Hoppa yfir valmynd

Aðgerð

A.10. Almenningssamgöngur um land allt

Aðgerðin er í vinnslu

Tengiliður     Árni Freyr Stefánsson, sérfræðingur í innviðaráðuneytinu
                      [email protected]

Fréttir

27.01.22 Fyrsta heildarstefna í almenningssamgöngum milli byggða, Ferðumst saman, var samþykkt sem hluti af samgönguáætlun haustið 2019. Auglýst var eftir umsóknum 2020 og 2021. Samtals hefur verið úthlutað 83,3 m.kr. til 18 verkefna sem styðja við þróun almennings-samgangna, einkum út frá byggðalegum sjónarmiðum.

05.10.21 Sjö verkefni á sviði almenningssamgangna fá úthlutað 36 milljónum.

16.08.21 Opnað fyrir umsóknir um framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna.

18.09.20 Ellefu verkefni á sviði almenningssamgangna fá úthlutað 32,5 milljónir

16.06.20 Opnað fyrir umsóknir um framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna.

29.11.19 Vegagerðin mun endurskoða leiðakerfið með samræmdum hætti fyrir land allt árið 2020. Í skoðun er hvernig fjármagn af byggðalið nýtist best til að bæta þjónustu og styrkja byggðir. Heildarstefna í almenningssamgöngum milli byggða liggur fyrir og fer sem fylgiskjal samgönguáætlunar fyrir Alþingi. 

14.02.19 Stefna mótuð um almenningssamgöngur fyrir allt landið 

Verkefnið

Verkefnismarkmið: Að styðja við áframhaldandi þróun almenningssamgangna um land allt. 

Stutt verði við leiðir sem hafa mikilvægu hlutverki að gegna út frá byggðalegum sjónarmiðum. Hugað verði að nýtingu vistvænna orkugjafa. Árangur af verkefninu verði m.a. mældur með fjölda þeirra sem nota almenningssamgöngur. 

  • Ábyrgð: Innviðaráðuneytið. 
  • Framkvæmdaraðili: Landshlutasamtök sveitarfélaga og Vegagerðin. 
  • Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög og ferðaþjónustufyrirtæki. 
  • Tímabil: 2019–2022. 
  • Tillaga að fjármögnun: 107,5 millj. kr. úr byggðaáætlun.

Samgöngur og fjarskipti
Umhverfi og náttúruvernd
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum