Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 72/2018 úrskurður 20. september 2018

Mál nr. 72/2018                    Eiginnafn:     Tindur (kvk.)

 

 

 

Hinn 20. september 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 72/2018 en erindið barst nefndinni 4. september 2018.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.

  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

  • Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Tindur er skráð á mannanafnaskrá sem karlmannsnafn. Með vísan til 2. mgr. 5. gr. laga um mannanöfn er því ekki hægt að samþykkja það sem kvenmannsnafn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Tindur(kvk.) er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum