Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 5/2016 Úrskurður 8. janúar 2016

Mál nr. 5/2016                       Aðlögun kenninafns: Kristofersdóttir

 


 

Hinn 8. janúar 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 5/2016 en erindið barst nefndinni 7. janúar:

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 6. janúar 2016, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XXX um að taka upp kenningu til föður síns, Krysztof. Óskar hún að kenninafnið verði lagað að íslensku máli og ritað Kristofersdóttir.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

 

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Kristofersdóttir.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum