Hoppa yfir valmynd

Víti til varnaðar - morgunverðarfundur um umferðaröryggi

Umferðaröryggisráð og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið bjóða til morgunverðarfundar í Norræna húsinu fimmtudaginn 9. maí kl. 8.30. Markmið fundarins er að kynna nýtt slysakort, fara yfir tölfræði umferðarslysa árið 2018, helstu breytingar og með hvaða hætti tölfræðin nýtist til forvarna.

Fundurinn í Norræna húsinu er opinn öllum. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00 en dagskrá hefst kl. 8:30 og stendur til kl. 10. Fundinum verður einnig streymt í beinni útsendingu á vef Stjórnarráðsins.

+ Skráning á morgunverðarfund

Dagskrá

  • Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra setur fundinn.
  • Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu.
    „Slysaskýrsla 2018 og nýtt slysakort“
  • Auður Þóra Árnadóttir, forstöðumaður umferðardeildar hjá Vegagerðinni.
    „Nýting slysagagna við forgangsröðun umferðaröryggisaðgerða og helstu aðgerðir 2019.“
  • Þorsteinn R. Hermannsson, samgöngustjóri Reykjavíkurborgar
    „Umferðaröryggisáætlun Reykjavíkur; öryggi óháð ferðamáta.“
  • Pallborðsumræður með fyrirlesurum og Oddi Árnasyni, yfirlögregluþjóni á Suðurlandi.
  • Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum