Hoppa yfir valmynd
31. mars 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Tæplega 25.000 umsóknir vegna minnkaðs starfshlutfalls

Við lok dags höfðu Vinnumálstofnun borist tæplega 25.000 umsóknir um atvinnuleysisbætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli.

Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að skráð atvinnuleysi verði að meðaltali 7,5 – 8% nú i mars en fari hækkandi og verði 12-13% í apríl og 11-12% í maí. Þá gerir stofnunin ráð fyrir að skráð atvinnuleysi fari lækkandi á tímabilinu maí til september, en búist er við að atvinnleysi aukist á ný í september og fram að áramótum í takt við hefðbundina árstíðarsveiflu. Spár Vinnumálastofnunar gera ráð fyrir að skráð atvinnuleysi verði að meðaltali 8% á árinu 2020.

Um helmingur umsókna hefur komið frá starfsemi tengdri ferðaþjónustu. Um 15% allra umsókna eru frá einstaklingum sem starfa við farþegaflutninga og tengda þjónustu, um 22% er frá starfsmönnum í gisti- og veitingaþjónustu og um 11% tengjast annari ferðaþjónustu. Þá koma 17% umsókna frá einstaklingum sem starfa innan atvinnugreina sem tengjast verslun og vöruflutningum og 11% frá þeim sem starfa við iðnað, byggingariðnað, sjávrútveg eða landbúnað.

Flestar eru umsóknirnar á höfuðborgarsvæðinu, eða tæplega 17.000. Um 3000 umsóknir hafa borist af Suðurnesjum og um 1750 á Suðurlandi.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: „Þessi mikli fjöldi umsókna sýnir að þessar aðgerðir sem við erum að grípa til eru að virka og markmiðið er að stuðla að því að vinnuveitendur haldi ráðningarsambandi við starfsmenn sína eins og unnt er. Við vitum að þetta er tímabundið ástand en við erum tilbúin til þess að bregðast frekar við ef þörf er á.”

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum