af því án samþykkis leigjanda nema fyrir liggi endanleg niðurstaða um bótaskyldu leigjanda. Þó er leigusala jafnan heimilt að ráðstafa tryggingarfénu til greiðslu á vangoldinni leigu, bæði á leigutímanum og við lok hans. Í 4. mgr. sömu lagagreinar segir að leigusali skuli svo fljótt sem verða má og eigi síðar en innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðis gera leigjanda skriflega grein fyrir því hvort hann geri kröfu í tryggingarfé samkvæmt 4. tölul. 1. mgr. eða hefur uppi áskilnað um það, sbr. einnig 1. mgr. 64. laganna. Ákvæði 5. mgr. kveður á um að geri leigusali kröfu í tryggingarféð innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðisins samkvæmt 4. mgr. skal leigjandi tilkynna leigusala skriflega hvort hann hafnar eða fellst á kröfuna innan fjögurra vikna frá móttöku kröfunnar. Jafnframt segir að hafni leigjandi kröfu leigusala beri honum að vísa ágreiningi um bótaskyldu leigjanda til kærunefndar húsamála eða höfða mál um bótaskyldu hans innan fjögurra vikna frá þeim degi er leigjandi hafnaði kröfunni, ella skuli hann skila leigjanda tryggingarfénu ásamt vöxtum án ástæðulauss dráttar. 

Leigutíma lauk 31. mars 2019 og skilaði sóknaraðili hinu leigða til varnaraðila þann dag. Með rafrænum skilaboðum til varnaraðila 1. apríl 2019 óskaði sóknaraðili eftir endurgreiðslu tryggingarfjárins. Af rafrænum samskiptum aðila verður ráðið að varnaraðili hafi ætlað að endurgreiða tryggingarféð um leið og hún gæti en ekki verður ráðið að hún hafi gert skriflega kröfu í tryggingarféð innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðisins, sbr. 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga. Ber varnaraðila þegar af þeirri ástæðu að skila sóknaraðila tryggingarfénu ásamt vöxtum, sbr. einnig 4. tölul. 1. mgr. sömu lagagreinar, frá þeim tíma sem tryggingin var lögð fram og dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá 29. apríl 2019, sbr. einnig 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga. 

Ákvæði 5. mgr. 85. gr. húsaleigulaga, sbr. lög nr. 63/2016, kveður á um að úrskurðir kærunefndar séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður var kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 7. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.

 


 

ÚRSKURÐARORÐ:

Varnaraðila ber að endurgreiða sóknaraðila tryggingarfé að fjárhæð 200.000 kr. ásamt vöxtum skv. 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, nr. 36/1994, frá 26. nóvember 2018 til 29. apríl 2019 en með dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags.

 

Reykjavík, 4. júlí 2019

 

 

Auður Björg Jónsdóttir

 

 

Valtýr Sigurðsson                                          Eyþór Rafn Þórhallsson

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum