Hoppa yfir valmynd
13. desember 2018 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Snúum vörn í sókn fyrir íslenskuna

Þingsályktunartillaga um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi hefur verið lögð fram á Alþingi. Þar er lagt til að Alþingi álykti um mikilvægi íslenskrar tungu og nauðsyn þess að tryggja að tungumálið verði áfram notað á öllum sviðum íslensks samfélags og að unnin verði aðgerðaráætlun á því sviði í víðtæku samráði. Þingsályktunin er í 22 liðum sem snerta flestar hliðar þjóðlífsins, þar á meðal eru tíu aðgerðir sem snerta menntamál, fimm sem tengjast menningu, tvær sem snerta tækniþróun, aðgengi og nýsköpun og fjórar sem tengjast stefnumótun, stjórnsýslu og atvinnulífi.

„Fyrsta aðgerðin, sem rammar hinar inn, er vitundarvakning um mikilvægi íslenskrar tungu. Til þess að aðrar aðgerðir skili sem bestum árangri viljum við vekja sem flesta til umhugsunar um mikilvægi íslenskrar tungu, fjölbreytileika hennar, gildi og sérstöðu. Vitundarvakning sem við skipuleggjum undir merkjum slagorðsins „Áfram íslenska“ minnir á að framtíð tungumálsins er á ábyrgð okkar allra; íslenskan er lifandi samskiptatæki og okkar sjálfsagða mál,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra sem mælti fyrir tillögunni.

Leitað verður eftir víðtæku samstarfi um vitundarvakninguna við stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök og kallað eftir þeirra hugmyndum og aðgerðum.

Þingsályktunartillagan fer nú til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd.
Þingskjal hennar má finna hér.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum