Hoppa yfir valmynd

Vinnumarkaðsráð Suðurnesja

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Samkvæmt 6. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, skipar ráðherra sjö manna svæðisbundin vinnumarkaðsráð. Í hvert vinnumarkaðsráð eru tilnefndir tveir ráðsmenn af samtökum launafólks á hverju svæði og tveir af samtökum atvinnurekenda. Jafnframt er einn ráðsmaður tilnefndur af sveitarfélögum á hverju svæði, einn af mennta- og menningarmálaráðherra og einn skipaður án tilnefningar. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi þeirra sem tilnefndir eru sem aðalmenn.

Vinnumarkaðsráð á hverju svæði skal skila skýrslu til stjórnar Vinnumálastofnunar um stöðu atvinnumála í nóvember ár hvert ásamt tillögum um þær vinnumarkaðsaðgerðir sem mælt er með að lögð verði áhersla á árið eftir. Enn fremur skulu vinnumarkaðsráðin vera hlutaðeigandi þjónustustöð Vinnumálastofnunar til ráðgjafar um skipulag og val á vinnumarkaðsúrræðum.

Aðalmenn

  • Trausti Arngrímsson - án tilnefningar formaður
  • Guðbjörg Kristmundsdóttir - tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands
  • Gunnur Líf Gunnarsdóttir - tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
  • Stefán Sigurðsson - tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
  • Stefán B. Ólafsson - tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands - opinberir starfsmenn
  • Guðjónína Sæmundsdóttir - tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneytinu
  • Dagný Gísladóttir - tilnefnd af Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum
     

Varamenn

  • Eva Stefánsdóttir - án tilnefningar
  • Bryndís Kristjánsdóttir - tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands
  • Falur Harðarson - tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
  • Elín Árnadóttir - tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
  • Ingvar G. Georgsson - tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands - opinberir starfsmenn
  • Nanna Bára Maríasdóttir - tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneytinu
  • Berglind Kristinsdóttir - tilnefnd af Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum
     

Skipað af félags- og barnamálaráðherra frá 1. september 2020 til 1. september 2024


"
Ráð og stjórnir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum