Hoppa yfir valmynd
15. júlí 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Sjö sækja um embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri.

Sjö umsóknir bárust til heilbrigðisráðuneytis um embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri en umsóknarfrestur rann út þann 12. júlí síðastliðinn.

Umsækjendur eru eftirfarandi, í stafrófsröð:

·     Einar Örn Thorlacius, lögfræðingur

·     Guðmundur Magnússon, framkvæmdarstjóri

·     Hildigunnur Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri

·     Jón Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri

·     Kristinn v Blöndal, ráðgjafi

·     Linda Rut Benediktsdóttir, sviðsstjóri

·     Suren Kanayan, læknir

Þriggja manna hæfnisnefnd, sem starfar á grundvelli 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, mun nú meta hæfni umsækjanda en starfsreglur nefndarinnar má finna hér.

Heilbrigðisráðherra skipar í stöðu forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri til 5 ára frá 1. september  2021.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum