Hoppa yfir valmynd
24. mars 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Bakvarðarsveit heilbrigðisþjónustunnar endurvakin

Ákveðið hefur verið að endurvekja bakvarðasveit heilbrigðisþjónustu. Óskað er eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks sem er reiðubúið að koma tímabundið til starfa með skömmum fyrirvara, hvort heldur í fullt starf, hlutastarf eða í tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa. Þeir sem voru skráðir í bakvarðasveitina og sjá sér enn fært að veita liðsinni eru beðnir um að skrá sig þar á ný. 

Fyrirkomulag varðandi bakvarðasveitina er eins og áður. Opinberar heilbrigðisstofnanir sem óska eftir að ráða sér liðsauka úr bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar geta nálgast lista með upplýsingum um þá sem hafa skráð sig til þátttöku hjá heilbrigðisráðuneytinu. Stofnanirnar munu sjálfar hafa  beint samband við bakverði og verður ráðningarsambandið á milli viðkomandi stofnunar og þess/þeirra bakvarða sem ráða sig til starfa. Til að hægt sé að bæta stofnunum upp kostnaðinn sem hlýst af ráðningu bakvarða, skulu þær halda sérstaklega utan um þann kostnað sem hver ráðning hefur í för með sér. Stofnanir sem um ræðir eru eftirfarandi: Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni, Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri.

Athygli er jafnframt vakin á bakvarðasveit velferðarþjónustunnar og tilkynningu félagsmálaráðuneytisins um skráningu í hana.

Spurt og svarað um bakvarðasveitina:

Eftir hverjum er óskað í bakvarðasveitina?
Heilbrigðisstarfsfólki úr hópi þeirra löggiltu heilbrigðisstétta sem taldar eru undir lið 6 í skráningarforminu hér að neðan.

Til hve langs tíma?
Leitað er að fólki sem getur skuldbundið sig tímabundið í allt að tvo mánuði, hvort sem um er að ræða fullt starf, hlutastarf eða tímavinnu.

Hver eru launin?
Laun taka mið af kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags á viðkomandi stofnun.

Hver eru réttindi þeirra sem ráða sig til starfa?
Orlofsréttindi verða greidd jafnóðum. Veikindaréttur starfsfólks sem ráðið er í tímavinnu eða skemur en tvo mánuði er í samræmi við ákvæði kjarasamninga við ríkið.  

Hvar skráir fólk sig í  bakvarðasveitina?
Heilbrigðisráðuneytið hefur útbúið rafrænt skráningarform í þessu skyni, vinsamlegast smellið á tengilinn.

Hvernig verður staðið að ráðningunni?
Þær heilbrigðisstofnanir sem óska eftir að ráða sér liðsauka úr bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar geta nálgast lista með upplýsingum um þá sem hafa skráð sig til þátttöku hjá heilbrigðisráðuneytinu. Stofnanirnar munu sjálfar hafa beint samband við bakverði og verður ráðningarsambandið á milli viðkomandi stofnunar og þess/þeirra bakvarða sem ráða sig til starfa.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum