Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Almannatryggingar

Nr. 17/2019 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 17/2019

Miðvikudaginn 27. mars 2019

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eggert Óskarsson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með ódagsettri kæru, móttekinni 14. janúar 2019, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 3. janúar 2019 um að samþykkja umsókn barnsmóður hans um milligöngu um meðlagsgreiðslur frá X 2018.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með rafrænni umsókn, móttekinni 19. nóvember 2018, sótti barnsmóðir kæranda um milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins um meðlagsgreiðslur með barni þeirra frá X 2018. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 3. janúar 2019, var kæranda tilkynnt um milligöngu stofnunarinnar á meðlagsgreiðslum til barnsmóður hans frá X 2018.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 14. janúar 2019. Með bréfi, dagsettu sama dag, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 18. janúar 2019, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Af kæru verður ráðið að kærandi geri kröfu um að ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um upphafstíma milligöngu meðlagsgreiðslna verði breytt úr X 2018 í X sama ár.

Í kæru segir að kærð sé innheimta fyrir X og X 2018. Meðfylgjandi kæru voru afrit af kvittunum fyrir greiðslum til barnsmóður kæranda fyrir X og X 2018 að fjárhæð X kr. í hvort skipti.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að kærð sé ákvörðun stofnunarinnar um að verða við beiðni barnsmóður kæranda um að hafa milligöngu um meðlag til hennar með dóttur þeirra B frá X 2018.

Tryggingastofnun hafi tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 3. janúar 2019, að stofnunin hefði samþykkt að hafa milligöngu um greiðslu meðlags til barnsmóður kæranda frá X 2018 með dóttur þeirra. Tryggingastofnun hafði borist umsókn barnsmóður kæranda X 2018 um meðlag aftur í tímann, ásamt leyfisbréfi til lögskilnaðar, dags. X, þar sem komi fram að kærandi skuli greiða tvöfalt meðlag með dóttur sinni eins og verið hefur til 18 ára aldurs.

Kveðið sé á um það í 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar að hver sá sem fái úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hafi á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, geti snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama skuli gilda þegar lagt sé fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga.

Í 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar komi fram að Tryggingastofnun sé heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berist stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. ekki við.

Samkvæmt 67. gr. barnalaga nr. 76/2003 sé Tryggingastofnun skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Hlutverk Tryggingastofnunar sé að hafa milligöngu um greiðslu meðlags þegar ákvörðun hafi verið tekin með lögmætum hætti. Ef foreldri leggi fram löggilda meðlagsákvörðun beri Tryggingastofnun samkvæmt 63. gr. laga um almannatryggingar og 67. gr. barnalaga að hafa milligöngu um greiðslu meðlags, allt að ár aftur í tímann. Lög veiti Tryggingastofnun ekki heimild til að taka önnur gögn en talin séu upp í framangreindum ákvæðum til greina við milligöngu um greiðslu meðlags.

Hjá Tryggingastofnun liggi fyrir löggild meðlagsákvörðun, þ.e. leyfisbréf til lögskilnaðar, dags. X, sem kveði á um meðlagsgreiðslur frá kæranda til barnsmóður hans. Þá liggi fyrir umsókn barnsmóður kæranda um meðlag. Með kæru hafi fylgt tvær kvittanir sem sýni fram á greiðslu meðlags til barnsmóður kæranda fyrir X og X 2018.

Á síðasta ári hafi fallið tveir úrskurðir hjá úrskurðarnefnd velferðarmála varðandi milligöngu Tryggingastofnunar á greiðslu meðlags aftur í tímann. Í þeim komi fram að það sé mat úrskurðarnefndar að ekki sé heimilt að synja meðlagsmóttakanda um milligöngu á meðlagsgreiðslum allt að tólf mánuði aftur í tímann, þrátt fyrir að meðlagsmóttakandi hafi fengið greiðslur frá meðlagsgreiðanda á því tímabili sem sótt sé um, sbr. 3. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 945/2009. Um sé að ræða úrskurði nr. 166/2018 og 184/2018. Úrskurðir úrskurðarnefndar séu bindandi í viðkomandi málum og fordæmisgefandi fyrir afgreiðslu Tryggingastofnunar í sambærilegum málum.

Með vísan til ofangreinds beri Tryggingastofnun skylda til að hafa milligöngu um meðlag samkvæmt lögformlegri meðlagsákvörðun sé þess farið á leit við stofnunina, allt að 12 mánuði aftur í tímann, þrátt fyrir að meðlagsmóttakandi hafi fengið greiðslur frá meðlagsgreiðanda á því tímabili sem sótt sé um. Tryggingastofnun hafi engar heimildir til að virða að vettugi lögbundna skyldu sína til að greiða meðlag samkvæmt hinni lögformlegu meðlagsákvörðun. Tryggingastofnun hafi því borið að hafa milligöngu á meðlagi til barnsmóður kæranda frá þeim tíma sem hún hafi óskað eftir.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 3. janúar 2019 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá X 2018.

Kveðið er á um greiðsluskyldu Tryggingastofnunar ríkisins í 67. gr. barnalaga nr. 76/2003. Þar segir að Tryggingastofnun ríkisins sé skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur er hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar getur hver sá sem fær úrskurð um meðlag með barni sem hann hefur á framfæri sínu snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags og annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama gildir þegar lagt er fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003. Samkvæmt 4. mgr. sömu greinar er stofnuninni heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að tólf mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berst stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. laganna ekki við.

Þá segir í 6. mgr. 63. gr. laganna að heimilt sé að setja reglugerð um framkvæmd þessarar greinar þar sem meðal annars sé kveðið á um fyrirframgreiðslu meðlags þegar foreldri eða börn séu búsett erlendis og um hámarksgreiðslur sem Tryggingastofnun ríkisins inni af hendi. Reglugerð nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga hefur verið sett með stoð í framangreindu lagaákvæði. Samkvæmt 3. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar skal, þegar sótt er um greiðslu aftur í tímann á grundvelli meðlagsákvörðunar sem er eldri en tveggja mánaða, gefa meðlagsskyldum aðila kost á að sýna fram á að meðlag hafi þegar verið greitt fyrir það tímabil sem sótt er um.

Samkvæmt framangreindu ber Tryggingastofnun ríkisins að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur allt að tólf mánuði aftur í tímann berist beiðni þar um frá meðlagsmóttakanda á grundvelli lögformlegrar meðlagsákvörðunar. Fyrir liggur að barnsmóðir kæranda, sem er meðlagsmóttakandi, sótti um milligöngu Tryggingastofnunar um meðlagsgreiðslur með dóttur þeirra með rafrænni umsókn þann X 2018 frá X 2018 til 18 ára aldurs hennar. Stofnunin samþykkti umsóknina á grundvelli leyfisbréfs til lögskilnaðar, dags. X. Samkvæmt leyfisbréfinu ber kæranda að greiða barnsmóður sinni tvöfalt meðlag til 18 ára aldurs barnsins. Þá liggur fyrir að greiðslurnar voru ekki samþykktar lengra aftur í tímann en heimild 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar kveður á um.

Hlutverk Tryggingastofnunar í tengslum við meðlagsgreiðslur markast af ákvæðum viðeigandi laga og reglugerða. Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar ber stofnuninni lögbundin skylda til að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur sé þess farið á leit við stofnunina í þeim tilvikum þar sem lögformleg meðlagsákvörðun liggur fyrir. Í ákvæðinu, sem er grundvöllur ákvörðunar stofnunarinnar, segir nánar tiltekið að hver sá sem fær úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni geti snúið sér til stofnunarinnar og fengið fyrirframgreiðslu meðlags samkvæmt úrskurðinum og sama gildir um staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur.

Meðfylgjandi kæru er yfirlit yfir millifærslur kæranda til barnsmóður sinnar þann X og X 2018. Þá segir í kæru að hann kæri milligöngu meðlagsgreiðslna vegna framangreindra mánaða. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráðið verði af 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar að meginreglan sé sú að Tryggingastofnun beri að greiða meðlag í samræmi við meðlagsákvörðun. Þá telur úrskurðarnefndin að ákvæði 4. mgr. 63. gr. laganna feli í sér takmörkun á greiðslu meðlags aftur í tímann, þ.e. að ekki sé heimilt að greiða meðlag lengra en tólf mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem viðeigandi gögn bárust Tryggingastofnun. Í ljósi þess og með hliðsjón af þróun lagaákvæðisins og lögskýringargögnum telur úrskurðarnefnd velferðarmála að túlka verði heimild Tryggingastofnunar til greiðslu aftur í tímann samkvæmt 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar á þá leið að stofnuninni beri almennt að greiða aftur í tímann í samræmi við lagaákvæðið ef meðlagsákvörðun kveður á um það, sbr. úrskurð úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 312/2017. Að mati nefndarinnar felur heimildin því ekki í sér nánari ótilgreind skilyrði sem þarf að uppfylla til þess að greiðsla aftur í tímann geti átt sér stað. Þá telur úrskurðarnefndin að reglugerðarheimildin í 70. gr., sbr. 6. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar, feli ekki í sér heimild til að setja viðbótarskilyrði í reglugerð sem takmarkar lögbundinn rétt meðlagsmóttakanda til milligöngu meðlagsgreiðslna frá Tryggingastofnun.

Með vísan til framangreinds er það mat úrskurðarnefndar að ekki sé heimilt að synja meðlagsmóttakanda um milligöngu meðlagsgreiðslna allt að tólf mánuði aftur í tímann, þrátt fyrir að meðlagsmóttakandi hafi fengið greiðslur frá meðlagsgreiðanda á því tímabili sem sótt sé um, sbr. 3. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar. Að því virtu verður hin kærða ákvörðun ekki felld úr gildi með vísan til greiðslna frá kæranda til barnsmóður hans.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 3. janúar 2019 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá X 2018.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 3. janúar 2019 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður A, frá X 2018, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum