Hvoll 2 í Ölfusi til sölu
Ríkiskaup hafa auglýst jörðina Hvoll 2 í Ölfusi til sölu á heimasíðu sinni fyrir hönd sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.
Ríkiskaup sjá alfarið um sölu eignarinnar og veita áhugasömum kaupendum upplýsingar um eignina.
Um er að ræða ríkisjörðina Hvol 2 í Ölfusi að stærð 8,4 ha.
Á jörðinni er íbúðarhús byggt úr timbri árið 1962 stærð 131,3 m² ásamt hesthúsi og hlöðu stærð 220,0 m² byggt úr timbri árið 1963 samkvæmt Fasteignaskrá Íslands. Jörðin Hvoll 2 er sunnan við þjóðveg nr. 1, vestan Kögunarhóls.
Eignin er til sýnis í samráði við Ríkiskaup, Borgartúni 7, 105 Reykjavík í síma 530-1400. Tilboðseyðublöð liggja frammi á sama stað ásamt reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðublaði.