Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 99/2014

Mál nr. 99/2014

Fimmtudaginn 22. desember 2016

A

gegn

umboðsmanni skuldara

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Sigríður Ingvarsdóttir formaður, Eggert Óskarsson og Þórhildur Líndal.

Þann 12. september 2014 barst kærunefnd greiðsluaðlögunarmála kæra A. Kærð var ákvörðun umboðsmanns skuldara sem tilkynnt var með bréfi 5. september 2014 þar sem greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda voru felldar niður.

Með bréfi 16. september 2014 óskaði kærunefnd greiðsluaðlögunarmála eftir greinargerð umboðsmanns skuldara sem barst með bréfi 28. nóvember 2014.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi 2. desember 2014 og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Engar frekari athugasemdir bárust.

I. Málsatvik

Kærandi er fæddur 1979. Hann er einhleypur en á X börn með fyrrum sambýliskonu sinni og greiðir meðlag með þeim. Kærandi býr í leiguhúsnæði að B. Hann er [...] og starfar hjá C.

Heildarskuldir kæranda, samkvæmt skuldayfirliti umboðsmanns skuldara frá 8. mars 2013, eru 41.584.312 krónur. Kærandi stofnaði til helstu skuldbindinga árið 2007.

Kærandi rekur fjárhagserfiðleika sína til fasteignakaupa og lágra tekna vegna barneigna og náms.

Kærandi sótti um greiðsluaðlögun hjá Embætti umboðsmanns skuldara 27. apríl 2011 ásamt þáverandi sambýliskonu sinni. Með ákvörðun embættisins 12. desember 2011 var þeim veitt heimild til að leita greiðsluaðlögunar og var umsjónarmaður skipaður með greiðsluaðlögunarumleitunum þeirra 16. desember 2011. Frestun greiðslna hófst þegar umboðsmaður skuldara tók á móti umsókn kæranda um greiðsluaðlögun, samkvæmt bráðabirgðaákvæði nr. II, sbr. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga (lge.).

Kærandi og fyrrum sambýliskona hans slitu samvistir í X. Í kjölfar þess taldi umsjónarmaður þau ekki uppfylla skilyrði 3. mgr. 2. gr. lge. um sameiginlega umsókn hjóna eða einstaklinga í óvígðri sambúð. Með bréfi 7. nóvember 2012 óskaði umsjónarmaður þess að umboðsmaður skuldara mæti umsókn kæranda og fyrrverandi sambýliskonu hans að nýju sem einstaklinga í stað sambúðarfólks.

Kærandi fékk aftur heimild sem einstaklingur til að leita greiðsluaðlögunar með ákvörðun umboðsmanns skuldara 8. mars 2013.

Með bréfi umsjónarmanns til umboðsmanns skuldara 15. júlí 2014 tilkynnti umsjónarmaður að hún teldi að kærandi hefði brugðist skyldum sínum samkvæmt 12. gr. lge. og því ætti að fella greiðsluaðlögunarumleitanir hans niður á grundvelli 1. mgr. 15. gr. lge. Mat umsjónarmanns var að kærandi hefði brotið gegn skyldum sínum samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. með því að leggja ekki til hliðar fjármuni á því tímabili sem frestun greiðslna, svokallað greiðsluskjól, hefði staðið yfir. Í bréfi umsjónarmanns kemur fram að miðað við heildartekjur kæranda ætti hann að hafa getað lagt fyrir tæplega 1.203.224 krónur á tímabili greiðsluskjóls en hann hafi ekkert lagt til hliðar.

Umboðsmaður skuldara sendi kæranda bréf 29. ágúst 2014 þar sem honum var kynnt framkomin tillaga umsjónarmanns um að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir hans á grundvelli a-liðar 1. mgr. 12. gr. lge. Þá var kæranda jafnframt gefinn kostur á að láta álit sitt í ljós innan tiltekins frests og leggja fram frekari gögn áður en tekin yrði ákvörðun um hvort fella skyldi niður heimild hans til greiðsluaðlögunarumleitana, sbr. 1. mgr. 15. gr. lge. Svör kæranda bárust með tölvupósti 1. september 2014 þar sem fram kom að hann hefði ekki lagt fyrir fé á tímabilinu.

Með ákvörðun 5. september 2014 felldi umboðsmaður skuldara í framhaldinu niður greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda með vísan til 15. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi kærir niðurstöðu umboðsmanns skuldara og krefst þess að á það verði látið reyna hvort hann geti greitt tiltekna upphæð í þann tíma sem það taki að vera í greiðsluaðlögun. Skilja verður kæru hans þannig að þess sé krafist að ákvörðun umboðsmanns skuldara verði felld úr gildi.

Kærandi kveðst ekki hafa lagt fé til hliðar á tímabili greiðsluskjóls. Þá telur hann að skuldir sínar hafi líklega hækkað á meðan á greiðsluskjóli hafi staðið og kveðst velta fyrir sér stöðu sinni þurfi hann nú að fara að borga af öllum skuldum sínum, án þess að nokkuð af þeim hafi verið gefið eftir. Einnig velti hann því fyrir sér hvort önnur úrræði séu í boði. Að mati kæranda ætti að vera hægt að láta á það reyna hvort hann geti greitt ákveðna upphæð á mánuði af skuldbindingum sínum, miðað við þann tíma sem ferlið hafi tekið.

III. Sjónarmið umboðsmanns skuldara

Af hálfu umboðsmanns skuldara er vísað til þess að komi fram upplýsingar, sem ætla megi að hindri að greiðsluaðlögun sé heimil á grundvelli lge., skuli umsjónarmaður tilkynna um það til umboðsmanns skuldara sem í kjölfarið taki afstöðu til málsins með rökstuddri ákvörðun.

Í 12. gr. lge. sé fjallað um skyldur skuldara á meðan hann nýtur greiðsluskjóls. Í a-lið 1. mgr. 12. gr. segi að skuldari skuli leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum sínum það fé sem sé umfram það sem hann þurfi til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða.

Greiðsluskjól kæranda hafi staðið yfir frá 27. apríl 2011 eða í 39 mánuði. Vísað er til útreikninga umsjónarmanns þar sem miðað er við 38 mánaða tímabil. Samkvæmt bréfi umsjónarmanns hafi fjárhagur kæranda verið eftirfarandi frá 1. maí 2011 til 30. júní 2014 í krónum:

Tímabilið 1. maí 2011 til 30. júní 2014
Nettó launatekjur 9.878.110
Tekjur að meðaltali á mánuði 259.950
Framfærslukostnaður á mánuði frá 1. maí 2011 til 30. september 2012* 220.854
Framfærslukostnaður á mánuði frá 1. október 2012 til 30. júní 2014** 253.255
Framfærslukostnaður alls á tímabilinu (220.854*17) + (253.255*21) 9.049.462
Framfærslukostnaður að meðaltali á mánuði 238.144
Greiðslugeta að meðaltali á mánuði 21.806
Samtals greiðslugeta á tímabilinu 828.628

*Framfærslukostnaður er reiknaður miðað við útgjöld hjóna með X börn samkvæmt framfærsluviðmiðum umboðsmanns skuldara í júní 2014 og meðlag með einu barni, auk upplýsinga frá kæranda um annan kostnað.

**Framfærslukostnaður er reiknaður miðað við útgjöld einstaklings samkvæmt framfærsluviðmiðum umboðsmanns skuldara í júní 2014, meðlag með þremur börnum, auk upplýsinga frá kæranda um annan kostnað.

Í útreikningum umsjónarmanns hafi verið miðað við að kærandi greiddi meðlag með X börnum frá 1. október 2012 en hann hafi í raun fyrst byrjað á því í janúar 2014. Sparnaður hans ætti því að hækka sem nemi tvöföldu meðlagi í 15 mánuði eða um alls 374.790 krónur. Sparnaður kæranda ætti því að nema samtals 1.203.224 krónum samkvæmt útreikningum í bréfi umsjónarmanns.

Umboðsmaður skuldara kveður heildartekjur kæranda á því 38 mánaða tímabili, sem útreikningar umsjónarmanns miði við, hafa verið 9.878.110 krónur. Mánaðarlegur framfærslukostnaður kæranda hafi verið 197.443 krónur, auk meðlags með einu barni, frá maí 2011 til október 2012, eða samtals 220.854 krónur. Þá hafi kærandi slitið samvistir við sambýliskonu sína og hafi framfærslukostnaður hans numið 253.255 krónum á mánuði frá október 2012 til 30. júní 2014 miðað við einstakling og að meðtöldum meðlagsgreiðslum með X börnum. Að teknu tilliti til framangreindra fjárhæða og þess að kærandi hafi í reynd aðeins greitt meðlag með einu barni þar til í janúar 2014, en eftir það meðlag með X börnum, telur umboðsmaður skuldara að sparnaður kæranda ætti að nema 1.578.014 krónum.

Kærandi kveðist hafa greitt 150.000 krónur vegna fermingar sonar síns, auk þess að hafa keypt þvottavél fyrir 120.000 krónur. Hann hafi lagt fram kvittun fyrir henni, dagsetta 10. mars 2011, en hún komi ekki til álita þar sem kærandi hafði ekki sótt um greiðsluaðlögun á þeim tíma.

Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. lge. skuli umsjónarmaður notast við framfærsluviðmið sem umboðsmaður skuldara setji. Umsjónarmanni sé almennt óheimilt að miða við annan framfærslukostnað en þann sem reiknaður hafi verið fyrir skuldara með tilliti til fjölskylduaðstæðna. Framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara byggist á hlutlægum viðmiðum um almenna framfærslu með tilliti til fjölskyldustærðar og taki mið af vísitölu. Að auki skuli lagt til grundvallar við mat á því hvort skuldarar hafi sinnt skyldum sínum í greiðsluskjóli að þeim sé jafnan játað nokkurt svigrúm til að mæta óvæntum útgjöldum í mánuði hverjum. Þá sé almennt tekið tillit til annarra útgjaldaliða sem fella megi undir venjulegan heimilisrekstur, sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

Skyldur skuldara í greiðsluskjóli samkvæmt 12. gr. lge. séu ávallt útskýrðar og ítrekaðar á fyrsta fundi umsjónarmanns og skuldara. Þá hafi skriflegar leiðbeiningar um skyldur skuldara fylgt með ákvörðun um samþykki umsóknar kæranda um greiðsluaðlögun. Upplýsingarnar hafi enn fremur verið aðgengilegar á heimasíðu umboðsmanns skuldara. Kæranda hafi því vel mátt vera ljóst að hann skyldi halda til haga þeim fjármunum sem hann hafi átt aflögu í lok hvers mánaðar til greiðslu af skuldum þegar að því kæmi að semja við kröfuhafa.

Að mati umboðsmanns skuldara hafi kærandi ekki veitt umboðsmanni skuldara fullnægjandi skýringar á því hvers vegna hann hafi ekki lagt fé til hliðar á tímabili greiðsluskjóls. Að framangreindu virtu og með hliðsjón af gögnum málsins hafi heimild kæranda til greiðsluaðlögunar verið felld niður samkvæmt 15. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

Umboðsmaður skuldara fer fram á að hin kærða ákvörðun verði staðfest með vísan til þeirra forsendna sem fram komi í henni.

IV. Niðurstaða

Ákvörðun umboðsmanns skuldara byggist á 15. gr. lge. með vísan til a-liðar 1. mgr. 12. gr. lge., þar sem fjallað er um skyldur skuldara á meðan leitað er greiðsluaðlögunar.

Á meðan leitað er greiðsluaðlögunar skal skuldari samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum það fé sem er umfram það sem hann þarf til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða. Í 2. mgr. 12. gr. kemur fram að telji umsjónarmaður að skuldari hafi brugðist skyldum sínum skuli hann óska þess við umboðsmann skuldara að greiðsluaðlögunarumleitanir verði felldar niður samkvæmt 15. gr. lge.

Í 1. mgr. 11. gr. lge. kemur fram að frestun greiðslna, svokallað greiðsluskjól, hefjist þegar umboðsmaður skuldara hefur samþykkt umsókn um greiðsluaðlögun. Kærandi sótti um greiðsluaðlögun ásamt sambýliskonu sinni 27. apríl 2011. Samkvæmt bráðabirgðaákvæði II í lge., sem sett var með lögum nr. 128/2010, hófst tímabundin frestun greiðslna á þeim tíma er kærandi sótti um greiðsluaðlögun og þegar umboðsmaður skuldara hafði móttekið umsókn um greiðsluaðlögun. Samkvæmt 5. mgr. sama bráðabirgðaákvæðis eiga skyldur skuldara við greiðsluaðlögun samkvæmt 12. gr. lge. við frá þeim tíma er umsókn hefur verið móttekin og greiðslum frestað í samræmi við bráðabirgðaákvæðið. Kæranda bar því að virða skyldur sínar samkvæmt 12. gr. lge. um leið og hann sótti um greiðsluaðlögun 27. apríl 2011. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi verið upplýstur um skyldu sína til að leggja fjármuni til hliðar í greiðsluskjóli í samræmi við a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

Eins og fram kemur í a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. hvílir sú skylda á skuldara á meðan leitað er greiðsluaðlögunar að leggja til hliðar í hverjum mánuði það fé sem er umfram framfærslukostnað hans. Tímabil greiðsluaðlögunarumleitana kæranda hófst 27. apríl 2011 en mat umboðsmanns skuldara er byggt á fjárhag kæranda á tímabilinu 1. maí 2011 til 30. júní 2014. Að mati umboðsmanns skuldara hefði kærandi átt að geta lagt til hliðar 1.578.014 krónur á tímabili greiðsluskjóls en hann hafi ekkert lagt til hliðar.

Samkvæmt fyrirliggjandi skattframtölum og launaupplýsingum Ríkisskattstjóra, sem eru meðal gagna málsins, hafa launatekjur kæranda í krónum verið eftirfarandi í greiðsluskjóli á neðangreindu tímabili:

Tímabilið 1. maí 2011 til 31. ágúst 2014: 40 mánuðir
Nettótekjur kæranda 10.209.588
Barnabætur 329.397
Vaxtabætur 165.156
Sérstök vaxtaniðurgreiðsla 72.924
Tekjur alls á tímabilinu 10.777.065

Mánaðarleg útgjöld kæranda voru þessi í greiðsluskjóli í krónum á eftirfarandi tímabilum:

Tímabilið 1. maí 2011 til 30. september 2012: 17 mánuðir
Mánaðarleg útgjöld samkvæmt ákvörðun umboðsmanns* 197.443
Alls mánaðarleg útgjöld í 17 mánuði í greiðsluskjóli x 197.443 3.356.531

*Framfærslukostnaður miðar við útgjöld hjóna með X börn samkvæmt framfærsluviðmiðum umboðsmanns skuldara í júní 2014, auk þess sem byggt var á upplýsingum frá kæranda um annan kostnað. Ekki er gert ráð fyrir greiðslu meðlags í áætluðum framfærslukostnaði.

Tímabilið 1. október 2012 til 31. ágúst 2014: 23 mánuðir
Mánaðarleg útgjöld samkvæmt ákvörðun umboðsmanns* 175.012
Alls mánaðarleg útgjöld í 23 mánuði í greiðsluskjóli x 175.012 4.025.276

*Framfærslukostnaður miðar við útgjöld einstaklings samkvæmt framfærsluviðmiðum umboðsmanns skuldara í júní 2014, auk þess sem byggt var á upplýsingum frá kæranda um annan kostnað. Ekki er gert ráð fyrir greiðslu meðlags í áætluðum framfærslukostnaði.

Kærandi hefði því átt að geta lagt til hliðar eftirfarandi fjárhæð í krónum á neðangreindu tímabili:

Tímabilið 1. maí 2011 til 31. ágúst 2014: 40 mánuðir
Nettótekjur alls í greiðsluskjóli 10.777.065
Mánaðarleg útgjöld alls í greiðsluskjóli 7.381.807
Ráðstöfunartekjur að teknu tilliti til framfærslu og annarra útgjalda 3.395.258
Greitt meðlag á tímabilinu* 1.038.756
Alls sparnaður í greiðsluskjóli 2.356.502

*Samkvæmt yfirliti frá Innheimtustofnun sveitarfélaga

Við mat á því hvaða fjárhæð skuldarar eiga að leggja til hliðar af launum sínum í greiðsluskjóli ber samkvæmt 4. mgr. 16. gr. lge. að notast við framfærsluviðmið sem umboðsmaður skuldara setur. Þegar metið er hvort skuldari hafi sinnt skyldum sínum meðan á frestun greiðslna hefur staðið er gert ráð fyrir svigrúmi til að mæta óvæntum útgjöldum.

Að þessu virtu hefði kærandi átt að geta lagt fyrir 2.356.502 krónur á tímabili greiðsluskjóls en hann hefur ekki lagt neitt til hliðar. Það er mat kærunefndarinnar að kæranda hafi mátt vera það ljóst, með vísan til skriflegra leiðbeininga umboðsmanns skuldara og þeirrar greiðsluáætlunar sem hann fékk í hendur, að honum hafi borið skylda til að leggja fé til hliðar af tekjum sínum á tímabili greiðsluskjóls. Samkvæmt þessu hefur kærandi ekki sinnt skyldum sínum samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

Í ljósi þess er að framan greinir telur kærunefndin að umboðsmanni skuldara hafi borið að fella greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda niður samkvæmt 1. mgr. 15. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. Hin kærða ákvörðun er með vísan til þess staðfest.

ÚRSKURÐARORÐ

Ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir A er staðfest.

Sigríður Ingvarsdóttir

Eggert Óskarsson

Þórhildur Líndal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum