Hoppa yfir valmynd

Synjun Vinnumálastofnunar frá 12. desember 2005. Frávísun.

Þriðjudaginn 6. júní 2006 var í félagsmálaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

   

ú r s k u r ð u r:

 

Með erindi, dags. 16. janúar 2006, kærði A, f.h. B, kt. X, synjun Vinnumálastofnunar, dags. 12. desember 2005, um veitingu atvinnuleyfis fyrir D, ríkisborgara frá Bosníu-Hersegóvínu, fd. Y.

 

I. Málavextir og málsástæður.

Mál þetta varðar synjun Vinnumálastofnunar um veitingu atvinnuleyfis til handa B í því skyni að ráða til starfa D, ríkisborgara frá Bosníu-Hersegóvínu. Vinnumálastofnun synjaði um veitingu atvinnuleyfisins með vísan til a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga.

Þeirri ákvörðun vildi A ekki una og kærði hana til ráðuneytisins. Ráðuneytið sendi bréf til B, dags. 24. janúar sl., þar sem athygli var vakin á því að þar sem ákvörðun Vinnumálastofnunar beindist að B félli það í þess hlut að kæra ákvörðun stofnunarinnar. B gæti þó falið öðrum umboð sitt til að fara með málið. Óskaði ráðuneytið því eftir staðfestingu þess efnis að B hygðist kæra umrædda ákvörðun Vinnumálastofnunar og ef sú væri raunin, að A færi með umboð þess vegna málsins. Auk þess var vakin athygli á því að kærufrestur í málinu rann út 10. janúar sl. en samkvæmt 24. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, er kærufrestur fjórar vikur frá því að tilkynning berst um ákvörðun Vinnumálastofnunar. Því teldist viðkomandi kæra hafa borist ráðuneytinu að liðnum kærufresti.

Í fyrrnefndu bréfi ráðuneytisins var enn fremur tekið fram að þrátt fyrir ákvæði 24. gr. laganna um atvinnuréttindi útlendinga færi um kæru að öðru leyti samkvæmt VII. kafla stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Samkvæmt 28. gr. stjórnsýslulaga skal vísa kæru frá hafi hún borist að liðnum kærufresti nema afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar. Því óskaði ráðuneytið eftir því að B tilgreindi ástæður þess að umrædd stjórnsýslukæra barst ráðuneytinu að liðnum kærufresti.

Svarbréf B barst ráðuneytinu 31. janúar sl., þar sem fram kemur að það veiti A umboð sitt til að fara með málið. Enn fremur kemur þar fram að ástæða þess að umrædd stjórnsýslukæra hafi komi svo seint fram sé að A hafi fengið synjun Vinnumálastofnunar of seint í hendur.

Félagsmálaráðuneytið sendi A bréf, dags. 3. febrúar sl., þar sem ráðuneytið fór fram á nánari skýringar þess að umrædd stjórnsýslukæra barst ráðuneytinu að liðnum lögbundnum kærufresti og var frestur veittur til 13. febrúar sl. Svarbréf barst hins vegar ekki og sendi félagsmálaráðuneytið því annað bréf til A, dags. 22. febrúar sl., þar sem ráðuneytið ítrekaði fyrri beiðni sína þess efnis að ráðuneytinu yrðu veittar nánari upplýsingar um ástæður þess að umrædd stjórnsýslukæra barst ráðuneytinu að liðnum lögbundnum kærufresti og var frestur veittur til 1. mars sl. Þar sem svarbréf hefur enn ekki borist ráðuneytinu verður byggt á þeim gögnum sem þegar liggja fyrir í málinu við mat á því hvort afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

 

II. Niðurstaða

Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, er heimilt að kæra ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun eða afturköllun atvinnuleyfa til félagsmálaráðuneytisins. Samkvæmt 2. mgr. sama ákvæðis er kærufrestur fjórar vikur frá því að tilkynning berst um ákvörðun Vinnumálastofnunar en að öðru leyti fer um kæru skv. VII. kafla stjórnsýslulaga um stjórnsýslukæru. Samkvæmt 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, ber að vísa stjórnsýslukæru frá berist hún að liðnum kærufresti nema afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Í gögnum málsins kemur fram að ástæða þess að umrædd stjórnsýslukæra barst ráðuneytinu að liðnum lögbundnum kærufresti hafi verið að A hafi fengið synjun Vinnumálastofnunar of seint í hendur. Ekki hafa fengist nánari skýringar á þeim drætti þrátt fyrir ítrekanir ráðuneytisins þar að lútandi. Hins vegar má ætla af gögnum málsins að ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun umrædds atvinnuleyfis hafi borist umsækjanda atvinnuleyfisins með eðlilegum hætti en að hann hafi látið hjá líða að koma bréfi Vinnumálastofnunar í hendur umboðsmanns síns. Aðrar ástæður þess að A fékk synjun Vinnumálastofnunar of seint í hendur eru ekki tilgreindar í gögnum málsins. Virðist því sem B hefði getað kært umrædda ákvörðun Vinnumálastofnunar til félagsmálaráðuneytisins innan lögbundins kærufrests hefði það talið slíka ráðstöfun þjóna hagsmunum sínum.

Það er því mat ráðuneytisins að ástæða þess að umrædd stjórnsýslukæra barst ráðuneytinu að liðnum lögbundnum kærufresti verði ekki talin afsakanleg í skilningi 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Þá verður ekki ráðið af málsatvikum að veigamiklar ástæður mæli með því að stjórnsýslukæran verði tekin til efnislegrar meðferðar hjá ráðuneytinu, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Ráðuneytið skortir því heimildir að lögum til að taka málið til efnislegrar umfjöllunar og ber að vísa erindi kæranda frá ráðuneytinu, sbr. 24. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

Uppkvaðning úrskurðar þessa hefur dregist vegna mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

 

Stjórnsýslukæru A, f.h. B, dags. 16. janúar 2006, vegna synjunar Vinnumálastofnunar, dags. 12. desember 2005, um veitingu atvinnuleyfis fyrir D, ríkisborgara frá Bosníu-Hersegóvínu, er hér með vísað frá félagsmálaráðuneytinu.

  

F.h.r.

 

Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir (sign)

Bjarnheiður Gautadóttir (sign)

 




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum