Hoppa yfir valmynd

720/2018. Úrskurður frá 3. janúar 2018

Úrskurður

Hinn 3. janúar 2018 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 720/2018 í máli ÚNU 17110003.

Kæra, málsatvik og málsmeðferð

Með erindi, dags. 2. nóvember 2017, kærði A synjun embættis héraðssaksóknara á beiðni hans um aðgang að tilteknum gögnum og upplýsingum varðandi rannsókn sakamáls gegn Thomas Frederik Møller Olsen.

Eins og þetta mál er vaxið taldi úrskurðarnefndin óþarft að beita heimild 2. mgr. 22. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 til að veita embætti héraðssaksóknara kost á að láta nefndinni í té rökstutt álit á málinu eða afrit af þeim gögnum sem kæra lýtur að. Þá þykir óþarft að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins með vísan til 31. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Úrskurðarnefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.

Niðurstaða

Beiðni kæranda lýtur að rannsókn sakamáls sem dæmt er í héraðsdómi. Þá liggur fyrir að dóminum hefur verið áfrýjað. Í 1. mgr. 4. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 kemur fram að lögin gildi ekki um rannsókn sakamála eða saksókn. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi því er síðan varð að upplýsingalögum nr. 140/2012 kemur fram að rannsókn sakamála og saksókn séu undanskilin gildissviði upplýsingalaga og að um aðgang að slíkum gögnum fari eftir sérákvæðum laga um meðferð sakamála. Samhljóða ákvæði var í 1. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996. Að mati nefndarinnar lýtur beiðni kæranda í heild sinni skýrlega að gögnum og upplýsingum um rannsókn sakamáls og saksókn í skilningi 1. mgr. 4. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Verður því samkvæmt framangreindu að vísa kærunni frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

Úrskurðarorð:

Kæru A, dags. 2. nóvember 2017, vegna synjunar embættis héraðssaksóknara á beiðni um aðgang að gögnum er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

 

Hafsteinn Þór Hauksson

formaður

 

 

Sigurveig Jónsdóttir                                                                                     Friðgeir Björnsson

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum