Hoppa yfir valmynd
13. janúar 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Styrkir til fráveituframkvæmda sveitarfélaga

Styrkir til fráveituframkvæmda sveitarfélaga  - myndHeidi Orava/norden.org

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að gera þurfi átak í fráveitumálum í samstarfi ríkis og sveitarfélaga enda þörf á verulegri uppbygginu í þessum málaflokki. Í fjárlögum ársins í ár er gert ráð fyrir að 800 m.kr. verði varið til þess að styrkja sveitarfélög vegna fráveituframkvæmda. Styrkirnir eru liður í sérstöku fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirunnar. Áður hafði verið ákveðið að 200 m.kr. yrði varið til þessa vegna framkvæmda síðasta árs. Heildarfjárhæð sem nú er til úthlutunar nemur því um 1 milljarði króna. Ráðgert er að opna fyrir umsóknir fyrir lok janúar nk.

Styrkhæfar fráveituframkvæmdir

Skilyrði er að fráveituframkvæmdin sé áfangi í heildarlausn á fráveitumálum sveitarfélags í samræmi við áætlun sem hlotið hefur samþykki umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Jafnframt er skilyrði að kostnaður við styrkhæfa fráveituframkvæmd hafi fallið til eftir 1. janúar 2020.

Styrkhæfar fráveituframkvæmdir eru framkvæmdir við safnkerfi fráveitna, hreinsivirki, dælustöðvar og útrásir. Einnig framkvæmdir við hreinsun ofanvatns, svo sem til að draga úr mengun af völdum örplasts en rannsóknir hafa sýnt að megnið af örplastsmengun berst til sjávar með ofanvatni.

Kostnaður við útboð, fjármagns- og lántökukostnaður og kaup á löndum og lóðum vegna framkvæmda í fráveitumálum teljast ekki styrkhæf. Sama gildir um hefðbundið viðhald og endurbætur á eldri fráveitukerfum. Þó eru endurbætur á eldri kerfum styrkhæfar, ef tilgangurinn með endurbótunum er að kerfin standist gildandi kröfur laga og reglugerða.

Sótt er um á vef ráðuneytisins

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið mun auglýsa árlega á vef ráðuneytisins eftir umsóknum um styrki vegna fráveituframkvæmda og sækja sveitarfélög um styrk á vefnum. Styrkfjárhæð nemur að jafnaði 20% af staðfestum heildarkostnaði styrkhæfrar fráveituframkvæmdar. Styrkfjárhæð skal þó aldrei verða hærri en 30% af heildarkostnaði og að jafnaði aldrei lægri en 15%.

Ráðuneytið miðar að því að greiða styrk til allra umsækjenda uppfylli umsókn skilyrði reglugerðar nr. 1424/2020 um úthlutun styrkja til fráveitna sveitarfélaga.

Umsóknum skal fylgja verk- og tímaáætlun fyrir þá áfanga framkvæmdar sem sótt er um styrk fyrir og uppfærðar upplýsingar um framkvæmdina og kostnað frá samþykktri áætlun eftir því sem við á auk afrita af greiddum reikningum eftir atvikum.

Umsóknir sem ekki uppfylla skilyrði auglýsingar og úthlutunarskilamála samkvæmt meðfylgjandi reglum verða ekki teknar til umfjöllunar.

Greiðslur styrkja

Styrkir verða greiddir reglulega yfir árið og a.m.k. árlega eftir því sem fjárheimildir leyfa. Styrkir verða einungis greiddir út á grundvelli þegar greiddra reikninga. Upplýsingar um útgreiðslu styrkja, útgreiðsluáætlun og útgreiðsluhlutfall verða birtar á vef ráðuneytisins.

Reglugerð um úthlutun styrkja til fráveitna sveitarfélaga

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Pálsson, s. 545-8600, netfang: [email protected]

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum