Hoppa yfir valmynd
19. febrúar 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Umsóknir um embætti skrifstofustjóra

Félagsmálaráðuneytið - mynd

Alls barst 31 umsókn um embætti skrifstofustjóra á þremur skrifstofum félagsmálaráðuneytisins en umsóknarfrestur rann út 18. febrúar síðastliðinn. Um er að ræða skrifstofu barna- og fjölskyldumála, skrifstofu húsnæðis- og lífeyrismála auk skrifstofu vinnumarkaðar og starfsendurhæfingar.

Sérstök hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, mun meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra. Nefndin starfar samkvæmt reglum nr. 393/2012, um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands.

Umsækjendur er eftirtaldir:

  • Arna Þórdís Árnadóttir, fulltrúi
  • Ágúst Þór Sigurðsson, settur skrifstofustjóri
  • Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri
  • Ásthildur Knútsdóttir, staðgengill skrifstofustjóra
  • Berglind Sigurðardóttir, skipulagsfræðingur
  • Bjarnheiður Gautadóttir, settur skrifstofustjóri
  • Björg Kjartansdóttir, sviðsstjóri
  • Erna Kristín Blöndal, verkefnastjóri
  • Eyþór Benediktsson, sérfræðingur
  • Gerður Ríkharðsdóttir, rekstrarráðgjafi
  • Gunnhildur Gunnarsdóttir, lögfræðingur
  • Hanna Lára Steinsson, félagsráðgjafi
  • Haukur Eggertsson, iðnaðarverkfræðingur
  • Hrafnhildur Sif Hrafnsdóttir, árangursstjóri
  • Ingvar Sverrisson, lögfræðingur
  • Jónína Margrét Sigurðardóttir, uppeldis- og meðferðarfulltrúi
  • Kristian Guttesen, doktorsnemi
  • Kristín Jónsdóttir, félagsráðgjafi
  • Lísa Margrét Sigurðardóttir, lögfræðingur
  • María Rúnarsdóttir, félagsráðgjafi
  • Pétur T. Gunnarsson, verkefnastjóri
  • Ragna María Ragnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
  • Ragnhildur Ísaksdóttir, starfsmannastjóri
  • Sigurrós Ásgerður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri
  • Skúli Þórðarson, fyrrum sveitarstjóri
  • Steinunn Jóhanna Bergmann, sérfræðingur
  • Sunna Arnardóttir, sérfræðingur
  • Tómas Kristjánsson, framkvæmdastjóri
  • Veturliði Þór Stefánsson, lögfræðingur
  • Vilhjálmur Bergs, lögfræði- og fjármögnunarráðgjafi
  • Þórunn Oddný Steinsdóttir, lögfræðingur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum