Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 221/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 29. maí 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 221/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18020044

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 14. febrúar 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi), þá ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. janúar 2018, að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd og endursenda hann til Ítalíu.

Þess er aðallega krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar í fyrsta lagi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og í öðru lagi með vísan til 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 42. gr. sömu laga.Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 1. mgr. 25. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun var kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Í gögnum málsins greinir að kærandi hafi sótt um alþjóðlega vernd hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu þann 13. september 2017. Kærandi mætti til viðtals hjá Útlendingastofnun m.a. þann 26. október 2017, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 19. janúar 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og endursenda hann til Ítalíu. Kærandi kærði ákvörðunina þann 14. febrúar 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 1. mars 2018. Þá bárust kærunefnd viðbótargögn í máli kæranda dagana 6. og 12. apríl sl. og 24. maí sl.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun sinni komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd ekki til efnislegrar meðferðar með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í málinu lægi fyrir að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd á Ítalíu.Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun bar kærandi m.a. fyrir sig að hann glímdi við veikindi. Þá hefðu lífsskilyrði hans á Ítalíu verið bágborin og honum hefði verið sýnd fyrirlitning þar í landi. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var m.a. vísað til þess að Mannréttindadómstóll Evrópu og Evrópudómstóllinn hefðu sett tiltölulega háan þröskuld varðandi lágmarks alvarleikastig við mat á því hvort brotið hefði verið gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Það var mat Útlendingastofnunar að 42. gr. laga um útlendinga kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði sendur aftur til Ítalíu. Þá var það mat stofnunarinnar að kærandi væri ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga og að 2. mgr. 36. gr. sömu laga ætti ekki við í máli kæranda.Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Kæra frestaði réttaráhrifum, sbr. 1. mgr. 35. gr. sömu laga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi sé ekki við góða líkamlega heilsu þar sem hann sé með stöðugan svima og [...] á líkamanum, bólginn á [...] og með [...]. Þá telji hann sig þurfa að hitta sálfræðing þó að hann eigi ekki við alvarlegan andlegan vanda að stríða í augnablikinu. Kærandi hafi lent í því að vera laminn af vegaræningjum og eiginkona frænda hans hafi lamið hann oft, þar af einu sinni mjög illa, en þá hafi hún bundið kæranda og beitt hann líkamlegu ofbeldi.

Þá kemur fram í greinargerð kæranda að hann geri athugasemdir við að verða sendur aftur til Ítalíu. Útilokað hafi verið fyrir hann að fá launaða vinnu þar í landi. Hann hafi starfað sem sjálfboðaliði en verið sagt upp og um tíma hafi hann unnið sveitastörf en loks yfirgefið Ítalíu. Meðan hann hafi dvalið á Ítalíu hafi hann ekki fengið húsaskjól en hann hafi fengið framfærslu þegar hann hafi verið í flóttamannabúðum. Hann hafi sofið á járnbrautarstöðvum og fengið mat hjá hjálparsamtökum. Þá kveður kærandi að hann hafi ekki fengið aðstoð eða greiðslur frá ítölskum stjórnvöldum eftir að honum hafi verið veitt viðbótarvernd á Ítalíu. Hann hafi ekki haft aðgang að heilbrigðiskerfinu þar í landi og ekki einu sinni í flóttamannabúðunum. Útilokað hafi verið fyrir hann að fá læknisþjónustu nema greiða fyrir hana úr eigin vasa. Kærandi sé veikur, hann hafi upplifað fyrirlitningu á Ítalíu og þá hafi hann ekki að neinu að snúa þar í landi.

Samkvæmt framlögðum læknisfræðilegum gögnum kæranda sé hann með [...] vinstra megin og ákveðið hafi verið að senda hann í uppskurð sem hafi verið fyrirhugaður 2. mars 2018. Hvað andlega heilsu kæranda varði hafi hann tekið próf sem hafi gefið þá niðurstöðu að honum líði mjög illa, hann eigi erfitt með að sofna og honum bregði mjög auðveldlega. Þá eigi kærandi erfitt með að fara á veraldarvefinn og fyllist oft ofsakvíða þar sem hjartsláttur hans aukist og hann kófsvitni.

Þá kveður kærandi að staðhæfing Útlendingastofnunar um að honum hafi verið boðinn tími hjá sálfræðingi þann 6. desember 2017 sé ekki rétt. Hið rétta sé að kæranda hafi verið boðinn tími hjá sálfræðingi kl. 09:00 þann 22. nóvember 2017. Talsmaður kæranda hafi látið Útlendingastofnun vita að hann kæmist ekki í þann tíma þar sem almenningssamgöngur færu ekki svo snemma frá [...], þar sem kærandi hafi búið á þeim tíma. Tímanum hafi verið frestað og þegar greinargerðin hafi verið skrifuð hafi kærandi ekki enn fengið nýjan tíma hjá sálfræðingi.

Til stuðnings aðalkröfu sinni byggir kærandi m.a. á því að hann sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Þá rekur kærandi í greinargerð sinni aðstæður og réttindi flóttafólks á Ítalíu með vísan til ýmissa alþjóðlegra skýrslna og gagna, þ. á m. skýrslu svissneska flóttamannaráðsins um móttökuaðstæður á Ítalíu, frá árinu 2016. Þar komi m.a. fram að þrátt fyrir að einstæðir karlmenn séu venjulega ekki flokkaðir í hóp viðkvæmra einstaklinga séu það einmitt þeir sem eigi í mestum erfiðleikum með að fá pláss í móttökumiðstöðvum og hæsta hlutfall atvinnuleysis sé meðal þeirra. Fyrir flóttamenn á Ítalíu séu atvinnumöguleikar af skornum skammti, félagsleg aðstoð sé bág, lítil aðstoð í boði við aðlögun að ítölsku samfélagi og gríðarlega erfitt að fá húsnæði. Þá sé aðgengi að heilbrigðisþjónustu takmarkað og stundum alls ekki til staðar. Það séu ekki einungis umsækjendur um alþjóðlega vernd sem séu í viðkvæmri stöðu á Ítalíu heldur einnig þeir sem njóti alþjóðlegrar verndar.

Þá byggir kærandi á því að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi í því sambandi til lögskýringargagna að baki ákvæðinu, svo og breytingarlaga nr. 81/2017 og lögskýringargagna að baki breytingarlögunum. Kærandi leggi áherslu á að kærunefnd skoði einstaklingsbundnar aðstæður hans. Ekkert í málsgögnum bendi til þess að Útlendingastofnun hafi gefið sér tíma til að afla nauðsynlegra gagna um andlegt ástand kæranda, einkum í ljósi þess að í komunótum frá Göngudeild sóttvarna komi fram að kærandi hafi tekið próf sem hafi gefið þá niðurstöðu að honum [...].

Til stuðnings aðalkröfu sinni byggir kærandi jafnframt á því að endursending hans til Ítalíu brjóti gegn 3. mgr. 36. gr. og 42. gr. laga um útlendinga, 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

Til stuðnings varakröfu sinni vísar kærandi til 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, svo og 6. tölul. 3. gr. og 1. mgr. 25. gr. sömu laga. Kærandi geri m.a. athugasemd við að í ákvörðun Útlendingastofnunar sé sérstaklega tekið fram að kærandi hafi ekki mætt í tíma hjá sálfræðingi og með því sé gefið til kynna að hann sé ósamvinnufús. Kærandi hafi hins vegar látið vita að hann kæmist ekki í tímann og gefið haldbæra skýringu á því. Þá sé ekkert fjallað um uppskurð sem ákveðið hafi verið að kærandi skyldi gangast undir, þrátt fyrir að stofnunin hafi fengið heimild kæranda til að afla læknisfræðilegra gagna í máli hans.

Með tölvupósti, dags. 8. maí sl., veitti kærunefnd kæranda frest til að skila inn uppfærðum heilsufarsgögnum í máli sínu í kjölfar aðgerðar sem hann gekkst undir. Í framlagðri göngudeildarnótu kæranda, dags. þann 17. maí sl., kemur m.a. fram að sár vegna aðgerðarinnar sé vel gróið og að hann megi fara að gera hvað sem er.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Þann 29. september 2017 synjuðu ítölsk yfirvöld endurviðtökubeiðni Útlendingastofnunar á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013, dags. 15. september 2017, með vísan til þess að kærandi væri með viðbótarvernd á Ítalíu og gilt dvalarleyfi til 25. október 2020. Eru því skilyrði a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæðu getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi einstakling sem nýtur alþjóðlegrar verndar aftur til ríkisins sem hefur veitt honum slíka vernd, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður í viðtökuríki brjóti í bága við 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, þar sem kveðið er á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Verður kærunefnd því að leggja mat á hvort aðstæður í viðtökuríki brjóti í bága við ákvæði 3. gr. mannréttindasáttmálans. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar. Þá þarf að líta til stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Meta verði fyrirsjáanlegar afleiðingar af því að vísa einstaklingi til móttökuríkis í ljósi almennra aðstæðna í ríkinu og persónulegra aðstæðna viðkomandi einstaklings.

Greining á sérþörfum sbr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi var ekki metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu hjá Útlendingastofnun sem áhrif hefði á mál hans. Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] og [...] karlmaður á [...]. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun, dags. 29. september og 26. október 2017, kvaðst kærandi vera með svima og [...] á líkamanum, [...] á [...] og [...]. Kvaðst kærandi ekki eiga við andleg vandamál að stríða. Í framlögðu læknisvottorði kæranda, dags. þann 12. apríl sl., kemur m.a. fram að kærandi hafi farið í [...] 2. mars sl. Svo sem fram hefur komið bárust kærunefnd uppfærð heilsufarsgögn í máli kæranda, dags. 17. maí sl., í kjölfar framangreindrar aðgerðar. Í gögnunum kemur m.a. fram að við skoðun séu ekki lengur merki um [...]. Þá kemur m.a. fram í samskiptaseðlum frá Göngudeild sóttvarna, dags. frá 20. september 2017 til 4. apríl sl., að kærandi hafi tekið sálfræðilegt próf og niðurstöður þess hafi gefið til kynna að honum líði mjög illa. Þá má af gögnum máls sjá að kærandi hafi hitt sálfræðing á Göngudeild sóttvarna í tvígang.

Framburður kæranda ber með sér að hann hafi verið beittur ofbeldi, m.a. á æskuárum sínum, og glími við andlega vanlíðan. Þá hafi hann glímt við [...] sem nú sé búið að ráða bót á að nokkru eða öllu leyti. Að mati kærunefndar gefa gögn málsins ekki til kynna að líkamlegir og andlegir kvillar kæranda nái því alvarleikastigi að hann teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls hans hér á landi, enda séu aðstæður hans ekki þess eðlis að hann hafi sérstakar þarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls hér eða að hann geti ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga án aðstoðar eða sérstaks tillits, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður á Ítalíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Freedom in the World 2018 – Italy (Freedom House, 5. apríl 2018);
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018);
  • Amnesty International Report 2017/18 - Italy (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018);• Italy 2017 Human Rights Report (United States Department of State, 20. apríl 2018);
  • Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017);
  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerance, 7. júní 2016);
  • Reception conditions in Italy. Report of the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, ágúst 2016);
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2015 (European Asylum Support Office, 8. júlí 2016);
  • Information note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (Elena, European legal network on asylum, október 2015);
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights’ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, mars 2014);
  • UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013);
  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (http://hatecrime.osce.org/italy);
  • Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati - http://www.cir-onlus.org/en/) og
  • Upplýsingar af vefsíðu samtakanna Baobab Experience (https://baobabexperience.org/).

Samkvæmt ofangreindum gögnum eru dvalarleyfi einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og einstaklinga með viðbótarvernd gefin út til fimm ára en að þeim tíma liðnum geta handhafar sótt um ótímabundið dvalarleyfi á Ítalíu. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns geta öðlast ríkisborgararétt að fimm árum liðnum en einstaklingar með viðbótarvernd að tíu árum liðnum. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns fá flóttamannavegabréf (í. documenti di viaggio) með fimm ára gildistíma en handhafar viðbótarverndar geta fengið svonefnt ferðaleyfi (í. titolo di viaggio). Af framangreindum gögnum verður þó ekki séð að á Ítalíu sé munur á réttindum einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og handhafa viðbótarverndar hvað snertir aðgang að húsnæði, heilbrigðisþjónustu og atvinnuleyfi.

Af framangreindum gögnum má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt ofangreindri skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna hefur stofnunin meðal annars gagnrýnt skipulag og bolmagn ítalska hæliskerfisins til að taka við skyndilegu og verulegu flæði flóttamanna til landsins. Þá er greint frá vanköntum á aðlögun einstaklinga með alþjóðlega vernd að ítölsku samfélagi. Í framangreindum gögnum kemur einnig fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu eiga ekki rétt á þeim stuðningi sem umsækjendum um alþjóðlega vernd sé veittur enda sé gert ráð fyrir því að einstaklingar sjái fyrir sér sjálfir eftir að hafa verið veitt alþjóðleg vernd. Þegar einstaklingi með alþjóðlega vernd sé vísað aftur til Ítalíu eigi hann rétt á því að gista í svokölluðum SPRAR móttökumiðstöðvum, að því gefnu að viðkomandi hafi ekki fullnýtt heimild til dvalar þar og að laust pláss sé til staðar. Þó kemur fram að takmarkað framboð sé af gistirýmum í SPRAR móttökumiðstöðvum. Einnig bjóði sveitarfélög, frjáls félagasamtök og trúfélög í Róm og Mílanó upp á einhverja gistiaðstöðu en gistirými séu hins vegar af skornum skammti og því séu margir einstaklingar sem njóti verndar heimilislausir eða búi í yfirgefnum byggingum. Þá kemur fram í framangreindum skýrslum að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar og hafa dvalarleyfi á Ítalíu hafa sama rétt til atvinnuþátttöku og ítalskir ríkisborgarar. Hins vegar sé atvinnuleysi mikið þar í landi og eigi útlendingar oft í miklum erfiðleikum með að finna vinnu, sérstaklega ef þeir tala ekki tungumálið eða menntun þeirra eða reynsla fæst ekki metin. Þar að auki er möguleiki þeirra á því að fá bætur frá félagsmálayfirvöldum afar takmarkaður, enda byggir kerfið að miklu leyti á því að einstaklingar eigi þar fjölskyldu sem veitt geti þeim stuðning, auk þess sem gert sé ráð fyrir því að einstaklingar sem hlotið hafi alþjóðlega vernd geti séð fyrir sér sjálfir.

Í framangreindum gögnum kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eiga sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu, en þeir þurfa að skrá sig inn í heilbrigðiskerfið. Sjúklingar þurfa almennt að greiða hluta þess kostnaðar sem fellur til vegna heilbrigðisþjónustu sem þeir nýta sér en frá því eru þó undantekningar, t.d. í þeim tilvikum þegar sjúklingar hafa ekki efni á því. Einstaklingar sem dvelja í SPRAR móttökumiðstöðvunum eru undanþegnir slíkri greiðsluþátttöku. Til að fá aðgang að heilbrigðisþjónustu umfram grunnþjónustu þurfa einstaklingar að vera með skráð lögheimili. Þegar einstaklingar hafa skráð lögheimili sitt eiga þeir rétt á að fá sjúkrakort frá sveitarfélögum, en sjúkrakort veitir einstaklingum til dæmis aðgang að heimilislæknum og öðrum sérfræðilæknum sem annars falla ekki undir grunnheilbrigðisþjónustu. Eðli máls samkvæmt getur lögheimilisskráning reynst vandamál, t.d. fyrir einstaklinga sem eru heimilislausir. Þó hafa ýmis frjáls félagasamtök tekið upp á því að útvega heimilislausum málamyndalögheimili, t.d. með því að skrá lögheimili þeirra hjá sér.

Af framangreindum skýrslum verður ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna sé vandamál á Ítalíu en ítölsk yfirvöld hafi gripið til aðgerða til að sporna við kynþáttafordómum og mismunun á grundvelli kynþáttar, m.a. með lagasetningu. Í kjölfar athugasemda alþjóðlegra eftirlitsnefnda, stofnana og frjálsra félagasamtaka hafa ítölsk stjórnvöld tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum, þ. á m. með aðgerðaráætlun gegn kynþáttahyggju (e. National Action Plan against Racism, Xenophobia and Intolerance). Þá hefur rannsóknum og ákærum fjölgað í málum er varða mismunun, hatursorðræðu og hatursglæpi á grundvelli kynþáttar og þjóðernis.

Samkvæmt dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er bann við meðferð sem fer gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu fortakslaust. Meðferð verður þó að fullnægja lágmarkskröfu um alvarleika til að teljast brot gegn 3. gr. sáttmálans, sem fyrr segir. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur lagt til grundvallar að sú staðreynd ein og sér að efnahagslegar aðstæður einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki sáttmálans sé ekki fullnægjandi til að uppfylla grundvallarkröfu um þann alvarleika sem 3. gr. sáttmálans geri kröfu um, þ.e. þar sem ekki sé um að ræða sérstaklega sannfærandi mannúðaraðstæður sem mæli gegn flutningi einstaklings, sbr. ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussain o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (mál nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013. Um endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar vísar kærunefnd jafnframt til dóms Hæstaréttar frá 1. október 2015 í máli nr. 114/2015.

Athugun kærunefndar á aðstæðum einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda til Ítalíu brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns á Ítalíu, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd til Ítalíu.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Aðstæður kæranda hafa verið raktar. Kemur framangreind frásögn kæranda að mestu leyti heim og saman við heimildir um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu sem kærunefnd hefur kynnt sér, þ.e. hvað varðar takmarkað aðgengi að vinnumarkaðnum og félagslegu húsnæði, framfærslu frá yfirvöldum og aðstoð við að aðlagast ítölsku samfélagi.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Af framangreindum gögnum um aðstæður á Ítalíu verður ráðið að verði kærandi fyrir mismunun á grundvelli [...] geti hann leitað ásjár ítalskra yfirvalda vegna þess.

Þá telur kærunefnd að gögn málsins bendi ekki til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Svo sem fram hefur komið glímdi kærandi við [...] en hefur nú farið í aðgerð hér á landi vegna þess. Að mati kærunefndar gefa framlögð heilsufarsgögn kæranda ekki annað til kynna en að ráðin hafi verið bót á framangreindu vandamáli að nokkru eða öllu leyti. Þá liggur fyrir að kærandi hefur nú hitt sálfræðing, líkt og hann óskaði eftir. Það er mat kærunefndar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af framangreindum gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu má ráða að þeir eiga rétt á heilbrigðisþjónustu, að því gefnu að þeir skrái sig inn í heilbrigðiskerfið. Þó svo að mikið álag sé á hæliskerfi Ítalíu telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í landinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað sér aðgengilegrar og fullnægjandi heilbrigðisþjónustu þar í landi.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins, svo og skýrslur og aðrar upplýsingar um aðstæður á Ítalíu. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtölum hjá Útlendingastofnun, dags. 29. september og 26. október 2017, ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 13. september 2017.

Reglur stjórnsýsluréttar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi varakröfu um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 1. mgr. 25. gr. sömu laga. Í greinargerð kæranda kemur fram sú afstaða hans að Útlendingastofnun hafi ekki rannsakað mál hans með fullnægjandi hætti, þ. á m. hafi skort á gagnaöflun af hálfu stofnunarinnar um andlegt og líkamlegt heilsufar kæranda.

Að mati kærunefndar gáfu þau málsgögn sem lágu fyrir við ákvörðunartöku hjá Útlendingastofnun ekki tilefni til að ætla að andlegt eða líkamlegt ástand kæranda væri slíkt að stofnuninni hafi borið að afla frekari gagna þar um, þrátt fyrir að kærandi hafi veitt stofnuninni heimild þess efnis. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Þá hefur kærunefnd endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Það er því mat kærunefndar að rannsókn Útlendingastofnunar hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga.

Frávísun

Kærandi kveðst hafa komið hingað til lands 11. september 2017. Hann sótti um alþjóðlega vernd 13. september 2017. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

Pétur Dam Leifsson                                                             Erna Kristín Blöndal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum