Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2023 Utanríkisráðuneytið

Ísland sendir neyðarbirgðir til Tyrklands

100 tonn af neyðarbirgðum á leið til Tyrklands. - mynd

Fraktflugvél á vegum íslenskra stjórnvalda flaug í nótt með 100 tonn af neyðarbirgðum til jarðskjálftasvæðanna í Tyrklandi þar sem milljónir manna eru húsnæðislausar. Þá hefur utanríkisráðherra ákveðið að veita 50 milljón króna neyðarframlagi til Sýrlands vegna ástandsins sem skapaðist þar í kjölfar skjálftanna fyrr í mánuðinum.

Neyðarbirgðunum, sem samanstanda af 1500 tjöldum og 8400 teppum, var flogið frá Lahore í Pakistan og áætlað er að vélin lendi síðdegis í dag í Adana í Tyrklandi. Fastanefnd Tyrklands hjá Atlantshafsbandalaginu óskaði eftir aðstoð bandalagsríkja við flutning neyðarbirgðanna og kom Jens Stoltenberg framkvæmdastjóri bandalagsins beiðninni á framfæri í lok fundar varnarmálaráðherra bandalagsins 15. febrúar síðastliðinn. 

„Staðan á jarðskjálftasvæðunum í Tyrlandi er skelfileg. Ísland tók virkan þátt í björgunarstarfinu þar sem okkar fólk frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg vann fórnfúst starf fyrstu dagana eftir jarðskjálftana. Nú aðstoðum við með því að sjá um flutninga á 100 tonnum af neyðarbirgðum til Tyrklands, tjöld og teppi fyrir fólk sem misst hefur allt sitt,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.

 Stuðningur við Sýrland

Utanríkisráðherra hefur einnig ákveðið að veita 50 milljón króna neyðarframlagi til Sýrlands vegna jarðskjálftanna 6. febrúar síðastliðinn til að koma til móts við ákall Samhæfingaskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA). OCHA áætlar að um níu milljónir manna hafi orðið fyrir áhrifum af jarðskjálftunum.

„Við megum ekki gleyma fólkinu í Sýrlandi, þar sem stríð hefur staðið yfir í tólf ár og leitt af sér miklar hörmungar fyrir íbúana. Jarðskjálftarnir eru enn eitt höggið fyrir þessar brotthættu byggðir og þörfin fyrir aðstoð alþjóðasamfélagsins aldrei verið brýnni,“ segir Þórdís Kolbrún um framlagið til Sýrlands. 

Framlaginu er veitt í svæðasjóð OCHA fyrir Sýrland sem er ætlað að auka skilvirkni mannúðaraðstoðar á svæðinu og einnig færa aðstoðina nær þeim sem hana þurfa.

 
  • Ísland sendir neyðarbirgðir til Tyrklands - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum