Hoppa yfir valmynd
6. desember 2018 Innviðaráðuneytið

Frosti Sigurjónsson leiðir vinnu vegna fyrstu kaupa á fasteignamarkaði

Frosti Sigurjónsson - myndAlþingi

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur skipað Frosta Sigurjónsson formann starfshóps sem útfæra á sértækar aðgerðir til að auðvelda ungu og tekjulágu fólki að kaupa sér íbúðarhúsnæðis. Hópurinn er stofnaður í framhaldi af tillögu ráðherra sem samþykkt var á fundi ríkisstjórnar nýlega.

 

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að ráðist verði í aðgerðir til að lækka lækka þröskuld ungs fólks og tekjulágra inn á húsnæðismarkaðinn og endurskoða í því skyni stuðningskerfi hins opinbera þannig að stuðningurinn nýtist fyrst og fremst þessum hópum. Meðal annars verði skoðaðir möguleikar á því að nýta lífeyrissparnað til þessa.

Velferðarráðuneytið í samvinnu við Íbúðalánasjóð hefur um skeið unnið að kortlagningu ýmissa úrræða sem stjórnvöld í nágrannalöndum okkar bjóða tekjulágum á húsnæðismarkaði og hafa gefið góða raun. Hafa sjónir beinst sérstaklega að tilteknum leiðum sem farnar hafa verið í Sviss og Noregi og gefist vel.

„Við vitum vel hvar skórinn kreppir, við vitum hverjir þurfa helst á stuðningi að halda og við höfum ágæta sýn á hvaða leiðir eru færar til að bæta stöðu ungs og tekjulágs fólks á húsnæðismarkaði. Nú þarf að láta verkin tala og hrinda aðgerðum í framkvæmd“ segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.

Eins og áður segir mun Frosti leiða vinnu starfshópsins en í honum eiga einnig sæti fulltrúar frá Íbúðalánasjóði, fjármála- og efnahagsráðuneytinu og forsætisráðuneytinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum