Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 71/2014 úrskurður 3. október 2014

Mannanafnanefnd-úrskurðir



           Mál nr. 71/2014                     


Millinafn:       Fletcher

 


 

Hinn 3. október 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 71/2014 en erindið barst nefndinni 8. september:

Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn nr. 45/1996 skal millinafn dregið af íslenskum orðstofnum en má þó ekki hafa nefnifallsendingu. Millinafnið Fletcher er ekki dregið af íslenskum orðstofnum og með vísan til framanrakins lagaákvæðis  ber að hafna beiðni um að það verði skráð í mannanafnaskrá.

 

Úrskurðarorð:

 

Beiðni um millinafnið Fletcher er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum