Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Almannatryggingar

Nr. 66/2019 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 66/2019

Miðvikudaginn 5. júní 2019

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

 

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eggert Óskarsson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 12. febrúar 2019, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 13. desember 2018 um að samþykkja umsókn barnsmóður hans um milligöngu um meðlagsgreiðslur með syni þeirra frá X.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með rafrænni umsókn, móttekinni 13. desember 2018, sótti barnsmóðir kæranda um milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins um meðlagsgreiðslur með syni þeirra frá X. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 13. desember 2018, var kæranda tilkynnt um milligöngu stofnunarinnar á meðlagsgreiðslum til barnsmóður hans frá X. Undir rekstri þessa kærumáls tók Tryggingastofnun nýja ákvörðun í málinu á grundvelli nýrra gagna B frá X og stöðvaði milligöngu meðlagsgreiðslna til móður á tímabilinu X til X.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 12. febrúar 2019. Með bréfi, dags. 13. febrúar 2019, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 8. mars 2019, barst greinargerð Tryggingastofnunar og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Með tölvupósti 2. apríl 2019 bárust athugasemdir frá kæranda og voru þær sendar Tryggingastofnun til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. apríl 2019. Með bréfi, dags. 7. maí 2019, barst viðbótargreinargerð Tryggingastofnunar og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 8. maí 2019. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi gerir kröfu um að ákvörðun Tryggingastofnunar um milligöngu meðlagsgreiðslna verði felld úr gildi.

Í kæru mótmælir kærandi ákvörðun Tryggingastofnunar um að hann eigi að greiða meðlag með syni sínum þar sem hann dvelji jafn mikið hjá þeim foreldrunum, þ.e. eina viku í senn til skiptis. Kærandi taki jafn mikinn þátt í kostnaði við framfærslu og umsjá drengsins, til dæmis greiði hann helming í [...] og í öðrum föstum kostnaði.

Í athugasemdum kæranda frá 2. apríl 2019 kemur fram að við skilnað kæranda og barnsmóður hans hafi þau ákveðið í sameiningu að innheimta ekki meðlag með syni þeirra þar sem hann myndi dvelja til jafns hjá þeim og að um sameiginlega forsjá væri að ræða. B hafi í X ákveðið að drengurinn skyldi búa hjá kæranda í X vegna heimilisaðstæðna barnsmóður hans. Barnsmóðir kæranda hafi kennt honum um að sonur þeirra hafi verið tekinn af henni og þess vegna hafi hún óskað eftir milligöngu meðlags hjá Tryggingastofnun.

Að lokum fer kærandi fram á að meðlagsgreiðslurnar verði millifærðar á hann.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að kærð sé ákvörðun stofnunarinnar um að verða við beiðni barnsmóður kæranda um að hafa milligöngu um meðlag til hennar með syni þeirra frá X.

Tryggingastofnun hafi tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 13. desember 2018, að stofnunin hefði samþykkt að hafa milligöngu um greiðslu meðlags til barnsmóður hans frá X með syni þeirra. Tryggingastofnun hafði borist umsókn barnsmóður kæranda þann X um meðlag frá X, ásamt leyfi til lögskilnaðar, dags. X, þar sem komi fram að kærandi skuli greiða einfalt meðlag með syni sínum frá X til 18 ára aldurs.

Kveðið sé á um það í 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar að hver sá sem fái úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hafi á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, geti snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama skuli gilda þegar lagt sé fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga.

Samkvæmt 67. gr. barnalaga sé Tryggingastofnun skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Hlutverk Tryggingastofnunar sé að hafa milligöngu um greiðslu meðlags þegar ákvörðun hafi verið tekin með lögmætum hætti. Ef foreldri leggi fram löggilda meðlagsákvörðun beri Tryggingastofnun samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar og 67. gr. barnalaga að hafa milligöngu um greiðslu meðlags. Lög veiti Tryggingastofnun ekki heimild til að taka önnur gögn en talin séu upp í framangreindum ákvæðum til greina við milligöngu um greiðslu meðlags.

Hjá Tryggingastofnun liggi fyrir löggild meðlagsákvörðun, þ.e. leyfi til lögskilnaðar, dags. X, sem kveði á um meðlagsgreiðslur frá kæranda til barnsmóður hans. Ekki hafi verið sýnt fram á með framlagningu gagna að þeirri ákvörðun hafi verið breytt. Þá liggi fyrir umsókn barnsmóður kæranda, móttekin 13. desember 2018, um meðlag frá X. Tryggingastofnun beri skylda til að hafa milligöngu um meðlag samkvæmt lögformlegri meðlagsákvörðun sé þess farið á leit við stofnunina. Tryggingastofnun hafi engar heimildir til að virða að vettugi lögbundna skyldu sína til að greiða meðlag samkvæmt hinni lögformlegu meðlagsákvörðun. Stofnuninni beri því að hafa milligöngu um greiðslu meðlags til barnsmóður kæranda frá X og hafi ekki heimild til að taka til greina það sem kærandi taki fram í kæru sinni. Sambærileg niðurstaða hafi einnig verið í kærumálum nr. 42/2012, 81/2013 og 334/2014 fyrir úrskurðarnefnd almannatrygginga og í málum nr. 190/2016, 77/2017 og 395/2017 fyrir úrskurðarnefnd velferðarmála.

Í viðbótargreinargerð Tryggingastofnunar, dags. 7. maí 2019, kemur fram að gögn frá B staðfesti að sonur kæranda hafi verið búsettur hjá honum og verið á hans framfæri á tímabilinu X til X. Greiðslur til barnsmóður kæranda hafi því verið stöðvaðar fyrir þetta tímabil.

Telji kærandi að hann eigi rétt á endurgreiðslu meðlagsgreiðslna vegna drengsins fyrir þetta tímabil þá sé honum bent á að hafa samband við Innheimtustofnun sveitarfélaga. Ef hann telji sig eiga rétt á greiðslum á grundvelli framlagðs samnings um umsjá barnsins á umræddu tímabili sé honum bent á að hafa samband við B.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 13. desember 2018 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá X.

Kveðið er á um greiðsluskyldu Tryggingastofnunar ríkisins í 67. gr. barnalaga nr. 76/2003. Þar segir að Tryggingastofnun ríkisins sé skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur er hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar getur hver sá sem fær úrskurð um meðlag með barni sem hann hefur á framfæri sínu snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags og annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama gildir þegar lagt er fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003. Samkvæmt 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar er stofnuninni heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berst stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. laganna ekki við. Þá segir í 6. mgr. 63. gr. laganna að heimilt sé að setja reglugerð um framkvæmd þessarar greinar þar sem meðal annars sé kveðið á um fyrirframgreiðslu meðlags þegar foreldri eða börn séu búsett erlendis og um hámarksgreiðslur sem Tryggingastofnun ríkisins inni af hendi. Reglugerð nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga hefur verið sett með stoð í framangreindu lagaákvæði.

Samkvæmt framangreindu ber Tryggingastofnun ríkisins að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur allt að 12 mánuði aftur í tímann berist beiðni þar um frá meðlagsmóttakanda á grundvelli lögformlegrar meðlagsákvörðunar. Kærandi vísar til þess að sonur hans sé jafn mikið hjá honum og móður og að hann taki til jafns við móður þátt í kostnaði vegna [...] og í öðrum föstum kostnaði. Fyrir liggur að barnsmóðir kæranda, sem er meðlagsmóttakandi, sótti um milligöngu Tryggingastofnunar um meðlagsgreiðslur með syni þeirra með rafrænni umsókn þann 13. desember 2018 frá X til 18 ára aldurs hans. Stofnunin samþykkti umsóknina á grundvelli lögskilnaðarleyfis Sýslumannsins C, dags. X. Samkvæmt leyfisbréfinu ber kærandi meðlagsskyldu frá X til 18 ára aldurs barnsins. Þá liggur fyrir að greiðslurnar voru ekki samþykktar lengra aftur í tímann en heimild 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar kveður á um.

Hlutverk Tryggingastofnunar í tengslum við meðlagsgreiðslur markast af ákvæðum viðeigandi laga og reglugerðar. Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar ber stofnuninni lögbundin skylda til að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur sé þess farið á leit við stofnunina í þeim tilvikum þar sem lögformleg meðlagsákvörðun liggur fyrir. Í ákvæðinu, sem er grundvöllur ákvörðunar stofnunarinnar, segir nánar tiltekið að hver sá sem fær úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni geti snúið sér til stofnunarinnar og fengið fyrirframgreiðslu meðlags samkvæmt úrskurðinum og sama gildir um staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur. Eins og áður hefur komið fram liggur fyrir í máli þessu lögskilnaðarleyfi sem kveður á um meðlagsskyldu kæranda með syni sínum til 18 ára aldurs. Tryggingastofnun bar því að fallast á umsókn barnsmóður hans um milligöngu um meðlagsgreiðslur.

Þá telur úrskurðarnefndin rétt að benda á að ný ákvörðun Tryggingastofnunar um að fella niður milligöngu meðlagsgreiðslna til barnsmóður kæranda á tímabilinu X til X breytir ekki því að upphafleg umsókn hennar um milligöngu meðlagsgreiðslna var afgreidd lögum samkvæmt.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 13. desember 2018 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá X.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 13. desember 2018 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður A, frá X, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum