Hoppa yfir valmynd
27. ágúst 2021 Heilbrigðisráðuneytið

COVID-19: Meiri tilslakanir og áætlanir um notkun hraðprófa

(Uppfærð frétt, 28.09.´21)

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að gera enn frekari tilslakanir á samkomutakmörkunum sem taka gildi 28. ágúst. Grímuskylda á viðburðum utandyra verður felld brott og skýrar kveðið á um heimild til að halda einkasamkvæmi í veislusölu og sambærilegu húsnæði fram yfir miðnætti. Ráðherra hefur einnig ákveðið nánari útfærslu á notkun hraðprófa á viðburðum.

Ekki krafa um grímu á viðburðum utanhúss

Grímuskylda hefur almennt ekki verið utandyra nema á viðburðum svo sem íþróttakappleikjum þar sem gestir eru sitjandi en ekki hægt að virða eins metra nálægðarmörk. Með reglugerðinni sem tekur gildi 28. ágúst, verður ekki lengur þörf á að bera grímu á viðburðum sem fara fram utandyra, að því tilskyldu að ekki séu fleiri en 200 einstaklingar í sama rými..

Einkasamkvæmi

Nauðsynlegt þótti að skýra nánar í reglugerð heimild til að halda einkasamkvæmi fram yfir miðnætti, í húsnæði þar sem vínveitingaleyfi er ekki nýtt þótt það kunni að vera til staðar og er það gert hér með. Hér er átt við samkvæmi þar sem skilgreindur hópur skráðra boðsgesta kemur saman, s.s. í brúðkaupum eða afmælisveislum.

Nánar um hraðpróf og heimild til að nýta þau

Með reglugerðarbreytingunni er nánar kveðið á um útfærslu á notkun hraðprófa á viðburðum, en reglugerðarákvæði um notkun hraðprófa (3. mgr. 3. gr.) tekur gildi 3. september. Í samræmi við það sem fram kom í tilkynningu Stjórnarráðsins í gær um boðaðar tilslakanir og notkun hraðprófa hefur í dag verið fundað með hagsmunaaðilum sem standa fyrir stórum viðburðum til samráðs um frekari útfærslu, s.s. fulltrúum íþróttahreyfingarinnar, samtökum atvinnuveitenda í sviðslistum og fleiri aðilum. Nú liggur fyrir ákvörðun um að á viðburðum þar sem hraðpróf eru nýtt verður fólki heimilt að taka niður grímu þegar það situr. Enn fremur verður börnum á leik- og grunnskólaaldri heimilt að mæta á slíka viðburði án þess að krafist sé niðurstöðu úr hraðprófi.

Stefnt er að því að framkvæmd hraðprófa eins og hér um ræðir verði komin á fullt skrið um miðjan september og að prófin verði þá gjaldfrjáls. Í undirbúningi er að leita samninga um framkvæmdina. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum