Hoppa yfir valmynd

C.05. Varmadæluvæðing á köldum svæðum

Aðgerðin er í vinnslu

Tengiliður    Erla Sigríður Gestsdóttir,umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu
                     [email protected]

Fréttir

27.01.22 Veittur var styrkur til kaupa sjóvarmadælu í Vestmannaeyjum og eru fleiri köld svæði sem eru með fjarvarmaveitur til skoðunar. Styrkir til einstaklinga til kaupa á varmadælum hafa verið hækkaðir og áætlað að þeir verði um 25 m.kr. árið 2021. Orkusjóður hefur veitt sveitarfélögum fjárfestingastyrki til verkefna sem leiða til lægri kostnaðar við óniðurgreitt rafhitað húsnæði og mannvirki. Tengist aðgerð A.14.

18.12.20 Ríkið hefur styrkt sjóvarmadælu í Vestmannaeyjum og eru fleiri köld svæði sem eru með fjarvarmaveitur til skoðunar. Þá er skoðað að auka styrki til einstaklinga til kaupa á varmadælum. Orkusjóður hefur veitt sveitar­félögum fjárfestingastyrki til verkefna sem leiða til lægri kostnaðar við óniðurgreitt rafhitað húsnæði og mannvirki. Árið 2018 námu styrkirnir 20 m.kr. og 2019 eru 25 m.kr. til ráðstöfunar. Tengist aðgerð A.14. 

Verkefni

Verkefnismarkmið: Að draga úr raforkunotkun á köldum svæðum og auka orkuöryggi. 

Dregið verði úr raforkunotkun kyntra hitaveitna og orkuöryggi aukið með varmadæluvæðingu á köldum svæðum með því að styðja uppsetningu varmadælna. Árangur af verkefninu verði mældur í lægri orkukostnaði á landsvísu og auknu orkuöryggi. 

  •  Ábyrgð: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti. 
  •  Framkvæmdaraðili: Orkusjóður. 
  •  Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög. 
  •  Tímabil: 2019–2023. 
  •  Tillaga að fjármögnun: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti. 

Auðlindir
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum