Hoppa yfir valmynd
13. nóvember 2020 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Tilslakanir á sóttvarnaráðstöfunum í framhaldsskólum: Hámarksfjöldi verður 25

Sveigjanleiki verður aukinn fyrir nemendur, starfsfólk og kennara í framhaldsskólum frá og með miðvikudeginum 18. nóvember nk.

Gildandi sóttvarnareglur kveða á um að hámarksfjöldi nemenda og starfsmanna fari aldrei yfir 10 í hverju rými en frá og með miðvikudeginum verður sá hámarksfjöldinn hækkaður í 25 einstaklinga í hverju rými. Regla um minnst 2 metra fjarlægð milli fólks verður áfram í gildi, og sé ekki hægt að halda lágmarksfjarlægð ber nemendum og starfsfólki að nota grímur.

„Við teljum við mikilvægt að opna framhaldsskólana með þessum hætti og skapa svigrúm fyrir meira starf innan veggja framhaldsskólanna. Ég treysti skólastjórnendum til þess að aðlaga sitt skólastarf með hliðsjón af þessum tilslökunum og aðstæðum hverju sinni. Skólafólk hefur unnið þrekvirki við að halda uppi virku skólastarfi og leitar sífellt leiða til það mæta fjölbreyttum þörfum sinna nemenda,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Ekki eru gerðar hliðstæðar breytingar og tilslakanir á hámarksfjölda í háskólum. Þar gildir áfram regla um að fjöldi nemenda og starfsmanna fari ekki yfir 10 í hverju rými. Heimilt er þó að halda samkeppnispróf, þýðingarmikil lokapróf og staðbundnar námslotur fyrir allt að 30 einstaklinga í vel loftræstum rýmum, að uppfylltri 2 metra nálægðartakmörkun og ýtrustu sóttvarnaráðstöfunum.

Ný reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar er væntanleg, gildistími hennar verður frá og með 18. nóvember nk. og til og með 1. desember 2020.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum