Hoppa yfir valmynd
5. janúar 2022 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Einstakt listaverkasafn afhent Listasafni Íslands

Einstakt listaverkasafn afhent Listasafni Íslands - myndListasafn Íslands

Listasafn Íslands fær afhent einstakt listaverkasafn hjónanna Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þorvaldar Guðmundssonar sem kenndur var við Síld og fisk.

„Það er þýðingarmikið að fá þetta stóra og glæsilega listasafn til vörslu á listasafni þjóðarinnar,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra.

Í dag var Listasafni Íslands afhent listaverkasafn hjónanna Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þorvaldar Guðmundssonar sem kenndur var við Síld og fisk, til framtíðarvörslu. Listaverkasafnið skartar perlum íslenskrar listasögu, ekki síst þeirra listamanna sem teljast til frumherja íslenskrar málaralistar en safnið inniheldur drjúgan hluta þeirra myndlistarmanna sem störfuðu á fyrstu áratugum síðustu aldar og kynslóðirnar samtíða þeim hjónum.

Listaverkasafnið er eign Listaverkasjóðs Þorvaldar Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur sem stofnaður var af Ingibjörgu, ekkju Þorvaldar og börnum þeirra, Geirlaugu, Skúla og Katrínu um síðustu aldamót. Að ósk stjórnar sjóðsins og erfingja þeirra hjóna, er Listasafni Íslands og mennta- og menningarmálaráðuneyti falin stjórn sjóðsins.

Listaverkasafn þeirra hjóna er einstakt en Þorvaldur var ástríðufullur safnari og kom verkum sínum fyrir í fyrirtækjum sínum, en þekktustu verk safnsins eru þau sem prýða veggina á jarðhæð Hótel Holts og gestir hótelsins hafa notið frá opnun hótelsins 1965. Fjöldi verka listaverkasafnsins er um 1400 talsins, meðal annars málverk, teikningar, grafík, skúlptúrar og lágmyndir og skipar landslagsmálverkið verðugan sess í safninu með einstökum verkum frumherja íslenskrar myndlistar s.s. Ásgríms Jónssonar, Jóhannesar Kjarval, Jóns Stefánssonar, Kristínar Jónsdóttur og Gunnlaugs Scheving svo dæmi séu tekin. Auk þeirra er fjöldi verka listamanna sem komu fram á millistríðsárunum og um miðja síðustu öld og voru virkir allt fram yfir síðustu aldamót, svo sem eftir Eirík Smith, Louisu Matthíasdóttur, Kristján Davíðsson, Tryggva Ólafsson og Veturliða Gunnarsson svo fáeinir séu nefndir.

Þorvaldur kynntist öllum listamönnum sem störfuðu á hans tíma og safn hans er gríðarlega fjölbreytt. Þorvaldur og Ingibjörg áttu stærsta einkasafnið á verkum Jóhannesar S. Kjarvals, um 400 verk, sem er þar af leiðandi langstærsti hluti einstaks listamanns í safninu. Ber sérstaklega að geta verksins Lífshlaupið frá 4. áratug síðustu aldar, sem eru veggir vinnustofu Kjarvals úr risinu á Austurstræti 12 og einstaklega dýrmætur hluti af menningararfi okkar. Í heilmiklu safni teikninga ber einnig langmest á Kjarval með ýmsu forvitnilegu og af pappírsverkum, bleki og vatnslitum er töluvert af, svo sem eftir Snorra Arinbjarnar, Jón Engilberts og Ragnar Kjartansson (eldri). Skúlptúrar eru eftir Gerði Helgadóttur auk nokkurra eftir Ásmund Sveinsson og Einar Jónsson. Erlend verk er einnig að finna í safninu, málverk og prent og ber sérstaklega að nefna olíumyndir eftir Færeysku meistarana Mikines og Ingálv av Reyni, en einnig er töluvert af grafíkverkum gerð af Emile Lassalle og Íslandsmyndum August Mayer frá leiðangri Paul Gaimard.

Listasafn Íslands mun á næstu misserum skrá þetta einstaka sérsafn og gera það aðgengilegt til sýninga og með stafrænum hætti. Stefnt er að stórri bókaútgáfu innan fárra ára um það merka og myndarlega framlag til íslenskrar listasögu sem þau hjónin Ingibjörg og Þorvaldur stóðu að.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum