Hoppa yfir valmynd
12. júní 2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Lög um bann við allri mismunun

Alþingishúsið við Austurvöll. - myndEydís Eyjólfsdóttir

Frumvörp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og jafnréttismálaráðherra, um jafna meðferð á vinnumarkaði og jafna meðferð einstaklinga óháð kynþætti og þjóðernisuppruna urðu að lögum frá Alþingi í gær.

Með lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði er skýrt kveðið á um bann við allri mismunun fólks á vinnumarkaði, hvort heldur beina eða óbeina, á grundvelli kynþáttar, þjóðernisuppruna, trúar, lífsskoðunar, fötlunar, skertrar starfsgetu, aldurs, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna eða kyntjáningar. Þetta þykir mikilvægt til að stuðla að virkri þátttöku sem flestra á vinnumarkaði en atvinnuþátttaka er talin ein þýðingarmesta leiðin til að koma í veg fyrir félagslega einangrun og fátækt. Við lagasetninguna var höfð hliðsjón af tilskipun ráðherraráðs Evrópusambandsins 2000/78/EB um almennar reglur um jafna meðferð á vinnumarkaði og í atvinnulífinu.

Með lögum um jafna meðferð einstaklinga óháð kynþætti og þjóðernisuppruna er kveðið á um meginregluna um jafna meðferð einstaklinga á öllum sviðum samfélagsins, utan vinnumarkaðar. Við lagasetninguna var höfð hliðsjón af efni tilskipunar 2000/43/EB um jafna meðferð óháð kynþætti eða þjóðernisuppruna.

Með skýru banni við mismunun er horft til þess að stuðla að virkri þátttöku sem flestra í íslensku samfélagi óháð kynþætti og þjóðernisuppruna og koma í veg fyrir félagslega einangrun einstaklinga af sömu ástæðum. Markmiðið er einnig að sporna við því að skoðanir á mismunandi verðleikum kynþátta festi hér rætur.

Ákvæði til bráðabirgða um frekari lagasetningu

Í meðförum Alþingis var bætt við ákvæði til bráðabirgða með lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna þar sem kveðið á um að ráðherra skuli innan árs leggja fram á Alþingi frumvarp til breytinga á lögunum um að meginreglan um  jafna meðferð einstaklinga nái einnig til trúar, lífsskoðunar, fötlunar, kynhneigðar og kynvitundar á öllum sviðum samfélagsins nema á vinnumarkaði. Velferðarráðuneytið mun við gerð breytingalaga um útvíkkun á gildisviði laganna eiga samráð við þá hagsmunaaðila sem láta sig varða þá mismununarþætti sem um ræðir sem og um mat á áhrifum laganna.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum