Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 41/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 12. febrúar 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 41/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU18120060

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 21. desember 2018 kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 3. desember 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.Þess er krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar, í fyrsta lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 1. mgr. 42. gr. laganna og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, og í öðru lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 9. október 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 9. október 2018, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og að hann nyti þar alþjóðlegrar verndar. Þá framvísaði kærandi grísku flóttamannavegabréfi með gildistíma til 7. júní 2021 og grísku dvalarleyfisskírteini sem gaf til kynna að kærandi væri með gilt dvalarleyfi þar í landi til 26. janúar 2019. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 1. nóvember 2018, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 3. desember 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 11. desember 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 21. desember 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 11. janúar 2019 ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari gögn frá kæranda þann 25. janúar 2019.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-liður 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda vísar hann til endurrita af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun þar sem fram komi að hann hafi ekki fengið neina fjárhagsaðstoð frá grískum stjórnvöldum, ekki fengið húsnæði eða aðstoð til að greiða af húsnæði. Þá hafi hann ekki haft tækifæri til að fara í skóla til þess að læra grísku. Kveður kærandi að heilbrigðiskerfið í Grikklandi sé mjög bágborið auk þess sem hann hafi einu sinni þurft að leita til tannlæknis og þá neyðst til að borga kostnaðinn sjálfur. Kærandi telur að ástandið í Grikklandi sé ekki öruggt, […] séu drepnir þar í landi án þess að lögreglan rannsaki morðin og sé hann hræddur af þeim sökum. Kærandi bendir á að dvalarleyfi hans í Grikklandi renni út í janúar 2019 og að það muni reynast erfitt fyrir sig að fá framlengingu vegna fjölda flóttamanna þar í landi. Fái hann neitun muni hann þurfa að borga fyrir aðstoð lögfræðings til þess að kæra synjunina sem hann hafi ekki efni á. Þá greini kærandi frá því að hann eigi við vandamál að stríða í ristli sem hann hafi glímt við frá unga aldri. Þá finni kærandi fyrir einangrun og þunglyndi, honum finnist eins og hann sé að kafna og hann eigi erfitt með að tjá tilfinningar sínar.

Í greinargerð kæranda gerir hann almenna grein fyrir aðstæðum, aðbúnaði og réttarstöðu þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og vísar í því sambandi til fjölda skýrslna alþjóðlegra stofnana og frjálsra félagasamtaka. Þar komi m.a. fram að vegna landfræðilegrar legu hafi Grikkland þurft að bera þungann af straumi flóttafólks frá Afríku og Mið-Austurlöndum síðastliðin ár, þrátt fyrir að vera það Evrópuríki sem hafi ef til vill verið einna síst í stakk búið til að taka á móti slíkum fjölda fólks vegna efnahags- og stjórnmálakreppu sem hafi haft mikil áhrif á landið. Í greinargerð vísar kærandi m.a. til þess að einstaklingar sem bíði endurnýjunar á dvalarleyfi hafi lent í erfiðleikum með að fá aðgang að þjónustu, t.d. á vegum félagsmálayfirvalda. Þá séu mjög ströng skilyrði sett fyrir langtímadvalarleyfi í Grikklandi.

Kærandi gerir ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans. Í fyrsta lagi telur kærandi að honum muni ekki standa til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta eða aðgangur að húsnæði þrátt fyrir fullyrðingar stofnunarinnar þess efnis. Í öðru lagi gerir kærandi athugasemd við þá ályktun stofnunarinnar að auðvelt muni vera fyrir hann að endurnýja dvalarleyfi sitt í Grikklandi enda geti það verið vandkvæðum bundið. Þá gerir kærandi í þriðja lagi athugasemd við þá staðhæfingu stofnunarinnar að misræmi hafi verið í frásögn hans hjá stofnuninni. […]. Þá gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar á viðkvæmri stöðu hans. Kærandi telur að í ljósi þess að hann hafi orðið vitni að stríðsátökum í heimaríki og glími við andlega og líkamlega erfiðleika sé hann einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Kröfu sína um efnismeðferð byggir kærandi í fyrsta lagi á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann njóti verndar 1. mgr. 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laganna. Kærandi bendi á að íslenska ríkið sé bundið af grundvallarreglunni um non-refoulement þar sem lagt sé bann við því að senda einstakling þangað sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu. Kærandi telur að aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð. Þá telur kærandi að hann muni standa frammi fyrir raunverulegri hættu á því að verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem lögfestur var hér á landi með lögum nr. 62/1992. Þá bendir kærandi á að samkvæmt áralangri stjórnsýsluframkvæmd hafi íslensk stjórnvöld ekki sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eða síðan í október 2010. Þrátt fyrir að kærandi sé með stöðu flóttamanns þar í landi beri heimildir með sér að staða einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi sé síður en svo betri en staða umsækjenda um alþjóðlega vernd. Vísar kærandi auk þess til niðurstöðu Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá því í nóvember 2017 í máli O.Y.K.A. gegn Danmörku. Þar hafi nefndin komist að þeirri niðurstöðu að brottvísun fylgdarlauss barns, sem veitt hafði verið alþjóðlega vernd í Grikklandi, hafi verið ólögmæt. Telji kærandi að þessum sökum að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka mál hans til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kröfu sína um efnismeðferð byggir kærandi í öðru lagi á sérstökum ástæðum í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Líkt og að framan er rakið telur kærandi að hann sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu og því eigi sérstakar ástæður við í máli hans. Til stuðnings kröfu sinni vísar kærandi m.a. til lögskýringargagna að baki 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og breytingarlaga nr. 81/2017 sem breyttu lögum um útlendinga. Þá vísar kærandi til úrskurða kærunefndar útlendingamála og telur að þeir gefi til kynna að stjórnvöld þurfi, við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi, að kanna hvort kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki, annað hvort vegna einstaklingsbundinna aðstæðna eða vegna almennra aðstæðna í viðtökuríki. Með vísan til lögskýringargagna bendir kærandi þá á að sú staðreynd að kærandi megi eiga von á því að vera mismunað í viðtökuríki, vegna kynþáttar eða kyns, geti gert það að verkum að fyrir hendi séu sérstakar ástæður. Kærandi vísar til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. breytingarreglugerð nr. 276/2018, og bendir á að mismunun í viðtökuríki geti m.a. falið í sér að viðkomandi sé útilokaður frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu og atvinnuþátttöku á grundvelli kynþáttar eða kyns sem geri það að verkum að staða hans yrði verulega síðri en staða almennings. Kærandi vísar m.a. til úrskurðar kærunefndar nr. 550/2017 og 393/2018 en í þeim seinni hafi verið komist að þeirri niðurstöðu að taka til efnismeðferðar umsókn fjölskyldu með alþjóðlega vernd í Grikklandi, sem metin hafði verið í sérstaklega viðkvæmri stöðu, til efnismeðferðar m.a. á þeim grundvelli að aðstæður sem biðu þeirra í Grikklandi yrðu verulega síðri en staða almennings þar í landi, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi kveður að uppruni hans geri hann berskjaldaðan fyrir árásum í viðtökuríki auk þess sem hann geti hvorki treyst á heilbrigðiskerfið né hafi hann rétt til félagslegrar aðstoðar. Þá hafi hann átt erfitt uppdráttar í viðtökuríki og fullvíst að hann muni verða fyrir mismunun verði honum gert að snúa aftur, ekki síst í ljósi aðstæðna einstaklinga sem bíði endurnýjunar dvalarleyfis.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 26. janúar 2016 og hafði gilt dvalarleyfi þar í landi til 26. janúar 2019. Af gögnum málsins verður ráðið að alþjóðleg vernd kæranda haldi áfram að vera gild þótt dvalarleyfi hans renni út en að sækja þurfi sérstaklega um endurnýjun á dvalarleyfum. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […] einstæður og barnlaus karlmaður. Í endurriti af viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun kemur m.a. fram að hann sé í vandræðum með ristilinn vegna meltingarvandamála auk þess sem að kærandi hafi fundið fyrir þunglyndi og eigi í erfiðleikum með að tjá sig um tilfinningar. Þá kvaðst kærandi ekki upplifa mikil þunglyndiseinkenni. Í gögnum um heilsufar kæranda kemur m.a. fram að honum líði almennt vel en að hann glími við magaverki og sé með bakflæði frá maga til koks. Þá hafi hann fengið lyf við magaveikindum sínum. Í gögnunum kemur jafnframt fram að kærandi þurfi ekki á meðferð sálfræðings að halda.

Það er mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. framlagðar komunótur, beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé svo alvarlegt að hann teljist í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018);
  • 2017 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 20. apríl 2018);
  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018);• Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018);• UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);• Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017) og
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016).

Af framangreindum gögnum má sjá að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst nú jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Jafnframt eru til staðar frjáls félagasamtök sem aðstoða þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi við að kynna sér réttindi sín.

Þá eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að aðbúnaður í fangelsum og varðhaldsmiðstöðvum sé víða ekki fullnægjandi. Klefar séu yfirfullir, óþrifnaður sé mikill og aðgengi að heilbrigðisþjónustu takmarkað. Einnig kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga.

Samkvæmt skýrslu gagnagrunns Evrópuráðsins um flóttamenn og landflótta einstaklinga fá einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi útgefið dvalarleyfi til þriggja ára. Handhafar dvalarleyfis skulu sækja um endurnýjun að minnsta kosti mánuði áður en það rennur út en venjulega tekur um tvo til sex mánuði að fá endurnýjun. Þrátt fyrir að umsókn um endurnýjun dvalarleyfis berist of seint bera gögn ekki með sér að slíkt eitt og sér hafi í för með sér að umsókninni verði synjað. Við endurnýjun dvalarleyfis fer fram skoðun á sakaskrá einstaklingsins auk þess sem lagt er mat á hvort breyting hafi orðið á stöðu hans. Ef dvalarleyfi rennur út á meðan einstaklingur bíður eftir endurnýjun á hann rétt á að fá útgefið vottorð sem gefur til kynna að hann hafi sótt um endurnýjun. Vottorðið veitir einstaklingnum sama rétt og gilt dvalarleyfi veitir en þess eru þó dæmi að handhafar slíks vottorðs hafi átt í erfiðleikum með að nálgast tiltekin félagsleg réttindi eins og fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir að aðstæður hans í Grikklandi, m.a. varðandi húsnæði, félagslega þjónustu og aðbúnað, séu þess eðlis að flutningur hans til Grikklands myndi fela í sér brot á grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Hefur kærandi m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður eigi við í máli hans þar sem hann verði fyrir mismunun í Grikklandi og staða hans þar sé verulega síðri en almennings. Þá sé hann í viðkvæmri stöðu og skortur sé á viðhlítandi heilbrigðisþjónustu, og annarri félagslegri þjónustu, honum til handa í Grikklandi. Kærandi hafi einnig bent á erfiða stöðu sína þar sem hann standi frammi fyrir endurnýjun dvalarleyfis.

Þrátt fyrir ýmsar aðgangshindranir hefur kærandi heimild til að stunda atvinnu í Grikklandi og á rétt á félagslegri aðstoð til jafns við gríska ríkisborgara. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda, verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögreglu eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Kærunefnd áréttar að framangreindar skýrslur um aðstæður í Grikklandi benda eindregið til þess að kærandi eigi möguleika á að fá endurnýjun á dvalarleyfi sínu enda nýtur hann alþjóðlegrar verndar í Grikklandi. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Af framburði kæranda og framlögðum gögnum frá Grikklandi, svo og gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður þar, verður ráðið að kærandi eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegum lyfjum. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna. Því telur kærunefnd gögn málsins ekki benda til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017 frá 10. október 2017. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kæranda í framangreindum úrskurði vegna þess að ekki er um að ræða sama viðtökuríki. Þá tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 393/2018 frá 27. september 2018. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í úrskurði nr. 393/2018 í ljósi einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda, einkum þar sem um var að ræða fjölskyldu með börn auk þess sem konan var barnshafandi.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 1. nóvember 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 9. október 2018.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda auk þess sem gerð er athugasemd við lagastoð 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skorti ekki lagastoð. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Kærandi kveðst hafa komið hingað til lands þann 7. október 2018. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 9. október 2018. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

Árni Helgason                                                                  Þorbjörg Inga Jónsdóttir  


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum