Hoppa yfir valmynd
23. nóvember 2020 Heilbrigðisráðuneytið

4,1 milljarður í aukningu til reksturs Landspítala

Landspitali við Hringbraut - myndStjórnarráðið

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs verður aðhaldskrafa á allar heilbrigðisstofnanir landsins 0,5%. Hjá Landspítala nemur þessi krafa um 400 milljónum króna. Heildarframlög til reksturs spítalans árið 2021 verða 77,9 milljarðar króna sem er hækkun um 4,1 milljarð króna frá þessu ári.

Fjallað var um drög að rekstraráætlun Landspítala í fréttum RÚV um helgina. Af umfjölluninni mátti ráða að Landspítala verði gert að sæta 4,3 milljarða króna hagræðingarkröfu í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Eins og að framan greinir er það ekki rétt þar sem aðhaldskrafan er um 400 milljónir króna. Á móti fær spítalinn 1,3 milljarða króna til að mæta raunvexti vegna fjölgunar landsmanna og hlutfallslegrar fjölgunar aldraðra, auk viðbótarfjármagns til að mæta launa- og verðlagsbreytingum. Þá liggur jafnframt fyrir að Landspítala verða bætt aukin útgjöld vegna COVID-19 faraldursins.

Rekstur Landspítala hefur farið fram úr fjárlögum síðustu ár og nam uppsafnaður  halli í lok árs 2019 um 3,8 milljörðum króna. Gert er ráð fyrir að Landspítali fái svigrúm til að vinna upp hallareksturinn á þremur árum. Fyrirhugaður er fundur í ráðuneytinu með Landspítala til að ræða þessi mál síðar í vikunni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum