Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Ekki ástæða til aðgerða vegna útbreiðslu Covid-19 í Kína

Keflavíkurflugvöllur - mynd

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnar á föstudag minnisblað sóttvarnalæknis til ráðherra um möguleg áhrif útbreiðslu Covid-19 í Kína hér á landi. Að mati sóttvarnalæknis mæla fagleg rök ekki með því að taka upp aðgerðir á landamærum hér til að vernda lýðheilsu og heldur ekki aðgerðir sem beinist sérstaklega að Kína sem brottfararlandi.

Þann 4. janúar síðastliðinn fór fram fundur neyðarráðs Evrópusambandsins (IPCR) eftir fundi aðildarríkja sambandsins 29. desember og 3. janúar sl. Í framhaldi af þessum fundum voru gefin út tilmæli sem miða að því að samræma nálgun landa vegna útbreiðslu Covid-19 í Kína. Tilmælin eru ekki bindandi og gert ráð fyrir að lönd aðlagi þau að aðstæðum sínum. Í meðfylgjandi minnisblaði sóttvarnalæknis eru tilmælin rakin og rök sóttvarnalæknis fyrir því mati að ekki séu faglegar ástæður til þess að grípa til aðgerða á landamærum hér á landi.

Í minnisblaði sóttvarnalæknis segir að með auknu eftirliti alþjóðlegra sóttvarnastofnana og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), auk þeirra aðgerða sem Evrópulönd með beinar flugtengingar við Kína eru að vinna að sé hugsanlegt að á næstu vikum komi fram upplýsingar sem gefi tilefni til að endurskoða áhættumatið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum