Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Almannatryggingar

Nr. 215/2019 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 215/2019

Miðvikudaginn 14. ágúst 2019

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eggert Óskarsson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 28. maí 2019, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 27. maí 2019 um að samþykkja umsókn barnsmóður hans um milligöngu um meðlagsgreiðslur frá 23. maí 2019.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með rafrænni umsókn, móttekinni 23. maí 2019, sótti barnsmóðir kæranda um milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins um meðlagsgreiðslur með barni þeirra frá umsóknardegi. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 27. maí 2019, var kæranda tilkynnt um milligöngu stofnunarinnar á meðlagsgreiðslum til barnsmóður hans frá 23. maí 2019. Undir rekstri málsins afturkallaði barnsmóðir kæranda umsókn sína um milligöngu meðlagsgreiðslna með tölvupósti 3. júní 2019 og staðfesti Tryggingastofnun að milliganga greiðslna meðlags yrði stöðvuð frá 1. júlí 2019.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 28. maí 2019. Með bréfi, dagsettu sama dag, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 7. júní 2019, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Af kæru verður ráðið að kærandi geri kröfu um að ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um milligöngu meðlagsgreiðslna til barnsmóður hans verði felld úr gildi.

Í kæru mótmælir kærandi því að barnsmóðir hans sé að fara fram á meðlagsgreiðslur. Frá sambandsslitum hafi barnið dvalið jafn mikið hjá báðum foreldrum, kærandi kaupi föt fyrir barnið, leikföng og aðrar nauðsynjar sem barnið hafi heima hjá þeim og barnsmóðir hans sé með sama fyrirkomulag hjá sér. Nýlega hafi barnsmóðir kæranda sagt að barnið vilji fækka dögum hjá kæranda úr X í X daga en sú breyting hafi ekki enn farið fram. Kærandi telji að barnsmóðir hans sé að reyna að hafa áhrif á barnið með því að sækjast eftir meðlagsgreiðslum frá honum til að bæta sinn fjárhag. Það hafi verið gert munnlegt samkomulag hjá foreldrunum um að barnsmóðir kæranda myndi fá barnabætur með barninu og þeim yrði ráðstafað í leikskólagjöld og síðar meir í frístund. Barnið sé hins vegar hætt í frístund þannig að nú séu engin gjöld sem tilheyri því lengur og þá sé frístundastyrkur notaður til að greiða fyrir tómstundir barnsins.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að kærð sé ákvörðun stofnunarinnar um að verða við beiðni barnsmóður kæranda um að hafa milligöngu um meðlag til hennar með dóttur þeirra frá 23. maí 2019.

Tryggingastofnun hafi tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 27. maí 2019, að stofnunin hefði samþykkt að hafa milligöngu um greiðslu meðlags til barnsmóður hans frá 23. maí 2019 með dóttur þeirra. Tryggingastofnun hafi borist umsókn barnsmóður kæranda 23. maí 2019 um meðlag frá umsóknardegi ásamt staðfestingu á samkomulagi um forsjá, lögheimili og meðlag vegna sambúðarslita frá B, dags. X, þar sem komi fram að kærandi skuli greiða meðlag með dóttur sinni frá X til 18 ára aldurs hennar.

Kveðið sé á um það í 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar að hver sá sem fái úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hafi á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, geti snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama skuli gilda þegar lagt sé fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga.

Í 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar komi fram að Tryggingastofnun sé heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berist stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. ekki við.

Samkvæmt 67. gr. barnalaga sé Tryggingastofnun skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Hlutverk Tryggingastofnunar sé að hafa milligöngu um greiðslu meðlags þegar ákvörðun hafi verið tekin með lögmætum hætti. Ef foreldri leggi fram löggilda meðlagsákvörðun beri Tryggingastofnun samkvæmt 63. gr. laga um almannatryggingar og 67. gr. barnalaga að hafa milligöngu um greiðslu meðlags, allt að ár aftur í tímann. Lög veiti Tryggingastofnun ekki heimild til að taka önnur gögn en talin séu upp í framangreindum ákvæðum til greina við milligöngu um greiðslu meðlags.

Hjá Tryggingastofnun liggi fyrir löggild meðlagsákvörðun, þ.e. staðfesting á samkomulagi um forsjá, lögheimili og meðlag vegna sambúðarslita, dags. X, sem kveði á um meðlagsgreiðslur frá kæranda til barnsmóður hans. Þá liggi fyrir umsókn barnsmóður kæranda um meðlag.

Með vísan til ofangreinds beri Tryggingastofnun skylda til að hafa milligöngu um meðlag samkvæmt lögformlegri meðlagsákvörðun sé þess farið á leit við stofnunina allt að 12 mánuði aftur í tímann. Tryggingastofnun hafi engar heimildir til að virða að vettugi lögbundna skyldu sína til að greiða meðlag samkvæmt hinni lögformlegu meðlagsákvörðun. Tryggingastofnun hafi því borið að hafa milligöngu á meðlagi til barnsmóður kæranda frá þeim tíma sem hún hafi óskað eftir og hafi ekki heimild til að taka til greina það sem kærandi taki fram í kæru sinni.

Þá megi geta þess að barnsmóðir kæranda hafi 3. júní 2019 óskað eftir því við Tryggingastofnun að draga til baka umsókn sína um meðlag og hafi Tryggingastofnun því stöðvað milligöngu meðlagsgreiðslna til hennar frá og með 1. júlí 2019. Kæranda hafi verið sent bréf þess efnis þann 4. júní 2019.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 27. maí 2019 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá 23. maí 2019.

Kveðið er á um greiðsluskyldu Tryggingastofnunar ríkisins í 67. gr. barnalaga nr. 76/2003. Þar segir að Tryggingastofnun ríkisins sé skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur er hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar getur hver sá sem fær úrskurð um meðlag með barni sem hann hefur á framfæri sínu snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags og annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama gildir þegar lagt er fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga.

Samkvæmt framangreindu ber Tryggingastofnun ríkisins að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur berist beiðni þar um frá meðlagsmóttakanda á grundvelli lögformlegrar meðlagsákvörðunar. Fyrir liggur að barnsmóðir kæranda, sem er meðlagsmóttakandi, sótti um milligöngu Tryggingastofnunar um meðlagsgreiðslur með dóttur þeirra með rafrænni umsókn þann 23. maí 2019 frá umsóknardegi til 18 ára aldurs hennar. Stofnunin samþykkti umsóknina á grundvelli staðfestingar B á samkomulagi foreldra um forsjá, lögheimili og meðlag vegna sambúðarslita, dags. X. Samkvæmt samkomulaginu ber kæranda að greiða barnsmóður sinni meðlag til 18 ára aldurs barnsins.

Hlutverk Tryggingastofnunar í tengslum við meðlagsgreiðslur markast af ákvæðum viðeigandi laga. Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar ber stofnuninni lögbundin skylda til að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur sé þess farið á leit við stofnunina í þeim tilvikum þar sem lögformleg meðlagsákvörðun liggur fyrir.

Í kæru kemur fram að barnið búi til jafns hjá kæranda og barnsmóður hans. Með vísan til 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar er það mat úrskurðarnefndar að ekki sé heimilt að synja meðlagsmóttakanda um milligöngu meðlagsgreiðslna þrátt fyrir jafna búsetu barns hjá báðum foreldrum þar sem fyrir liggur löggild meðlagsákvörðun sem kveður á um greiðsluskyldu kæranda. Að því virtu verður hin kærða ákvörðun ekki felld úr gildi með vísan til jafnrar búsetu barnsins hjá báðum foreldrum þess.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 27. maí 2019 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá 23. maí 2019.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 27. maí 2019 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður A, frá 23. maí 2019, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum