Hoppa yfir valmynd

Synjun á greiðslu námsstyrks

 

Ár 2007, miðvikudaginn 6. júní, var kveðinn upp í menntamálaráðuneytinu svofelldur

 

ÚRSKURÐUR

 

I. Kröfur aðila.

 

Með bréfi, dags. 6. febrúar sl., kærði A, (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun námsstyrkjanefndar (hér eftir nefnd kærði), dags. 28. nóvember sl., um að synja umsókn hennar um greiðslu námsstyrks á haustönn 2006 skv. lögum um námsstyrki, nr. 79/2003 og reglugerð um námsstyrki nr. 692/2003, með áorðnum breytingum.

 

Af hálfu kæranda er þess krafist að ákvörðun kærða verði felld úr gildi og henni verði úrskurðaður námsstyrkur á haustönn 2006.

 

Af hálfu kærða er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði staðfest, enda sé hún í samræmi við lög og reglur.

 

II. Málsatvik.

 

Kærandi, sem hefur skráð lögheimili á Y og stundar nám við skóla X, sótti um akstursstyrk skv. lögum um námsstyrki og reglugerð um námsstyrki fyrir haustönn 2006. Með bréfi, dags. 21. janúar sl., hafnaði Lánasjóður íslenskra námsmanna f.h. kærða umsókninni á þeim grundvelli að ekki hefði verið sýnt fram á námið færi fram fjarri fjölskyldu, sbr. c. lið 2. gr. reglugerðar um námsstyrki. Með bréfi kæranda til kærða, dags. 24. nóvember sl., var óskað eftir formlegri ákvörðun og rökstuðningi kærða. Í bréfi kærða, dags. 28. nóvember sl., var umsókn kæranda synjað með þeim rökum að ekki hefði verið sýnt fram á að sambýlismaður kæranda, sem jafnframt á lögheimili á sama stað og kærandi, væri fjölskylda hennar í skilningi c. liðar 2. gr. reglugerðar um námsstyrki, enda væri ekki um skráða sambúð að ræða sem staðið hefði lengur en eitt ár.

 

Með bréfi, dags. 6. febrúar sl., skaut kærandi ákvörðun kærða til menntamálaráðuneytisins.

 

III. Málsmeðferð.

 

Stjórnsýslukæra kæranda var móttekin 12. febrúar sl. Með bréfi, dags. 13. febrúar sl., leitaði ráðuneytið umsagnar kærða um kæruna. Umsögn kærða barst ráðuneytinu 2. mars sl. Með bréfi ráðuneytisins, dags. 13. apríl sl., voru athugasemdir kærða kynntar kæranda og henni gefinn kostur á að koma að frekari athugasemdum. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda innan tilsetts frests.

 

IV. Málsástæður og lagarök kæranda.

 

Í erindi kæranda til kærða, dags. 24. nóvember sl., segir að kærandi telji það síst vera minna mál að stunda skóla fjarri heimabyggð, þótt hún sé flutt af heimili foreldra sinna, enda eigi námsstyrkur að renna beint til nemanda skv. 2. mgr. 6. gr. reglugerðar um námsstyrki. Varla sé hægt að ætlast til þess að sambýlismaður kæranda flytji með henni til Z, enda væri það dýrari kostur þar sem hann stundi vinnu sína á Y. Þá segir í bréfinu að reglugerð um námsstyrki mismuni einstaklingum stórlega með því að hygla þeim nemendum sem enn búi hjá fjölskyldu sinni annars vegar og þeim sem hleypt hafi heimdraganum hins vegar.

 

Í stjórnsýslukærunni kemur fram að kærandi hafi stundað nám í tækniteiknun við skóla X frá haustmisseri 2006 en slíkt nám bjóðist ekki á Y. Unnusti og foreldrar kæranda búi á Y, svo og stórfjölskylda kæranda. Af þessum sökum þurfi kærandi að aka daglega á milli Y og Z. Kærandi lýsir þeirri skoðun sinni að óréttlæti sé fólgið í því að ástæða skuli talin til að veita aðeins námsstyrki til nemenda í foreldrahúsum eða til þeirra sem skráðir hafa verið í sambúð í eitt ár eða lengur og því fer kærandi fram á að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og henni veittur námsstyrkur skv. framansögðu.

 

 

V. Málsástæður og lagarök kærða.

 

Í bréfi kærða, dags. 28. nóvember sl., er rakið að kærandi stundi nám við skóla X og aki á milli skráðs sameiginlegs lögheimilis kæranda og unnusta hennar á Y. Þá segir að foreldrar kæranda eigi einnig lögheimili á Y en á öðru heimilisfangi. Í rökstuðningi hinnar kærðu ákvörðunar kemur fram að skilyrði fyrir úthlutun akstursstyrks sé skv. a. lið 6. gr. reglugerðar um námsstyrki að umsækjandi stundi nám fjarri lögheimili sínu og fjölskyldu. Sambúð kæranda og unnusta hennar hafi ekki verið skráð í þjóðskrá og falli því ekki undir framangreint skilyrði reglugerðarinnar.

 

Í greinargerð kærða, dags. 1. mars sl., er því lýst að kærandi sæki skóla frá heimili sínu að xx, Y, en hafi ekki sýnt fram á fjölskyldutengsl við lögheimilið, sbr. skilyrði a. liðar 6. gr. reglugerðar um námsstyrki. Kærandi hafi óskað eftir því að unnusti hennar, B, til heimilis á sama stað og kærandi yrði talinn til fjölskyldu hennar. Á þetta hafi kærði ekki fallist, enda hafi sambúð kæranda og unnusta hennar verið óskráð í þjóðskrá.

 

Þá segir kærði að þýðing fjölskyldu fyrir ákvörðun akstursstyrks sé afgerandi þar sem einstaklingur eigi ekki rétt á námsstyrk án fjölskyldutengsla við lögheimili. Án slíkra tengsla sé litið svo á að kærandi hafi val um búsetu og að búsetan valdi henni ekki fjárhagsbyrði umfram það sem almennt gildi. Hvorki þeir sem búi einir né einstaklingar án fjölskyldubanda við þá sem þeir búa með geti þannig átt rétt á akstursstyrk. Þá bendir kærði á að kærandi búi ekki lengur á sama stað og B þar sem hún hafi flutt heimili sitt til móður sinnar að xx, Y. Kærandi kunni því að eiga rétt á akstursstyrk vegna náms á vorönn 2007.

 

Kærði telur ákvörðun sína í máli þessu vera í samræmi við lög og reglur og fer fram á það að ráðuneytið staðfesti hana.

 

VI. Rökstuðningur niðurstöðu.

 

Gildissvið stjórnsýslulaga og kæruheimild.

Í stjórnsýsluframkvæmd hér á landi hefur ákvörðun stjórnvalds um bætur eða styrk til einstaklings verið talin stjórnvaldsákvörðun í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Af því leiðir að ákvæði stjórnsýslulaga eiga við um slíkar ákvarðanir. Kæra kæranda verður af þeim sökum talin byggjast á almennri kæruheimild samkvæmt 26. gr. stjórnsýslulaga.

 

Samkvæmt 5. gr. laga um námsstyrki skipar menntamálaráðherra fimm manna nefnd, svokallaða námsstyrkjanefnd, sem skal sjá um úthlutun námsstyrkja. Samkvæmt 6. gr. laganna skal nefndin leggja fyrir menntamálaráðherra tillögur um árlegar fjárveitingar í samræmi við markmið laganna.

 

Námsstyrkjanefnd er kærði í máli þessu. Samkvæmt auglýsingu nr. 3/2004 um staðfestingu forseta Íslands á reglugerð um Stjórnarráð Íslands fer menntamálaráðuneytið meðal annars með mál er varða námslán og námsstyrki. Ákvörðun nefndarinnar er því réttilega kærð til menntamálaráðuneytisins og barst hún ráðuneytinu innan kærufrests, sbr. 1. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

 

Um skilyrði laga um námsstyrki, nr. 79/2003.

Í lögum um námsstyrki er mælt fyrir um skilyrði styrkveitinga. Samkvæmt 2. gr. laganna njóta þeir nemendur sem stunda reglubundið framhaldsskólanám hér á landi og verða að dveljast fjarri fjölskyldu sinni vegna námsins réttar til námsstyrkja. Í 2. tölul. 3. gr. laganna segir að skilyrði skólaakstursstyrks sé að nemandi verði að sækja skóla fjarri fjölskyldu sinni og eigi ekki rétt á dvalarstyrk en í 1. tölul. sömu greinar kemur fram að skilyrði dvalarstyrks sé að nemandi verði að vista sig í a.m.k. 30 km fjarlægð frá lögheimili og fjölskyldu vegna námsins. Í 8. gr. laganna segir að menntamálaráðuneytið setji reglugerð er mæli nánar fyrir um hvernig lögin skuli framkvæmd.

 

Reglugerð um námsstyrki, nr. 692/2003.

Menntamálaráðherra hefur mælt nánar fyrir um framkvæmd laganna. Við móttöku framangreindrar stjórnsýslukæru var í gildi reglugerð nr. 692/2003, með síðari breytingum, sem kærði hefur byggt á við úrlausn máls þessa. Samkvæmt 1. gr. reglugerðarinnar eiga nemendur á framhaldsskólastigi sem fullnægja tilgreindum skilyrðum rétt til námsstyrkja til jöfnunar á fjárhagslegum aðstöðumun vegna búsetu svo sem nánar er kveðið á um í reglugerðinni.

 

Í a. lið 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar er mælt fyrir um það skilyrði fyrir úthlutun skólaakstursstyrks að nemandi verði að sækja skóla frá lögheimili sínu og fjölskyldu. Í c. lið 2. gr. reglugerðarinnar er hugtakið fjölskylda skilgreint þannig að með því sé átt við foreldra nemanda, sé þeim til að dreifa - nánar tiltekið kynforeldra, stjúpforeldra, fósturforeldra eða kjörforeldra, en ella ömmur og afa nemanda; maka samkvæmt hjúskap aðila, maka samkvæmt staðfestri samvist eða maka samkvæmt skráðri sambúð í þjóðskrá, hafi skráningin varað lengur en eitt ár; svo og börn nemanda, þ.m.t. kynbörn, stjúpbörn, fósturbörn eða kjörbörn.

 

 

Niðurstaða.

Í máli þessu er deilt um hvort uppfyllt hafi verið skilyrði til þess að unnusti kæranda geti talist til fjölskyldu hennar í skilningi 2. tölul. 3. gr. laga um námsstyrki nr. 79/2003, sbr. c. lið 2. gr. reglugerðar nr. 692/2003, og kærandi hafi þannig uppfyllt skilyrði til að hljóta akstursstyrk með því að þurfa að sækja nám fjarri lögheimili sínu og fjölskyldu, sbr. a. lið 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar.

 

Samkvæmt 1. gr. laga um námsstyrki veitir ríkissjóður námsstyrki til jöfnunar á fjárhagslegum aðstöðumun nemenda í framhaldsskólum að því leyti sem búseta veldur þeim misþungum fjárhagsbyrðum. Með aðstöðumun vegna búsetu er hér átt við að nemandi þurfi að bera aukinn kostnað af því að sækja skóla fjarri fjölskyldu sinni. Í 3. tölul. 2. gr. laganna segir að réttar til námsstyrkja njóti nemendur sem verða að dveljast fjarri fjölskyldu sinni vegna námsins. Í 2. tölul. 3. gr. sömu laga kemur enn fremur fram að skilyrði skólaakstursstyrks sé að nemandi verði að sækja skóla fjarri fjölskyldu sinni. Samkvæmt gögnum málsins höfðu kærandi og unnusti hennar lögheimili á sama stað, að xx, Y en sambúð þeirra var ekki skráð í þjóðskrá.

 

 

Hugtakið fjölskylda er ekki skýrt í lögum um námsstyrki en í því frumvarpi sem varð að lögum nr. 79/2003 er hugtakið skýrt með eftirfarandi hætti:

Hugtakið „fjölskylda“ hefur ekki verið skilgreint í lögum, enda er fyrst og fremst um félagslegt hugtak að ræða. Lög hafa af þeim sökum ekki fjallað um fjölskylduna sem heildstætt hugtak heldur frekar um einstaklinga innan fjölskyldunnar. Vegna sérstaks eðlis þess málaflokks sem hér um ræðir verður þó ekki hjá því komist að skilgreina fjölskylduna nánar í frumvarpinu. Með hugtakinu „fjölskylda“ er átt við foreldra nemanda, nánar tiltekið kynforeldra, kjörforeldra, fósturforeldra og stjúpforeldra, svo og ömmur og afa nemandans; maka samkvæmt hjúskap aðila eða maka samkvæmt staðfestri samvist; sambúðaraðila í óvígðri sambúð og svo börn nemanda, þ.m.t. kynbörn, kjörbörn, stjúpbörn eða fósturbörn.

Samkvæmt framansögðu var það ætlun löggjafans við setningu laga nr. 79/2003 að óvígð sambúð félli undir hugtakið fjölskylda.

 

Eins og staðfest var í nýlegum úrskurði ráðuneytisins í námsstyrkjamáli, uppkveðnum 9. febrúar 2007, er skráning í þjóðskrá skilyrði þess að sambúð uppfylli skilyrði c. liðar 2. gr. reglugerðar nr. 692/2003. Með hliðsjón af framangreindu er það mat ráðuneytisins að gera verði þá lágmarkskröfu til umsækjanda um námsstyrk, sem byggir kröfu sína á sambúð með vísan til c. liðar 2. gr. reglugerðar nr. 692/2003, að sambúðin hafi verið skráð í þjóðskrá. Í máli þessu liggur fyrir að kærandi hafði skráð lögheimili sitt á sama stað og unnusti hennar en ekki tilkynnt sambúðina til þjóðskrár. Því er óhjákvæmilegt að staðfesta hina kærðu ákvörðun eins og nánar greinir í úrskurðarorðum.

 

 

ÚRSKURÐARORÐ:

 

Hin kærða ákvörðun námsstyrkjanefndar, dags. 28. nóvember 2006, um synjun námsstyrks til A á haustönn 2006 er staðfest.

 

 




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum