Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 54/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 54/2016

Fimmtudaginn 28. apríl 2016

A

gegn

Reykjavíkurborg


Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 2. febrúar 2016, kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun Reykjavíkurbogar, dags. 28. janúar 2016, á umsókn hans um sérstakar húsaleigubætur.

I. Málavextir og málsmeðferð

Kærandi sótti um sérstakar húsaleigubætur hjá Reykjavíkurborg með umsókn, dags. 4. maí 2015. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 4. nóvember 2015, með þeim rökum að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði d-liðar 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík. Kærandi áfrýjaði synjuninni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 27. janúar 2016 og staðfesti synjunina.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 2. febrúar 2016. Með bréfi, dags. 8. febrúar 2016, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar þar sem meðal annars kæmi fram rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 22. febrúar 2016. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 26. febrúar 2016, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II. Málsástæður kæranda

Kærandi greinir frá því að hann ráði ekki við að greiða húsaleigu af þeim tekjum sem hann hafi. Kærandi gerir ekki kröfur í málinu en ráða má af kæru að hann óski eftir að fá greiddar sérstakar húsaleigubætur frá Reykjavíkurborg.

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er greint frá aðstæðum kæranda. Vísað er til þess að í 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur séu sett fram tiltekin skilyrði sem uppfylla þurfi til að umsókn um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur taki gildi. Í d-lið sé kveðið á um að umsækjandi þurfi að skora að lágmarki fjögur stig vegna félagslegra aðstæðna sinna, tvö stig vegna húsnæðisaðstöðu og tvö vegna félagslegs vanda eða sérstakra aðstæðna barna. Kærandi hafi fengið fjögur stig vegna félagslegs vanda en ekki nein stig vegna húsnæðisstöðu þar sem hann sé búsettur í öruggu húsnæði. Því hafi verið metið svo að kærandi væri hvorki í þörf fyrir húsnæði né að húsnæðisaðstæður væru verulega erfiðar. Skilyrði d-liðar 4. gr. reglnanna hafi því ekki verið uppfyllt þar sem lágmarksstigafjölda vegna félagslegra aðstæðna hafi ekki verið náð.

IV. Niðurstaða

Í máli þessu er ágreiningur um hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um sérstakar húsaleigubætur. Umsókn kæranda var synjað þar sem talið var að kærandi uppfyllti ekki skilyrði d-liðar 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík.

Í 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík er kveðið á um skilyrði fyrir því að umsókn verði metin gild og þarf umsækjandi að uppfylla öll skilyrði sem fram koma í a–e-liðum 1. mgr. ákvæðisins. Í d-lið 4. gr. framangreindra reglna Reykjavíkurborgar er gert að skilyrði að umsækjandi skori að lágmarki fjögur stig vegna félagslegra aðstæðna sinna, þ.e. tvö stig vegna húsnæðisstöðu og tvö stig vegna félagslegs vanda eða sérstakra aðstæðna barna, sbr. matsviðmið sem fylgir reglunum. Samkvæmt gögnum málsins var kærandi ekki metinn til neinna stiga vegna húsnæðisstöðu þar sem talið var að hann væri hvorki í þörf fyrir húsnæði né að húsnæðisaðstæður hans væru verulega erfiðar. Í lið 5 a í matsviðmiði sem fylgir reglunum kemur fram að veitt sé eitt stig ef umsækjandi þurfi á húsnæði að halda, tvö stig ef húsnæðisaðstæður séu verulega erfiðar og þrjú stig ef vart sé mögulegt að bíða eftir húsnæði. Fyrir liggur að kærandi er með húsaleigusamning við Brynju, hússjóð Öryrkjabandalags Íslands, og hagstæða leigu. Verður því hvorki séð að húsnæðismissir sé yfirvofandi né að um óöruggt húsnæði sé að ræða. Úrskurðarnefndin telur því ekki ástæðu til að gera athugasemd við að húsnæðisaðstæður kæranda hafi ekki verið metnar til stiga, enda verður að telja ljóst að kærandi búi í öruggu leiguhúsnæði.

Í 5. gr. reglnanna er kveðið á um undanþágur frá skilyrðum 4. gr. um lögheimili og/eða tekjuviðmið en ekki er kveðið á um undanþágu frá viðmiðum um stig vegna húsnæðisstöðu og félagslegs vanda. Þar sem kærandi uppfyllir ekki skilyrði d-liðar 4. gr. reglnanna er það mat úrskurðarnefndarinnar að undanþáguákvæði 5. gr. komi ekki til skoðunar í málinu. Það er því niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að staðfesta hina kærðu ákvörðun.


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 28. janúar 2016, um synjun á umsókn A, um sérstakar húsaleigubætur er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

                                                                    

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum