Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 69/2018 úrskurður 20. september 2018

Mál nr. 69/2018                    Eiginnafn:     Dittó (kk.)

 

 

 

Hinn 20. september 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 69/2018 en erindið barst nefndinni 3. september.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.

  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

  • Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Dittó (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Dittós, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Dittó (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum