Hoppa yfir valmynd

Stjórn Byggðastofnunar

Innviðaráðuneytið

Stjórn Byggðastofnunar er kjörin á ársfundi stofnunarinnar til eins árs í senn skv. 3. gr. laga um Byggðastofnun nr. 106/1999. Sjö einstaklingar eru kjörnir í stjórn og sjö til vara. Ráðherra byggðamála skipar formann og varaformann og ákveður þóknun stjórnar.

Stjórn Byggðastofnunar ber ábyrgð á starfsemi stofnunarinnar og stefnumótun hennar sem og áhættustefnu og að til staðar sé virkt kerfi innra eftirlits sem samræmist lögum um fjármálafyrirtæki og reglum settum með stöð í þeim. 

Stjórn Byggðastofnunar var skipuð á ársfundi stofnunarinnar þann 27. apríl 2023 og í henni sitja:

Aðalmenn:

  • Halldóra Kristín Hauksdóttir, formaður,
  • Rúnar Þór Guðbrandsson, varaformaður,
  • Gunnar Þorgeirsson,
  • Óli Halldórsson,
  • Karl Björnsson,
  • María Hjálmarsdóttir,
  • Jónína Björk Óskarsdóttir.

Varamenn:

  • Katrín Sigurjónsdóttir,
  • Garðar Freyr Vilhjálmsson,
  • Lilja Björg Ágústsdóttir,
  • Guðný Hildur Magnúsdóttir,
  • Valgerður Rún Benediktsdóttir,
  • Valgarður Lyngdal Jónsson,
  • Sigurjón Þórðarson.

Skipunartími stjórnar er fram að næsta ársfundi stofnunarinnar sem halda skal fyrir 1. júlí 2024.

Ráð og stjórnir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum