Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtbo%C3%B0sm%C3%A1la

Mál nr. 24/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 2. desember 2019
í máli nr. 24/2019:
Almenna umhverfisþjónustan ehf.
gegn
Grundarfjarðarbæ og
Þ. G. Þorkelssyni verktaka ehf.


Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 6. ágúst 2019 kærði Almenna umhverfisþjónustan ehf. innkaup Grundafjarðarbæjar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) á verki auðkennt „Steypt gata við G. Run – milli Nesvegar og Sólvalla“. Skilja verður kæru svo að þess sé krafist að sú ákvörðun varnaraðila að ganga til samninga við Þ.G. Þorkelsson verktaka ehf. um verkið sé ógild og að samið verði við kæranda. Auk þess er krafist málskostnaðar.
Varnaraðilum var kynnt kæran og gefin kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerðum 13. og 29. ágúst 2019 krafðist varnaraðili þess að öllum kröfum kæranda yrði vísað frá eða hafnað. Kærandi skilaði andsvörum móteknum 24. september 2019. Þ.G. Þorkelsson verktaki ehf. hefur ekki látið málið til sín taka.
Með ákvörðun kærunefndar útboðsmála 15. ágúst 2019 var hafnað þeirri kröfu kæranda að samningsgerð um framangreint verk yrði stöðvað um stundarsakir.

I

Í júní 2019 kveðst varnaraðili hafa framkvæmt verðfyrirspurn þar sem óskað var eftir tilboðum í ofangreint verk frá tveimur aðilum, kæranda og Þ.G. Þorkelssyni verktaka ehf. Verkið fólst í í yfirborðsfrágangi götu á milli Nesvegar og Sólvalla í Grundarfjarðarbæ, þ.e. steypu yfirborðs og gerð gagnstéttar meðfram götunni. Samkvæmt kostnaðaráætlun sem virðist hafa verið gerð í september 2018 var gert ráð fyrir að kostnaður við verkið myndi nema ríflega 23 milljónum króna. Nánar var fjallað um fyrirkomulag framkvæmda í verklýsingu sem hafði jafnframt að geyma magnskrá og teikningar. Af fundargerð opnunarfundar 4. júlí 2019 verður ráðið að tilboð hafi borist frá báðum aðilum. Var tilboð kæranda að fjárhæð 15.715.195 krónur en tilboð Þ.G. Þorkelssonar verktaka ehf. að fjárhæð 15.296.080 krónur. Fyrir liggur að fyrirsvarsmanni Þ.G. Þorkelssonar verktaka ehf. var gefið færi á því að bæta magnskrá við tilboð sitt eftir opnun tilboða. Hinn 5. júlí 2019 var bjóðendum sendur tölvupóstur frá ráðgjafa varnaraðila þar sem fram kom að farið hefði verið yfir bæði tilboðin og væru þau bæði talin fullgild. Lagt var til að samið yrði við lægstbjóðanda. Þá liggur fyrir að gerður var verksamningur um verkið milli varnaraðila og Þ.G. Þorkelssonar verktaka ehf. 10. júlí 2019. Að sögn varnaraðila var fyrirkomulagi verksins breytt eftir gerð samnings í tveimur tilteknum atriðum.

II

Kærandi byggir á því að fyrirsvarsmanni Þ.G. Þorkelssonar verktaka ehf. hafi verið leyft, eftir opnun tilboða, að skila frekari gögnum sem hefðu átt að fylgja tilboði hans þegar við opnun þess. Jafnframt er byggt á því að verklagi hafi verið breytt í tilteknum atriðum frá því sem gert hafi verið ráð fyrir í verklýsingu. Þannig hafi ekki verið fylgt verklýsingu varðandi jöfnunarlag og járnabendingu. Þá hafi verið gengið ómálefnalega langt í gæðakröfum í verklýsingu með því að gera kröfu um að múrarameistari með tilskilin leyfi frá Mannvirkjastofnun skyldi hafa yfirumsjón með útlögn og frágangi steypu. Ekki sé óeðlilegt að gera kröfu um múrarameistara, en of langt sé gengið að gera kröfu um að hann skuli vera með leyfi frá Mannvirkjastofnun. Þá byggir kærandi á því að varnaraðili hafi kosið að fá tilboð í verkið með vönduðum verklýsingum í útboði og þar með gildi lög nr. 120/2016 um opinber innkaup um innkaupin. Mikilvægt sé að bjóðendur sitji við sama borð og farið sé eftir þeim gögnum sem fyrir liggi hverju sinni.

III

Varnaraðili byggir á því að vísa eigi máli þessu frá kærunefnd útboðsmála þar sem um innkaup hafi verið að ræða undir viðmiðunarfjárhæðum vegna útboðsskyldu sem fram komi í lögum nr. 120/2016 um opinber innkaup. Þá sé kæra fram komin að liðnum 20 daga kærufresti 1. mgr. 106. gr. sömu laga, þar sem kæranda hafi verið ljóst 5. júlí 2019 að varnaraðili hygðist ganga til samninga við Þ.G. Þorkelsson verktaka ehf. en kæra hafi fyrst verið móttekin 6. ágúst 2019. Þá byggir kærandi á því að ekki hafi verið brotið gegn lögum um opinber innkaup, verði talið að þau hafi gilt um hin kærðu innkaup. Gætt hafi verið jafnræðis, meðalhófs og gagnsæis. Þá hafi einungis verið heimilaðar óverulegar breytingar á járnabendingu frá því sem kveðið hafi verið á um í verklýsingu auk þess sem hæfniskröfur hafi verið eðlilegar og málefnalegar.

IV

Í máli þessu verður að miða við að varnaraðili hafi stefnt að gerð verksamnings í skilningi 2. mgr. 4. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Samkvæmt 1. mgr. 23. gr. sömu laga er viðmiðunarfjárhæð verksamninga vegna útboðskyldu á Íslandi 49 milljónir króna. Fyrir liggur að kostnaðaráætlun vegna framangreinds verks nam ríflega 23 milljónum króna, og tvö tilboð bárust að fjárhæð ríflega 15 milljónir króna. Ekki var því skylt að bjóða út umrædd innkaup í samræmi við þau innkaupaferli sem mælt er fyrir í lögunum. Samkvæmt 2. mgr. 103. gr. laganna er hlutverk kærunefndar útboðsmála að leysa úr kærum fyrirtækja vegna ætlaðra brota á lögunum og reglum settum samkvæmt þeim. Fellur þetta mál því ekki undir valdsvið kærunefndar útboðsmála. Verður máli þessu því vísað frá nefndinni. Málskostnaður fellur niður.

Úrskurðarorð:

Kröfum kæranda, Almennu umhverfisþjónustunnar ehf., er vísað frá kærunefnd útboðsmála.
Málskostnaður fellur niður.


Reykjavík, 2. desember 2019.

Sandra Baldvinsdóttir
Auður Finnbogadóttir
Hildur Briem


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum