Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 18/2015

Á fundi úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála þann 10. desember 2015 var tekið fyrir mál nr. 18/2015:

 

Kæra A

á ákvörðun

Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

A, hefur með kæru, dags. 5. október 2015, skotið til úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir Fæðingarorlofssjóður), dags. 7. júlí 2015, þar sem umsókn kæranda um fæðingarstyrk námsmanna var synjað.

 

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi stundaði nám í B fræði við Háskólann í Reykjavík veturinn 2014 til 2015. Hann lauk 18 ECTS-einingum á haustönn 2014 og 30-ECTS-einingum á vorönn 2015. Með umsókn, dags. 27. maí 2015, sótti kærandi um greiðslu fæðingarstyrks námsmanna í þrjá mánuði vegna væntanlegrar fæðingar barns hans þann 18. júlí 2015. Umsókn kæranda var synjað með bréfi Fæðingarorlofssjóðs, dags. 7. júlí 2015, á þeirri forsendu að hann hafi ekki verið í fullu námi samfellt í a.m.k. sex mánuði síðustu tólf mánuðina fyrir fæðingardag barns. Barn kæranda fæddist þann Y. júlí 2015.  

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála 5. október 2015. Með bréfi, dags. 8. október 2015, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs ásamt gögnum málsins. Greinargerð Fæðingarorlofssjóðs barst með bréfi, dags. 9. október 2015. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. október 2015, var greinargerð Fæðingarorlofssjóðs send kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi lokið 18 ECTS-einingum á haustönn 2014 en 30 ECTS-einingum á vorönn 2015. Samanlagt hafi hann því lokið 48 ECTS-einingum síðastliðna 12 mánuði fyrir fæðingardag barns hans sem hafi verið Y. júlí 2015. Því eigi hann rétt á fullum fæðingarstyrk námsmanna á grundvelli 1. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof. Þá telur kærandi að heimild 12. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000 eigi við en vorönn 2015 hafi lokið þann 15. maí og þá hafi hann hafið störf á innlendum vinnumarkaði í 100% starfshlutfalli fram yfir fæðingardag barns hans. Nám og starf kæranda hafi því verið samfellt í sex mánuði eins og áskilið sé í ákvæðinu.

 

III. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs

Í greinargerð Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að skv. 1. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) eigi foreldrar sem hafi verið í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns, frumættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur og staðist kröfur um námsframvindu á þeim tíma rétt á fæðingarstyrk. Foreldri skuli leggja fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að það hafi verið skráð í fullt nám og hafi staðist kröfur um námsframvindu á þeim tíma. Heimilt sé að taka tillit til ástundunar náms í stað námsárangurs á þeirri skólaönn sem barn fæðist.

Skilgreiningu á fullu námi sé að finna í 4. mgr. 7. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 74/2008. Þar komi fram að fullt nám í skilningi laganna teljist vera 75–100% samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem standi yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur sé átt við 75–100% nám á háskólastigi og annað nám sem geri sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljist ekki til náms.

Fæðingardagur barns kæranda hafi verið þann Y. júlí 2015 og verði því, við mat á því hvort kærandi hafi stundað fullt nám samfellt í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingardag barnsins, að horfa til tímabilsins frá Y. júlí 2014 fram að fæðingardegi barnsins. Í vottorði um skólavist frá Háskólanum í Reykjavík, dags. 28. maí 2015, komi fram að á framangreindu tólf mánaða tímabili hafi kærandi lokið 18 af 24 ECTS-einingum á haustmisseri 2014 og 24 af 30 ECTS-einingum á vormisseri 2015.

Fæðingarorlofssjóður bendir á að þegar um er að ræða nám við háskóla teljist 30 einingar á önn vera 100% nám og því teljist 22–30 einingar vera fullt nám samkvæmt ffl. Með hliðsjón af þeim gögnum sem fyrir liggi um námsframvindu og uppsetningu náms kæranda líti sjóðurinn svo á að kærandi uppfylli ekki almenna skilyrðið um að hafa verið í fullu námi samfellt í a.m.k. sex mánuði síðustu tólf mánuðina fyrir fæðingardag barns þar sem hann hafi einungis lokið 18 ECTS-einingum á haustönn 2014. Hvorki í ffl. né reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, sé að finna heimild til að víkja frá framangreindu og leggja saman meðaltal tveggja anna við mat á því hvort foreldri teljist hafa verið í fullu námi samfellt í a.m.k. 6 mánuði síðustu 12 mánuðina fyrir fæðingardag barns eins og kærandi fari fram á í kæru.

Samkvæmt heimildarákvæði 12. mgr. 19. gr. ffl. sé heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þegar foreldri hafi lokið a.m.k. einnar annar námi skv. 1. mgr. og hafi síðan verið samfellt á innlendum vinnumarkaði. Skilyrði er að nám og starf hafi verið samfellt í a.m.k. sex mánuði. Í athugasemdum í greinargerð við heimildarákvæði 11. og 12. mgr. 19. gr. ffl., sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, komi fram að með reglugerð hafi verið veitt undanþága frá því skilyrði að nám skuli hafa staðið yfir í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu, ættleiðingu eða varanlegt fóstur þegar foreldri hafi verið í samfelldu starfi í a.m.k. sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fram til þess að námið hófst. Á sama hátt hafi verið veitt undanþága með reglugerð þegar foreldri hafi nýlega hafið störf eftir skólagöngu. Í þeim tilvikum hafi verið heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni, hafi foreldri lokið a.m.k. einnar annar námi skv. 1. mgr. og hafi síðan verið samfellt á vinnumarkaði. Skilyrðið er að nám og starf hafi verið samfellt í a.m.k. sex mánuði.

Þannig sé það skýrt að heimildarákvæði 11. og 12. mgr. 19. gr. ffl. sé ætlað að taka til tilgreindra tilvika þegar nám hefur ekki náð því að standa yfir í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns o.s.frv. Hafi hins vegar nám staðið yfir í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns, eins og hátti til í máli kæranda, verði heimildarákvæðum 11. og 12. mgr. ekki beitt heldur meginreglu 1. mgr.

Með vísan til alls framangreinds telji Fæðingarorlofssjóður að umsókn kæranda um greiðslu fæðingarstyrks til foreldra í fullu námi hafi réttilega verið synjað. Kærandi eigi þess í stað rétt á fæðingarstyrk skv. 18. gr. ffl., sbr. greiðsluáætlun til hans, dags. 13. júlí 2015. 

 

IV. Niðurstaða

Kærð er synjun Fæðingarorlofssjóðs á umsókn kæranda um fæðingarstyrk námsmanna.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. ffl. eiga foreldrar sem verið hafa í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns, frumættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur og staðist kröfur um námsframvindu rétt til fæðingarstyrks. Foreldri skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að það hafi verið skráð í fullt nám og staðist kröfur um námsframvindu. Heimilt er að taka tillit til ástundunar náms í stað námsárangurs á þeirri skólaönn sem barn fæðist.

Í 4. mgr. 7. gr. ffl. segir að fullt nám samkvæmt lögunum sé 75–100% samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur sé átt við 75–100% nám á háskólastigi og annað nám sem geri sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljist ekki til náms. Þegar um er að ræða nám við háskóla teljast 30 ECTS-einingar á önn almennt vera 100% nám og fullt nám í skilningi ffl. því 22–30 ECTS-einingar, sbr. 4. mgr. 7. gr. ffl.

Barn kæranda fæddist þann Y. júlí 2015. Tólf mánaða viðmiðunartímabil skv. 1. mgr. 19. gr. ffl. er því frá Y. júlí 2014 fram að fæðingardegi barnsins. Kærandi stundaði nám í B fræði við Háskólann í Reykjavík en um er að ræða 180 ECTS-eininga fullt nám í þrjú námsár eða 30 ECTS-eininga nám á misseri miðað við fullt nám. Samkvæmt yfirlitum frá Háskólanum í Reykjavík, dags. 28. maí 2015 og 6. október 2015, lauk kærandi 30 ECTS-einingum á vorönn 2015, eða fullu námi, en einungis 18 ECTS-einingum á haustönn 2014 sem telst ekki vera fullt nám. Í 1. mgr. 19. gr. ffl. er gert að skilyrði að foreldrar hafi verið í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns, og staðist kröfur um námsframvindu á þeim tíma, til að öðlast rétt til fæðingarstyrks námsmanna. Þarf því að skoða umrædda mánuði sem í tilviki kæranda eru á tímabilinu Y. júlí 2014 til Y. júlí 2015. Kærandi var í fullu námi í fimm mánuði af þessum tólf, eða á vorönn 2015, og fellur þar með ekki undir ákvæðið. Það er því mat úrskurðarnefndarinnar að kærandi hafi ekki fullnægt skilyrði 1. mgr. 19. gr. ffl. um að hafa verið í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns.

Í 12. mgr. 19. gr. ffl. er kveðið á um undanþágu þess efnis að heimilt sé að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þegar foreldri hafi lokið a.m.k. einnar annar námi skv. 1. mgr. og hafi síðan verið samfellt á innlendum vinnumarkaði. Skilyrði er að nám og starf hafi verið samfellt í a.m.k. sex mánuði.

Fyrrgreind 12. mgr. 19. gr. ffl. var lögfest með breytingarlögum nr. 90/2004. Í athugasemdum við 9. gr. frumvarps er varð að þeim lögum greinir frá því að ekki væri verið að gera efnisbreytingar á réttindum námsfólks til fæðingarstyrks. Með reglugerð hafi verið nánar kveðið á um réttindi námsfólks en það hljóti að teljast eðlilegra að skilyrði til greiðslu fæðingarstyrk væri að finna í lögum fremur en reglugerð. Segir svo nánar í greinargerðinni:

Á sama hátt hefur verið veitt undanþága með reglugerð þegar foreldri hefur nýlega hafið störf eftir skólagöngu. Í þeim tilvikum hefur verið heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni hafi foreldri lokið a.m.k. einnar annar námi skv. 1. mgr. og hefur síðan verið samfellt á vinnumarkaði. Skilyrðið er að nám og starf hafi verið samfellt í a.m.k. sex mánuði.

Líkt og áður greinir lauk kærandi 30 ECTS-einingum á vorönn 2015 en samkvæmt vottorði Háskólans í Reykjavík um skólavist kæranda, dags. 6. október 2015, stóð vorönnin til 31. maí 2015. Í gögnum málsins liggur fyrir staðfesting þess efnis að kærandi hóf störf á innlendum vinnumarkaði þann 20. maí 2015 og var að störfum fram yfir fæðingu barns hans. Þegar af þeirri ástæðu þykir rétt að líta svo á að kærandi uppfylli skilyrði 12. mgr. 19. gr. ffl. um að nám og starf hafi varað samfellt í a.m.k. sex mánuði.

Með hliðsjón af framangreindu telur nefndin rétt að fallast á umsókn kæranda um fæðingarstyrk í þrjá mánuði, enda virðist ágreiningslaust að hann uppfyllir skilyrði 19. gr. ffl. að öðru leyti.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 7. júlí 2015, um synjun á umsókn A er felld úr gildi. Kæranda skal greiddur fæðingarstyrkur námsmanna.

 

Haukur Guðmundsson formaður

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum