Tollkvóti fyrir kartöflunasl frá Noregi
Með vísan til reglugerðar nr. 37/2013, sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda þann 18. febrúar 2013, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir kartöflunasl í tollskrárnúmeri 2005.2003, sem upprunnið er í Noregi og er innflutt þaðan, sbr. bókun 4 við EES-samninginn:
Tollskrár-númer | Vara | Tímabil | Vörumagn kg. | Verðtollur % | Magntollur kr./kg |
---|---|---|---|---|---|
2005.2003 | Kartöflur: Nasl svo sem skífur, skrúfur, hringir, keilur, stangir o.þ.h., þó ekki úr kartöflumjöli. | 08.03.13-31.12.13 | 15.000 | 0 | 0 |
Berist umsóknir um meiri innflutning en nemur auglýstum tollkvóta verður úthlutun miðuð við hlutfall innflutnings hvers umsækjanda miðað við heildarinnflutning allra umsækjenda á kartöflunasli í tollskrárnúmeri 2005.2003 á tímabilinu 1. janúar 2012 til 31. desember 2012. Úthlutun er ekki framseljanleg.
Skriflegar umsóknir skulu berast til fjármála- og efnahagsrráðuneytisins, tekju- og skattaskrifstofu, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir kl. 15:00 föstudaginn 8. mars n.k.
Eingöngu er auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir kartöflunasl á heimasíðu fjármálaráðuneytisins.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 18. febrúar 2013.