Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 55/2015

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 16. desember 2015 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 55/2015.

1. Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 23. júní 2015, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að stofnunin hefði ákveðið á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans sökum þess að hann hefði verið að vinna sem B samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur án þess að tilkynna Vinnumálastofnun um það. Þá var hann upplýstur um að hann skyldi ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hefði starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Kærandi kærði ákvörðun Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 30. júlí 2015. Kærandi óskar leiðréttingar. Vinnumálastofnun telur að rétt hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda.

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun þann 10. júní 2013. Þann 12. júní 2015 barst Vinnumálastofnun ábending um að kærandi væri að starfa sem B samhliða því að þiggja atvinnuleysistryggingar. Eftirlitsdeild stofnunarinnar kannaði mál kæranda frekar og eftir gagnaöflun var ákveðið að óska eftir afstöðu hans. Með bréfi, dags. 16. júní 2015, var óskað eftir skýringum hans á ótilkynntri vinnu hans í C. Skýringar bárust frá kæranda sama dag þar sem fram kemur meðal annars að hann sé að reyna að stofna sitt eigið fyrirtæki og starfa sem B. Hann sé ekki í fastri vinnu með laun og starfi ekki í framangreindri C. Þetta sé allt saman verkefni í vinnslu. Með bréfi, dags. 23. júní 2015, var kæranda tilkynnt um viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar.

Í kæru kemur fram að það hafi verið ákveðið að hann væri að vinna launaða vinnu í C og sem B með þá ákveðnar tekjur. Því miður hafi hann aðeins verið að reyna sitt besta að gera eitthvað jákvætt á meðan hann hefði ekki fengið fullt starf eða hlutastarf. Í stað þess að vera heima þá hafi hann verið að reyna að skapa sér jákvæðan grundvöll við það sem hann vilji gera í framtíðinni. Það væri óskandi að hann hefði fastar tekjur af því að gera B en því miður sé þetta ansi erfiður bransi. Það sé vel hægt að sjá hjá Greiðslustofu að hann hafi ekki haft neinar tekjur.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 26. október 2015, kemur fram að mál þetta lúti að ákvörðun stofnunarinnar um viðurlög samkvæmt 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Annar málsliður 60. gr. laganna taki á því þegar atvinnuleitandi starfi á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar um að upplýsa Vinnumálastofnun um störf sín. Af ákvæðinu leiði að sá sem ekki tilkynni Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. laganna eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a laganna skuli sæta viðurlögum á grundvelli þess.

Í 13. gr. laganna segi jafnframt að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laganna sé að finna nánari útlistun á því hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfi á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu eða í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Á þeim sem fái greiðslur atvinnuleysistrygginga frá Vinnumálastofnun hvíli því skylda til að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar um hagi viðkomandi. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé að finna ákvæði þar sem þessi skylda sé ítrekuð. Þannig segi í 3. mgr. 9. gr. laganna að sá sem teljist tryggður á grundvelli laganna skuli upplýsa stofnunina um allar breytingar sem kunni að verða á högum hans á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysistryggingar eða annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um tekjur sem hann fái fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan standi yfir eða ef atvinnuleit sé hætt.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi opnað D og verslun ásamt fleiri B. Þá liggi fyrir að vörur úr smiðju kæranda hafi verið seldar í C. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn sinnt störfum á innlendum vinnumarkaði án þess að tilkynna um vinnu sína.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 29. október 2015, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki. Með símtali þann 2. desember 2015 óskaði úrskurðarnefndin eftir upplýsingum kæranda um hvort hann hefði minnst á það við Vinnumálastofnun að hann væri að B. Í símtalinu kom fram að kærandi hefði nefnt þetta við ráðgjafa sinn hjá stofnuninni en einungis greint frá því að um áhugamál væri að ræða. Hann hafi ekki minnst á sölu á B.

2. Niðurstaða

Mál þetta lýtur að því hvort kærandi hafi aflað atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Ákvæðið er svohljóðandi, sbr. 23. gr. laga nr. 134/2009 og 4. gr. laga nr. 103/2011:

Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þá segir í 35. gr. a:

Þeim sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum ber að tilkynna til Vinnumálastofnunar með að minnsta kosti eins dags fyrirvara um tilfallandi vinnu sem hann tekur á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum. Heimilt er þó að tilkynna samdægurs um tilfallandi vinnu enda sé um að ræða tilvik sem er þess eðlis að mati Vinnumálastofnunar að ekki var unnt að tilkynna um hina tilfallandi vinnu fyrr. Í tilkynningunni skulu meðal annars koma fram upplýsingar um hver vinnan er, um vinnustöðina og um lengd þess tíma sem hinni tilfallandi vinnu er ætlað að vera.

Í meðförum úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða hefur ákvæði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar verið túlkað með þeim hætti að fyrsti málsliður þess eigi við ef atvinnuleitandi hefur með vísvitandi hætti hegðað sér með tilteknum hætti á meðan slíkt huglægt skilyrði á ekki við ef háttsemin fellur undir annan málslið ákvæðisins. Þessi munur stafar af því að annar málsliðurinn tekur á því þegar atvinnuleitandi starfar á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar að upplýsa Vinnumálastofnun um þessa atvinnuþátttöku. Vinnumálstofnun byggir á því að háttsemi kæranda falli undir síðari málsliðinn.

Óumdeilt er að kærandi starfaði sem B á sama tíma og hann þáði greiðslur atvinnuleysistrygginga. Af gögnum málsins má ráða kærandi hafi verið með B til sölu í C. Kærandi byggir hins vegar á því að hann hafi ekki haft neinar tekjur af þessari nýsköpunarstarfsemi sinni. Úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða telur að ráða megi af orðalagi 2. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 10. og 35. gr. a laganna, að óheimilt sé að vinna nokkurt starf á innlendum vinnumarkaði án þess að tilkynna Vinnumálastofnun um það. Þannig er hvorki gerð krafa um ákveðið lágmarksstarfshlutfall né að viðkomandi fái greidd einhver lágmarkslaun fyrir sína vinnu. Það er því mat nefndarinnar að kærandi hafi verið starfandi á innlendum vinnumarkaði í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar samhliða töku atvinnuleysisbóta.

Af samskiptasögu kæranda hjá Vinnumálastofnun má ráða að kærandi hafi rætt við ráðgjafa sinn hjá stofnuninni um B þann 23. mars 2015. Samkvæmt upplýsingum frá kæranda greindi hann einungis frá því að B væri áhugamál hans en hann minntist ekki á sölu á B. Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun með fullnægjandi hætti um starfsemi sína.

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu atvinnuleitanda sem kveðið er á um í 35. gr. a sömu laga, verður að telja að kærandi hafi brugðist trúnaðar- og upplýsingaskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun. Háttsemi kæranda hefur því réttilega verið heimfærð til ákvæðis 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda ber því að sæta viðurlögum þeim sem þar er kveðið á um, enda var hann starfandi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann þáði atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu. Þá er ákvæði 60. gr. fortakslaust en í því felst að ekki er heimild til að beita vægari úrræðum en ákvæðið kveður á um. Skal kærandi ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 23. júní 2015 í máli A, þess efnis að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði, er staðfest.

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum