Hoppa yfir valmynd

680/2017. Úrskurður frá 26. apríl 2017

Úrskurður

Hinn 26. apríl 2017 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 680/2017 í máli ÚNU 16110003.  

Kæra og málsatvik

Með erindi, dags. 11. nóvember 2016, kærði A, blaðamaður, synjun Kirkjuráðs á beiðni um aðgang að starfslokasamningi Kirkjuráðs við fyrrverandi framkvæmdastjóra þess. Í kæru krefst kærandi þess að fá aðgang að starfslokasamningnum.  

Málsmeðferð

Kæru kæranda var upphaflega beint að Biskupsstofu. Með bréfi dags. 14. nóvember 2016 var Biskupsstofu kynnt kæran og veittur frestur til að koma að frekari rökstuðningi fyrir ákvörðuninni. Jafnframt var þess óskað að úrskurðarnefndinni yrði látið í té afrit af þeim gögnum sem kæran lyti að.  

Í kjölfarið barst nefndinni bréf frá Kirkjuráði, dags. 30. desember 2016, þar sem fram kom að Biskupsstofa væri ekki réttur aðili að málinu. Starfssamband starfsmannsins sem málið snúist um hafi verið við Kirkjumálasjóð en Kirkjuráð fari með stjórn hans. Kirkjuráð áréttaði að gögnin sem kærandi krefst aðgangs að varði starfssamband fyrrum framkvæmdastjóra ráðsins í skilningi 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Þau séu því undanþegin upplýsingarétti skv. 5. tölulið 6. gr. laganna. Jafnframt vísaði Kirkjuráð til 9. gr. upplýsingalaga. Upplýsingarnar sem fram koma í gögnunum varði mikilvæg einkamálefni þess starfsmanns sem í hlut á, sem sanngjarnt sé að fari leynt.  

Niðurstaða

1.

Mál þetta varðar rétt fjölmiðils til aðgangs að starfslokasamningi sem Kirkjuráð gerði við fráfarandi framkvæmdastjóra þann 23. september 2016. Samningurinn, sem er í átta liðum auk formála, kveður á um réttindi og skyldur aðila tímabilið 20. september 2016 til 30. september 2017.  

2.

Í hinni kærðu ákvörðun er byggt á því að þar sem umbeðin gögn varði starfslok framkvæmdastjóra Kirkjuráðs falli þau undir 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga og séu því undanþegin upplýsingarétti skv. 5. tl. 6. gr. laganna. Þá var vísað til þess að upplýsingarnar sem fram koma í umbeðnum gögnum varði mikilvæg einkamálefni þess starfsmanns sem í hlut á, sem sanngjarnt sé að leynt fari.  

Í 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga kemur fram að sé þess óskað sé skylt að veita almenningi aðgang að fyrirliggjandi gögnum sem varði tiltekið mál, með þeim takmörkunum sem greinir í 6.-10. gr. laganna. Þá kveður 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga á um að réttur almennings til aðgangs að gögnum taki almennt ekki til upplýsinga um þau málefni starfsmanna þeirra aðila sem falla undir ákvæði laganna, sem lúta að umsóknum um störf, framgang í starfi eða starfssambandið að öðru leyti. Í annarri málsgrein sama ákvæðis eru síðan ákveðnar og skýrt afmarkaðar undanþágur frá þessari reglu vegna starfsmanna stjórnvalda. Þar er m.a. kveðið á um að þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 7. gr. sé skylt að veita upplýsingar um föst launakjör annarra starfsmanna en æðstu stjórnenda, sbr. 3. tl. annarrar málsgreinar. Í athugasemdum með frumvarpi því sem varð að 7. gr. upplýsingalaga kemur fram að með föstum launakjörum sé „m.a. átt við ráðningarsamninga og aðrar ákvarðanir eða samninga sem kunna að liggja fyrir um föst laun starfsmanns. Rétturinn til aðgangs nær þannig til gagna sem geyma upplýsingar um allar fastar greiðslur sem starfsmaðurinn á rétt til.“  

3.

Úrskurðarnefndin hefur kynnt sér efni starfslokasamnings Kirkjuráðs við fyrrverandi framkvæmdastjóra þess. Lýtur efni hans að því hvernig starfslokum skuli háttað ásamt upplýsingum um fyrirkomulag fastra launagreiðslna. Því er um að ræða upplýsingar sem almenningur á rétt til aðgangs að samkvæmt því sem rakið var hér að framan, sbr. einnig úrskurði úrskurðarnefndarinnar nr. 632/2016 og A-303/2009. 

Í ljósi framangreinds er það niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál að Kirkjuráði beri að afhenda kæranda starfslokasamning Kirkjuráðs við fyrrverandi framkvæmdastjóra ráðsins.  

Úrskurðarorð:

Kirkjuráði ber að veita kæranda, A, aðgang að starfslokasamningi sem gerður var við fráfarandi framkvæmdastjóra þann 20. september 2016.  

 

Hafsteinn Þór Hauksson

formaður 

 

Sigurveig Jónsdóttir                                                                        Friðgeir Björnsson                                                                           


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum