Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 49/2017 Úrskurður 22. september 2017

Mál nr. 49/2017                     Eiginnafn: Berghild

 


 

Hinn 22. september 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 49/2017 en erindið barst nefndinni 18. september.

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

Í máli þessu reynir á skilyrði nr. tvö hér að ofan. Í athugasemdum við 5. gr. í frumvarpi, sem varð að lögum nr. 45/1996, segir að íslenskt málkerfi sé samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli. Þarna segir að skilyrðinu sé einkum ætlað að koma í veg fyrir að rótgrónum nöfnum sé breytt til horfs sem stríðir gegn hefð þeirra. Nöfn eins og Guðmund og Þorstein (í nefnifalli) eru því óheimil. Á sama hátt stríðir nafnið Berghild gegn hefð nafnsins Berghildur og er því ekki mögulegt að fallast á það.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Berghild er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum