Hoppa yfir valmynd
2. október 2022 Forsætisráðuneytið

Samantekt á flutningi embættismanna á tímabilinu 2009 – 2022

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Forsætisráðuneytið hefur tekið saman yfirlit yfir flutning embættismanna milli embætta á tímabilinu 2009 til 2022. Helstu niðurstöður samantektarinnar eru þær að í um 80% tilfella hafi verið skipað í embætti í kjölfar auglýsingar á umræddu tímabili. Ef flutningar embættismanna sem gerðir voru í tengslum við breytingar á skipulagi stofnana eða ráðuneyta eru ekki taldir með, fer hlutfall skipana í kjölfar auglýsingar upp í rúm 90%.

Samantekt forsætisráðuneytisins nær til 334 embættisskipana. Af þeim voru 267 gerðar í kjölfar auglýsingar en í 67 tilfellum var embættismaður fluttur í annað embætti, ýmist á grundvelli flutningsheimildar í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, eða sérstakra lagaheimilda. Í 39 tilfellum af 67 þar sem embættismaður var fluttur í annað embætti, var það gert í tengslum við breytingar á skipulagi stofnana eða ráðuneyta.

Í samantektinni var embættum skipt í þrjá flokka; ráðuneytisstjóra, skrifstofustjóra í ráðuneytum og aðra embættismenn. Hlutföll milli skipunar í embætti í kjölfar auglýsingar og í kjölfar flutnings eru mismunandi milli tegunda embætta. Hlutfallslega flestir flutningar áttu sér stað þegar skipað var í embætti ráðuneytisstjóra. Alls voru átta ráðuneytisstjórar skipaðir í kjölfar auglýsingar á tímabilinu en ellefu embættismenn voru fluttir í embætti ráðuneytisstjóra. Tveir af þeim flutningum voru gerðir á grundvelli breytinga á skipan ráðuneyta.

Tæplega tveir af hverjum þremur skrifstofustjórum í ráðuneytum hafa verið skipaðir í kjölfar auglýsingar. Hins vegar var flutningur 30 skrifstofustjóra af 38 gerður í tengslum við breytingar á skipan ráðuneyta eða breytinga á innra skipulagi ráðuneyta. Séu þau tilvik dregin frá hafa tæplega 89% skipana skrifstofustjóra í embætti verið gerðar í kjölfar auglýsingar.

Tæplega 92% annarra embættismanna hafa á tímabilinu verið skipaðir í kjölfar auglýsingar. Í 7 af þeim 18 tilfellum þar sem aðrir embættismenn voru fluttir milli embætta var sá flutningur gerður í tengslum við breytingar á skipulagi stofnana. Í flestum tilvikum var um að ræða flutningsheimild í lögum vegna sameiningar stofnana. Sé litið fram hjá þeim tilvikum er hlutfall skipunar í embætti í kjölfar auglýsingar tæplega 95%.

Í samantektinni er ekki að finna upplýsingar um lögreglumenn en afstaða dómsmálaráðuneytisins er sú að almennt komi ekki til skoðunar að flytja lögreglumenn milli starfsstiga án auglýsingar, nema uppi séu sérstakar aðstæður. Þá var sérstakri flutningsheimild í lögum beitt við endurskipulagningu á embættaskipan lögreglu og sýslumanna 2015 en þá fækkaði m.a. sýslumannsumdæmum úr 24 í 9. Þá var ekki kallað eftir upplýsingum um skipanir dómara í samantekt forsætisráðuneytisins.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum