Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 60/2012, úrskurður 5. október 2012

Mál nr. 60/2012                    Millinafn:       X


Hinn 5. október 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 60/2012 en erindið barst nefndinni 26. september:

Í 2. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn, eru upp talin almenn skilyrði þess að fallist verði á millinafn. M.a. kemur þar fram það skilyrði sbr. 4. mgr. 6. gr. laga um  mannanöfn að millinafn, hvort sem er almennt millinafn eða sérstakt millinafn samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laganna, sé ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Að öðrum kosti er óheimilt að fallast á það.

 Ritháttur millinafnsins X  getur ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls enda er bókstafurinn x ekki ritaður í upphafi orðs í íslensku.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið X  er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum