Hoppa yfir valmynd
12. nóvember 2018 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra tekur þátt í ráðstefnu Süddeutsche Zeitung og fundar með kanslara Þýskalands

Frá opnun ráðstefnu Süddeutsche Zeitung í Berlín - mynd

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tekur þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um efnahagsmál á vegum Süddeutsche Zeitung í Berlín á morgun, 13. nóvember. Forsætisráðherra mun einnig eiga tvíhliða fund með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands í Berlín á morgun.

Forsætisráðherra flytur ávarp ásamt Jüri Ratas, forsætisráðherra Eistlands og Ana Brnabić, forsætisráðherra Serbíu, á ráðstefnunni. Forsætisráðherrarnir munu einnig taka þátt í umræðum um stafrænar framfarir í Evrópu (Europe Digital – Three countries and Their Vision) að ávörpum loknum sem Wolfgang Krach, aðalritstjóri Süddeutsche Zeitung, stýrir.

Þá tekur Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, þátt í hátíðarkvöldverði þar sem Angela Merkel, kanslari Þýskalands, ávarpar gesti.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum