Hoppa yfir valmynd

A.16. Hagnýting upplýsingatækni til háskólanáms

Aðgerðin er í vinnslu

Tengiliður

Þórarinn V. Sólmundarson, sérfræðingur í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu [email protected]

Fréttir

27.01.22 Fjarnám á háskólastigi hefur farið hratt vaxandi. Mikil aukning hefur verið á námsfyrir-komulagi sem skilgreint hefur verið sem sveigjanlegt og nemendamiðað, ekki gerð krafa um daglegra viðveru, en nemendur mæta í námslotur og verkefnaskil eru rafræn. Nánast allt nám við Háskólann á Akureyri og Háskólann á Bifröst er hægt að taka með fjarnámsfyrirkomulagi og hlutur fjarnáms við aðra háskóla hefur farið vaxandi. Þekkingarsetur og fræðslu-aðilar vítt um land þjónusta háskólanemendur m.a. með því að halda úti les- og vinnuaðstöðu, miðla gögnum og upplýsingum, aðstöðu fyrir próftökur o.fl. Hafið er nám á háskólastigi á Austurlandi sem er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík, Háskólans á Akureyri og Austurbrúar.

18.12.20 Fjarnám á háskólastigi hefur farið hratt vaxandi undanfarin ár. Mikil aukning hefur verið á námsfyrirkomulagi sem skilgreint hefur verið sem sveigjanlegt nám, sem er nemendamiðað, ekki gerð krafa um daglegra viðveru, en nemendur mæta í námslotur og verkefnaskil eru rafræn. Allir fylgja sömu námskránni og námskröfur eru þær sömu. Nánast allt nám við Háskólann á Akureyri og Háskólann á Bifröst er hægt að taka með fjarnámsfyrirkomulagi. Þekkingarsetur og fræðsluaðilar vítt um land þjónusta háskólanemendur m.a. á sviði fjarfundakennslu, les- og vinnuaðstöðu, miðlun gagna og upplýsinga, próftökur o.fl. Árið 2019 voru fjarpróf háskólanemenda 6.500 talsins. Í undirbúningi er gerð úttektar á gæðum fjarnáms og meistaranáms þvert á háskóla.

29.11.19 Til margvíslegra aðgerða hefur verið gripið bæði af ráðuneyti og háskólum. Framboð fjarnáms fer hratt vaxandi og hlutur fjárnámsnemenda árið 2017 var að meðaltali 16,5%. Hlutfallið er hæst hjá háskólum á landsbyggðinni, 67% við Bifröst, 48% við HA og 38% við Lbhí. Í undir­búningi er gerð úttekt á gæðum fjarnáms og meistaranáms þvert á háskóla og unnið er að þróun fagháskólanáms.

Verkefnið

Verkefnismarkmið: Að bæta aðgengi að námi á háskólastigi. 

Aukin áhersla verði lögð á fjölbreytt námsframboð háskóla í fjarnámi, m.a. með auknu samstarfi háskóla um sameiginlegar prófgráður. Efla skal grunngerð fræðsluaðila með það að markmiði að bæta tæknilegan útbúnað þeirra, aðstöðu fyrir nemendur, námsráðgjöf og fleira. Árangur af verkefninu verði m.a. mældur í fjölda háskólanema í stað- og fjarkennslu, námsframboði háskóla í fjarnámi og hækkuðu menntunarstigi. 

  • Ábyrgð: Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið
  • Framkvæmdaraðili: Háskólar og fræðsluaðilar. 
  • Dæmi um samstarfsaðila: Þekkingarsetur, háskólafélög, þekkingarnet, símenntunarstöðvar, fræðslunet, framhaldsskólar og landshlutasamtök sveitarfélaga. 
  • Tímabil: 2018–2024. 
  • Tillaga að fjármögnun: Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Menntamál
Stafrænt Ísland
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum