Hoppa yfir valmynd
24. október 2018 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Skýrsla um regluverk vegna vindorkuvera afhent ráðherra

Vindmyllur - myndJohannes Jansson/norden.org

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur móttekið skýrslu starfshóps um regluverk vegna vindorkuvera. Skýrslan felur í sér greiningu á því hvort í lögum og reglugerðum á sviði umhverfis- og auðlindaráðuneytisins sé fjallað með nægjanlegum hætti um starfsemi vindorkuvera og framkvæmdir vegna þeirra. Greiningin náði einnig til löggjafar á málefnasviði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins hvað varðar leyfisútgáfu og eftirlit.

Í skýrslunni er bent á að vindorkustarfsemi sé nýtt viðfangsefni hér á landi og að þörf sé á aukinni þekkingu þeirra sem koma að slíkum málum hvort sem um er að ræða ríki, sveitarfélög eða einkaaðila. Skipulagslöggjöf og löggjöf um mat á umhverfisáhrifum taki á slíkum framkvæmdum og starfsemi auk þess sem skylt sé að taka mið af annarri viðeigandi löggjöf vegna ýmiss konar áhrifa á umhverfið af slíkum framkvæmdum, svo sem á landslag, ferðaþjónustu, dýralíf, hljóðvist o.fl. Starfsemi og framkvæmdir vegna vindorkuvera er háð leyfum og eftirliti af hálfu hins opinbera eins og gildir um annars konar virkjanir. Niðurstaða starfshópsins er því sú að ekki sé þörf á sérlöggjöf um vindorkuframleiðslu. Hins vegar er það mat starfshópsins að tilefni sé til tiltekinna breytinga á lögum og reglum.

Í skýrslu starfshópsins er einnig bent á að verkefni stjórnvalda í Landsskipulagsstefnu 2015-2026, sem felst í því að fræða og miðla upplýsingum um skipulagsmál og umhverfismat vindorkunýtingar, muni nýtast sveitarfélögum vel við stefnumótunarvinnu tengdri skipulagsgerð. Hið sama eigi við um vinnu Skipulagsstofnunar við endurskoðun Landsskipulagsstefnu 2015-2026 þar sem eitt af áherslumálum ráðherra er stefna um skipulag vindorku með tilliti til landslags og að sett verði viðmið um slíka nýtingu.

Starfshópurinn leggur áherslu á að leiðbeiningar Skipulagsstofnunar um vindorkunýtingu verði gefnar út sem fyrst og að stofnunin skoði það samhliða með öðrum stofnunum hvort þörf verði á setningu reglna um fjarlægðarmörk milli vindmylla og annarra mannvirkja eða byggðar, m.a. með tilliti til hávaða af vindmyllum, skuggavarps og öryggisþátta.

Samantekt á niðurstöðum og tillögum starfshópsins er að finna í lokakafla skýrslunnar.

Skýrsla starfshóps um regluverk í tengslum við starfsemi og framkvæmdir vegna vindorkuvera (pdf-skjal)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum