Hoppa yfir valmynd

Vinnumarkaðsráð Vesturlands

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Samkvæmt 6. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, skipar ráðherra sjö manna svæðisbundin vinnumarkaðsráð. Í hvert vinnumarkaðsráð eru tilnefndir tveir ráðsmenn af samtökum launafólks á hverju svæði og tveir af samtökum atvinnurekenda. Jafnframt er einn ráðsmaður tilnefndur af sveitarfélögum á hverju svæði, einn af mennta- og menningarmálaráðherra og einn skipaður án tilnefningar. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi þeirra sem tilnefndir eru sem aðalmenn.

Vinnumarkaðsráð á hverju svæði skal skila skýrslu til stjórnar Vinnumálastofnunar um stöðu atvinnumála í nóvember ár hvert ásamt tillögum um þær vinnumarkaðsaðgerðir sem mælt er með að lögð verði áhersla á árið eftir. Enn fremur skulu vinnumarkaðsráðin vera hlutaðeigandi þjónustustöð Vinnumálastofnunar til ráðgjafar um skipulag og val á vinnumarkaðsúrræðum.

Aðalmenn

  • Davíð Sigurðsson - án tilnefningar formaður
  • Daði Jörgensson - tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
  • Guðmundur Smári Guðmundsson - tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
  • Bolli Árnason - tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
  • Helga Hafsteinsdóttir - tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands - opinberir starfsmenn
  • Inga Dóra Halldórsdóttir - tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneytinu
  • Valgarð Jónsson - tilnefndur af samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi.
     

Varamenn

  • Liv Aase Skarstad - án tilnefningar
  • Anna Ágústa Halldórsdóttir - tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands
  • Ólafur Rögnvaldsson - tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
  • Sigríður Margrét Guðmundsdóttir - tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
  • Ingveldur Jónsdóttir - tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands - opinberir starfsmenn
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir - tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneytinu
     

Skipað af félags- og barnamálaráðherra frá 24. ágúst 2020 til 24. ágúst 2024.

"
Ráð og stjórnir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum