Hoppa yfir valmynd

Tækniþróunarsjóður - stjórn 2023-2025

Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Stjórn Tækniþróunarsjóðs ákveður áherslur sjóðsins samkvæmt skilgreindu hlutverki hans, sbr. 10. gr. laga nr. 75/2007 um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun. Stjórnin tekur ákvarðanir um fjárveitingar úr sjóðnum að fengnum umsögnum fagráða sem tækninefnd Vísinda- og tækniráðs skipar til tveggja ára í senn. Fagráðin eru ráðgefandi um fagleg málefni við úthlutanir úr Tækniþróunarsjóði. Jafnframt eru fagráðin ráðgefandi fyrir Vísinda- og tækniráð og undirnefndir þess eftir því sem óskað er. Stjórnin er skipuð af háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og er skipunartími tvö ár í senn.

Aðalmenn

  • Guðrún Inga Ingólfsdóttir, formaður, tilnefnd af háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir, tilnefnd af matvælaráðherra
  • Kjartan Hansson, tilnefndur af Samtökum iðnaðarins
  • Anna Karlsdóttir, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
  • Björn Lárus Örvar, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
  • Stefanía Bjarney Ólafsdóttir, varaformaður, tilnefnd af Vísinda- og nýsköpunarráði

Varamenn

  • Tómas Ottó Hansson, tilnefndur af háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Helgi E. Þorvaldsson, tilnefndur af matvælaráðherra
  • Nanna Elísa Jakobsdóttir, tilnefnd af Samtökum iðnaðarins
  • Erlingur Brynjúlfsson, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
  • Ásdís Virk Sigtryggsdóttir, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
  • Tatjana Latinovic, tilnefnd af Vísinda- og nýsköpunarráði
Fastanefndir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum