Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 66/2018 Úrskurður 20. september 2018

Mál nr. 66/2018                    Aðlögun eiginnafns: Ísabel

 

 

 

Hinn 20. september 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 66/2018 en erindið barst nefndinni 13. ágúst.

Með bréfi Þjóðskrár, dags. 13. ágúst 2018, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni xxx og zzz um að dóttur þeirra yrði heimilað að breyta rithætti fyrra eiginnafns hennar úr Isabelle í Ísabel svo nafnið verði lagað að íslensku máli.

Ekkert er í lögum um mannanöfn, nr. 45/1996, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ísabel er samþykkt.

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum